07:03
Morgunvaktin
Kosningabaráttan fer óvenju seint af stað

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Í byrjun þáttar var lesið úr grein Laufeyjar Valdimarsdóttir í Ísafold um Kvennaráðstefnuna í Búdapest 1913.

20 dagar eru til sveitarstjórnakosninga. Eva Marín Hlynsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði við HÍ, spjallaði um kosningabaráttuna. Henni þykir hún hafa farið rólega af stað. Eva benti meðal annars á að konur í efsta sæti 33 lista af 182.

Björn Malmquist, frétamaður í Brussel, ræddi fyrst við Friðrik Jónsson sendiherra Íslands gagnvart Úkraínu. Hann var þar við athöfn í gær þegar 40 ár voru liðin frá Tshernobyl-slysinu. Þá ræddi Björn við Guðmund Kristjánsson, forstjóra Brims, um nýafstaðna sjávarútvegssýningu í Barcelona og um Evrópuumræðuna á Íslandi.

Hvar á láglaunafólk að búa? Að því spyrja ASÍ og BSRB á fundi í fyrramálið. Fjallað verður um hlutverk og ábyrgð sveitarfélaganna í húsnæðisuppbyggingu. Róbert Farestveit, hagfræðingur ASÍ, og Jana Eir Víglundsdóttir, hagfræðingur BSRB, fóru yfir stöðuna.

Tónlist:

H-lagið - Ragnar Bjarnason,

Liebestraum - Igor Levit,

One for Grew - Robert Glasper.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,