Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Nýjar landsstjórnir hafa verið myndaðar bæði í Færeyjum og á Grænlandi, og hugmyndir eru uppi um að Bandaríkjamenn komi sér á ný upp herstöð í Narsarsuaq á Grænlandi. Þetta var til umræðu í Heimsglugganum með Boga Ágústssyni. Hann ræddi líka um gagnrýni Bandaríkjaforseta á páfann og um minningarstund samfélags gyðinga um helförina hér á landi.
Við fjölluðum um dýrtíð, verðbólgu og vísitölur.
Í síðasta hluta þáttarins var rætt við Birnu Mjöll Atladóttur, hótelstjóra á Breiðavík, um vorið, sumarið, samgöngur og ferðaþjónustu svo eitthvað sé nefnt. Hún fékk fyrstu bókunina fyrir almyrkvann í sumar fyrir tólf árum síðan.
Tónlist:
Ólafur Vignir Albertsson, Sigurður Björnsson, Kristinn Hallsson - Ég bið að heilsa.
Mannakorn - Garún.
Ragnar Bjarnason - Það styttir alltaf upp.
Tríó Björns Thoroddsen, Andrea Gylfadóttir - Vorvindar glaðir.

07:30

08:30

Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Við fræddumst um svokallaðan minningarstein í þættinum, en fjórir ungir menn tóku þátt í frumkvöðlakeppni þar sem þeirra vara var minningarsteinninn Eilífð. Á hverjum og einum steini er QR kóði sem leiðir inn á vefsíðu þar hægt verður að sjá myndir og myndbönd af þeim sem hefur fallið frá. Baldur Orrason Gröndal og Jóel Þeyr Kárason komu í þáttinn og útskýrðu betur fyrir okkur hvernig þetta virkar.
Valdimar Þór Svavarsson kemur til okkar á fimmtudögum og fræðir okkur um mannleg samskipti. Síðustu tvo fimmtudaga var hann að tala um höfnunaróttann sem herjar á marga og getur verið snúið að glíma við. Hann hélt áfram á þeim nótum og fýr dýpra í þær í dag.
Það eru spennandi verkefni framundan hjá Hrólfi Sæmundssyni óperusöngvara. Hann er að fara að syngja sjálfan Óðinn, í fyrstu heildaruppfærslu Eistlendinga á Niflungahringnum. Æfingar byrja í maí en fáir Íslendingar hafa sungið það hlutverk en það þykir eitt mest krefjandi hlutverk óperubókmenntanna.Við heyrðum í Hrólfi í þættinum.
Tónlist í þættinum í dag:
Þó líði ár og öld / Björgvin Halldórsson (erlend lag, texti Hrafn Gunnlaugsson)
Mamma / Björgvin Halldórsson (Þórunn Franz, texti Ólafur Gaukur Þórhallsson)
Ég fann þig/Björgvin Halldórsson (Amerískt þjóðlag, texti Jón Sigurðsson)
Selja litla / Björgvin Halldórsson (Jón Jónsson frá Hvanná, texti Guðmundur Ingi Kristjánsson)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Formaður Sjálfstæðisflokksins telur að forsætisráðherra hafi misbeitt valdi sínu þegar stefnumál Samfylkingarinnar fyrir sveitarstjórnarkosningarnar voru kynnt . Forsætisráðherra minnir á að hún er jafnframt formaður flokksins.
Formaður Kennarasambandsins krefur stjórnvöld um framtíðarsýn í menntamálum. Þau fari fram með skyndiákvarðanir án samráðs.
Leiðtogar Ísraels og Líbanons ræða mögulega saman í síma í dag, það yrði fyrsta samtal leiðtoga ríkjanna í áratugi og framhald af viðræðum sendiherra þeirra í fyrradag.
Lokun Hormússunds er farin að hafa áhrif á birgðir af þotueldsneyti í Evrópu. Forstjóri Skeljungs segir birgðastöðu á Íslandi góða en lítið megi útaf bera.
Breytingar á Loftbrú eru í skoðun hjá innviðaráðuneytinu. Hvorki á þó að hætta með verkefnið né draga úr fjárveitingum, að sögn ráðherra.
Icelandair og Vegagerðin hafa samið um flug til Ísafjarðar næstu fjögur ár - samið var um töluvert færri ferðir en kveðið var á um í útboði.
Oddaleikir eru fram undan í úrslitakeppni í körfubolta, undanúrslit eru hafin í handbolta kvenna sem og úrslitarimma í blaki karla.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Facebook-færsla eiganda fósturheimilisins Gauksstaða í Garðinum í vikunni reitti nokkra af þeim sem bjuggu á fósturheimilinu sem börn og unglingar til reiði. Eigandi fósturheimilisins heitir Jón Steinar Konráðsson.
Í Þetta helst í dag segir einn maður og tvær konur sem dvöldu á fósturheimilinu frá upplifun sinni.
Einn af þeim var ósáttur við færsluna er Burkni Þór Sveinsson sem bjó á fósturheimilinu þegar hann var 15 til 16 ára gamall á árunum 2011 til 2012. Burkni segir að eini hvatinn sem reki hann áfram sé að barnaverndarkerfið viðurkenni að það hafi skitið upp á bak, eins og hann orðar það, þegar börn voru send í fóstur á Gauksstöðum.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.
Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hvers kyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði – og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni.
Í þættinum er ferðast um suðurhöf í gegnum íslenskan garðagróður sem á heimkynni sín á suðurhveli jarðar – í Argentínu, Síle, Ástralíu og Nýja–Sjálandi. Sérstaklega er fjallað um apahrelli og sneplur. Þá er einnig rætt um stofuplöntuna stofugreni frá Norfolk-eyju sem er að segja má í tísku. Einnig er kafað ofan í nýlegar ákvarðanir Nýsjálendinga um að veita vissum náttúrufyrirbærum þar í landi réttindi til jafns við einstaklinga. Fjallað er um þau náttúrutengsl sem þær ákvarðanir endurspegla og hvaðan þau koma.
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Í þessum þætti eru fluttir átthagasöngvar, en það orð er notað um söngva sem mæra einhvern tiltekinn stað á landinu. Oftast eru höfundar slíkra ljóða að yrkja um átthaga sína, landsvæðið þar sem þeir hafa alist upp eða átt heima í mörg ár. Meðal frægra íslenskra átthagasöngva eru „Skín við sólu Skagafjörður“ eftir Sigurð Helgason við ljóð Matthíasar Jochumssonar, „Blessuð sértu sveitin mín“ eftir Bjarna Þorsteinsson við kvæði Sigurðrar Jónssonar frá Arnarvatni, og „Átthagaljóð“, lag Inga T. Lárussonar við ljóð Sigurðar Arngrímssonar. Þessir söngvar verða fluttir í þættinum, og margir fleiri, sumir alkunnir, en aðrir lítt þekktir.


Útvarpsfréttir.

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Meðal verðlaunahafa á Hönnunarverðlaunum Íslands 2025 var þverfaglega hönnunarteymið Terta. Hópurinn endurhannaði Elliðaárstöð og umhverfi hennar fyrir Orkuveituna og úr varð eftirtektarverður áfangastaður, svæði sem var áður afvikið iðnaðarsvæði en iðar nú af lífi árið um kring. Við hittum tvo meðlimi Tertu, þær Brynhildi Pálsdóttur, hönnuð og Evu Huld Friðriksdóttur, arkitekt í þætti dagsins. Við lítum við líka í Gallery Berg við Klapparstíg, þar sem einkasýning Þórdísar Zoega, Domestic Sci-fi, stendur yfir, og heyrum leikhúsrýni Trausta Ólafssonar, sem fór nýverið á frumsýningu leiksýningarinnar Ég, Jóhanna, í Tjarnarbíói.


Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Nokkur vel valin lög

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.

Umfjöllun um tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem í kjölfar þáttarins hljóma í beinni útsendingu Rásar 1 úr Eldborg Hörpu.
Í þættinum er tínt til eitt og anna sem tengist sköpunarsögunni.
Þjóðsagnaþættir Þorsteins frá Hamri, textinn úr Sköpuninni eftir Haydn - Anna Kristín Arngrímsdóttir les. Einnig er hugað að Ruth Crawford Seeger, amerískri tónskáldkonu frá byrjun 20. aldar.
Umsjón: Pétur Grétarsson

Bein útsending frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg, Hörpu.
Á efnisskrá:
Kynning óreiðunnar, úr Sköpuninni eftir Joseph Haydn.
Andante fyrir strengjasveit eftir Ruth Crawford Seeger.
Sinfónía nr. 64, Tempora Mutantur, eftir Joseph Haydn.
Lontano eftir György Ligeti.
Svo mælti Zaraþústra eftir Richard Strauss.
Hljómsveitarstjóri: Barbara Hannigan.
Í hléi hljómar pistill Tómasar Ævars Ólafssonar um ofurmennið Línu Langsokk og brot úr þætti Þórunnar Jörlu Valdimarsdóttur um mismunandi skoðanir á sköpunarsögunni. (Úr menningarsögunni 1989)
Kynnir: Pétur Grétarsson.
Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.
Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hvers kyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði – og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni.
Í þættinum er ferðast um suðurhöf í gegnum íslenskan garðagróður sem á heimkynni sín á suðurhveli jarðar – í Argentínu, Síle, Ástralíu og Nýja–Sjálandi. Sérstaklega er fjallað um apahrelli og sneplur. Þá er einnig rætt um stofuplöntuna stofugreni frá Norfolk-eyju sem er að segja má í tísku. Einnig er kafað ofan í nýlegar ákvarðanir Nýsjálendinga um að veita vissum náttúrufyrirbærum þar í landi réttindi til jafns við einstaklinga. Fjallað er um þau náttúrutengsl sem þær ákvarðanir endurspegla og hvaðan þau koma.


frá Veðurstofu Íslands
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Við fræddumst um svokallaðan minningarstein í þættinum, en fjórir ungir menn tóku þátt í frumkvöðlakeppni þar sem þeirra vara var minningarsteinninn Eilífð. Á hverjum og einum steini er QR kóði sem leiðir inn á vefsíðu þar hægt verður að sjá myndir og myndbönd af þeim sem hefur fallið frá. Baldur Orrason Gröndal og Jóel Þeyr Kárason komu í þáttinn og útskýrðu betur fyrir okkur hvernig þetta virkar.
Valdimar Þór Svavarsson kemur til okkar á fimmtudögum og fræðir okkur um mannleg samskipti. Síðustu tvo fimmtudaga var hann að tala um höfnunaróttann sem herjar á marga og getur verið snúið að glíma við. Hann hélt áfram á þeim nótum og fýr dýpra í þær í dag.
Það eru spennandi verkefni framundan hjá Hrólfi Sæmundssyni óperusöngvara. Hann er að fara að syngja sjálfan Óðinn, í fyrstu heildaruppfærslu Eistlendinga á Niflungahringnum. Æfingar byrja í maí en fáir Íslendingar hafa sungið það hlutverk en það þykir eitt mest krefjandi hlutverk óperubókmenntanna.Við heyrðum í Hrólfi í þættinum.
Tónlist í þættinum í dag:
Þó líði ár og öld / Björgvin Halldórsson (erlend lag, texti Hrafn Gunnlaugsson)
Mamma / Björgvin Halldórsson (Þórunn Franz, texti Ólafur Gaukur Þórhallsson)
Ég fann þig/Björgvin Halldórsson (Amerískt þjóðlag, texti Jón Sigurðsson)
Selja litla / Björgvin Halldórsson (Jón Jónsson frá Hvanná, texti Guðmundur Ingi Kristjánsson)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Inga Sæland, barna- og menntamálaráðherra, kom víða við í ræðu sinni á þingi Kennarasambandsins í gær við misjafnar undirtektir stéttarinnar. Inga lýsti meðal annars skoðun sinni að nota ætti tölustafi í einkunnagjöf í grunnskólum en ekki bókstafi, eitthvað sem olli Magnúsi Þór Jónssyni, formanni Kennarasambandsins, gríðarlegum vonbrigðum. Í viðtali á Vísi sagði hann áhyggjuefni að ríkisstjórnin ætli að halda áfram að kasta hlutum til kennara sem ganga þvert gegn ríkjandi aðalnámskrá. Magnús Þór kom til okkar í Morgunútvarpið.
Guðjón Þorgils Kristjánsson, nemandi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja, sigraði í Söngkeppni framhaldsskólanna sem fram fór í Háskólabíó um síðustu helgi. Guðjón flutti lagið Strange eftir Celeste en hann söng lagið á íslensku við eigin texta, sem ber heitið „Ég skil ekki neitt.“ Dómnefndina skipuðu Helgi Björnsson, Bríet og Þormóður Egilsson og gilti val þeirra til helmings á móti atkvæðum í sms-kosningu áhorfenda. Guðjón Þorgils á framtíðina fyrir sér og hann renndi við í Morgunútvarpinu.
Okkar maður Einar Örn Jónsson mætti með eldheitan mola úr heimi íþróttanna.
Unnar kjötvörur eru á allra vörum eftir að borgarstjórn samþykkti matarstefnu sem felur í sér að börn fái ekki unnar kjötvörur í mötuneytum leik- og grunnskóla borgarinnar. Er þetta rétt skref eða munu blessuð börnin sakna þess að borða bjúgu? Vorum við að gefa þeim bjúgu yfirhöfuð? Hvaða áhrif hafa bjúgu á börn? Dögg Guðmundsdóttir, klínískur næringarfræðingur frá Nutriment RVK, kom til okkar og við tókum málið allar 360 gráðurnar.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Mest seldu plötur Bretlands hingað til á árinu, sturlaðir söngvarar, 500 mílur og Massive Attack feat. Tom Waits!
Lagalisti þáttarins:
200.000 NAGLBÍTAR – Láttu Mig Vera
DAVID BOWIE – Starman
HLH FLOKKURINN – Riddari götunnar
GUÐMUNDUR PÁLSSON, MEMFISMAFÍAN – Ég skal syngja fyrir þig ásamt Guðmundi Pálssyni
KATE BUSH – Running Up That Hill
TAYLOR SWIFT – Elizabeth Taylor
KINGFISHR – The Blade
OASIS – Who Feels Love
ROLLING STONES – Angie
ROBYN – Talk To Me
GENE VINCENT – Be Bop a Lula
JET BLACK JOE – You Can Have It All
FINE YOUNG CANNIBALS – Good Thing
ARCTIC MONKEYS – Snap Out Of It
FLEETWOOD MAC – You Make Loving Fun
HARRY STYLES – Aperture
MAMMÚT – Rauðilækur
GREININGARDEILDIN, BOGOMIL FONT, EMILÍANA TORRINI – Þú stendur alltaf með mér
PROCLAIMERS – I'm Gonna Be (500 Miles)
COLDPLAY – Yellow
MT JONES – I Don't Understand
BOZ SCAGGS – Lowdown
HELGI BJÖRNSSON – Allt ljómar
MOSES HIGHTOWER – Ráðahagur
JEFF BUCKLEY – Last Goodbye
GUNS N' ROSES – Since I Don't Have You
ÞORMÓÐUR EIRÍKSSON, ALASKA1867, MARON BIRNIR REYNISSON – Stoppa tímann
HERRA HNETUSMJÖR – Elli Egils
MADONNA – Beautiful Stranger
FLOTT – Tuttugu og eitthvað
FOO FIGHTERS – Everlong
NÝDÖNSK – Apaspil
KISS – Lick It Up
PORTUGAL. THE MAN – Tanana
SYCAMORE TREE – Better Call Off the Search for My Soul
LEAVES – Catch
TEITUR MAGNÚSSON – Gullauga
ZOMBIES – She's Not There
MASSIVE ATTACK & TOM WAITS - Boots on the ground

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Formaður Sjálfstæðisflokksins telur að forsætisráðherra hafi misbeitt valdi sínu þegar stefnumál Samfylkingarinnar fyrir sveitarstjórnarkosningarnar voru kynnt . Forsætisráðherra minnir á að hún er jafnframt formaður flokksins.
Formaður Kennarasambandsins krefur stjórnvöld um framtíðarsýn í menntamálum. Þau fari fram með skyndiákvarðanir án samráðs.
Leiðtogar Ísraels og Líbanons ræða mögulega saman í síma í dag, það yrði fyrsta samtal leiðtoga ríkjanna í áratugi og framhald af viðræðum sendiherra þeirra í fyrradag.
Lokun Hormússunds er farin að hafa áhrif á birgðir af þotueldsneyti í Evrópu. Forstjóri Skeljungs segir birgðastöðu á Íslandi góða en lítið megi útaf bera.
Breytingar á Loftbrú eru í skoðun hjá innviðaráðuneytinu. Hvorki á þó að hætta með verkefnið né draga úr fjárveitingum, að sögn ráðherra.
Icelandair og Vegagerðin hafa samið um flug til Ísafjarðar næstu fjögur ár - samið var um töluvert færri ferðir en kveðið var á um í útboði.
Oddaleikir eru fram undan í úrslitakeppni í körfubolta, undanúrslit eru hafin í handbolta kvenna sem og úrslitarimma í blaki karla.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Lovísa Rut stýrði skútinni í dag, Nýtt fyrirkomulag plötu vikunnar kynnt til leiks, Jóhannes Bjarki Bjarkarson gerði upp plötuna Ívar Klausen. Björgvins Halldórssonar minnst, Madonna og TikTok áhrifin skoðuð, allskonar tónlist og tónlistarfréttir.
Guðmundur Pálsson, Memfismafían - Ég skal syngja fyrir þig.
Björgvin Halldórsson - Gullvagninn.
Klara Einarsdóttir - Kominn heim.
Dina Ögon - Mormor.
Bubbi Morthens - Hún.
Creature of Habit - Myrká.
THE PRETENDERS - Back On The Chain Gang.
Carpenter, Sabrina - When Did You Get Hot.
Laufey - Madwoman.
Snorri Helgason - Torfi á orfi.
Styles, Harry - American Girls.
Jungle - Back On 74.
GOO GOO DOLLS - Iris.
MADONNA - Into the groove.
FLEETWOOD MAC - Dreams.
MADONNA - Into the groove.
Addison Rae - Headphones On.
Chappell Roan - Pink Pony Club.
GDRN - Háspenna.
EMILÍANA TORRINI - Heartstopper.
Kingfishr - The Blade.
Swift, Taylor - Elizabeth Taylor.
sombr - Homewrecker.
Una Torfadóttir, Ágúst Þór Brynjarsson - Inn í síðustu nóttina.
Krummi - Smile till it ends.
Ívar Klausen - All Will Come To Pass.
Parcels - Overnight.
Ivar Klausen - Slip away.
Stevens, Cat - Father and son.
Ívar Klausen - Lonely.
Ivar Klausen - Dreamer.
CORNERSHOP - Brimful of Asha (Norman Cook Remix).
Daði Freyr Pétursson - Hot damn.
Ragnheiður Gröndal - Má ég?.
Helgi Björnsson - Allt ljómar.
Reed, Lou - Charley's girl.
THE CARDIGANS - Lovefool.
MT Jones - I Don't Understand.
THE CURE - Close To Me (Remix)
HOFFMAN - Fallbeygðu mig.
THE SOURCE ft. CANDI STATION - You’ve Got The Love (New Voyager Radio Edit)
PINK - Trouble.
LOLA YOUNG - Messy.
WARMLAND - All for All.
DEATH CAB FOR CUTIE - Riptides.
NOAH KAHAN - The Great Divide.


Útvarpsfréttir.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.


Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Í Undiröldinni heyrir þú nýja íslenska tónlist úr ýmsum áttum sem gæti mögulega slegið í gegn á næstu vikum. Þetta gæti verið popp, raftónlist, rapp, kántrí, þungarokk eða djass - en eina sem er 100% hægt að lofa - er að lögin sem eru spiluð eru ný og íslensk .
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.


Tónleikaupptökur víðsvegar að úr heiminum, frá ýmsum tímum og úr ólíkum tónlistaráttum. Nýjar og gamlar tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 í bland við upptökur frá tónlistarhátíðum erlendis sem vinir Rásar 2 í EBU bjóða upp á.