Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Varnar- og öryggismál Íslands voru til umfjöllunar þegar Kristinn Árni Lár Hróbjartsson, forstöðumaður Vörðu hugveitu, kom á Morgunvaktina. Tvíhliða varnaræfingin Norður-Víkingur, uppbygging varnarinnviða hér á landi og umræða um varnar- og öryggismál í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðsluna á laugardag voru rædd.
Björn Malmquist fréttamaður var á sínum stað. Hann ræddi við Kjetil B. Alstadheim, pólitískan ritstjóra á Aftenposten, um þjóðaratkvæðagreiðsluna. Að ýmsu leyti er umræðan um hana kunnugleg frá því sem var í Noregi, en talsverður munur er t.d. varðandi EES-samninginn. Björn ræddi líka við Hjört Smárason, sem var ferðamálastjóri á Grænlandi, og lýsti því sem Bandaríkjamenn aðhafast nú á Grænlandi. Það veldur mörgum heimamönnum áhyggjum.
Í síðasta hluta þáttarins var talað um húsnæðismarkaðinn. Jónas Atli Gunnarsson, yfirhagfræðingur hjá HMS, Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, sagði áfram merki um kólnun, en hún væri nokkuð hægfara og ekkert hrun.
Tónlist:
Ragnheiður Gröndal - Ég þakka.
Los Bomboneros y sus bombasticos, Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir - Hjarta mitt.
David Bowie - Life on Mars.

07:30

08:30

Veðurstofa Íslands.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Leikin eru allskonar lög þar sem sungið er um rigninuna og það sem henni fylgir. Grafík flytur lagið Húsið og ég, Bjarni Guðmundsson flytur lag sem hann samdi við ljóðið Velkomin rigning eftir Guðmund Inga Kristjánsson, Ari Jónsson syngur lag sem heitir Rigning, Haukur Hauksson syngur lagið Í roki og regni, Langi Seli og Skuggarnir flytja lagið Rigning og rok,. Selma Björnsdóttir syngur lag sem heitir Taktu mig með, Mannakorn flytja Regnblús, KK syngur Rigning og súld, Mánar flytja lagið Haustregn og Jón Jónsson slær botninn með laginu Rignir endalaust. Umsjón: Jónatan Garðarsson.

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Reynir Grétarsson geystist óvænt fram á ritvöllinn í fyrra þegar hann sendi frá sér tvær bækur, ævisöguna Fjórar árstíðir og glæpasöguna Líf sem tilnefnd var til Blóðdropans, íslensku glæpasagnaverðlaunanna. Á dögunum kom út eftir hann bókin Bókasafn gagnslausra hugsana auk þess sem Kortabók Íslands sem hann sendi frá sér fyrir tíu árum var endurútgefin. Og mögulega eru fleiri bækur væntanlegar í ár. Reynir var gestur Sumarmála í dag.
Safn vikunnar er Listasafn Reykjanesbæjar. Um þessar mundir stendur yfir uppsetning sýningarinnar Nína, okkar kærasta Nína / Nína, our dear Nína, þar sem verk Nínu Sæmundssonar eru í samtal við verk nokkra samtímalistamanna. Sýningin er sýningarstýrð af Yndu Eldborg og Viktoríu Guðnadóttur og skoðar lífsverk Nínu út frá hinsegin linsu. Helena Solveigar Aðalsteinsbur sérfræðingur sagði okkur frá.
Og fugl dagsins var fyrstur á dagskrá
Tónlist frá útsendingarlogg 2026-08-24
Páll Óskar Hjálmtýsson, Benni Hemm Hemm - Eitt af blómunum.
Carpenters - (They long to be) Close to you.
Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir - Ég vissi svo vel.
Litefun - SOFIA.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Þularkynnt tónlist
Útvarpsfréttir.
Nákvæm framkvæmd á nýju námsmati í grunnskólum liggur ekki fyrir fyrr en líður á veturinn segir skólastjóri í Garðaskóla. Skólastarfið er að hefjast.
Leiðtogar helstu vinaþjóða Úkraínu funda í Kyiv í dag. Sendiherra Íslands, sem tekur þátt í fundinum, segir mikilvægt að halda áfram stuðningi við Úkraínu. Markmið Rússa sé að valda sem mestum hryllingi.
Icelandair ætlar ekki að flytja störf úr landi vegna kaupa á Fly Play Europe, segir forstjóri Icelandair. Hann vonar að óánægja Félags íslenskra atvinnuflugmanna með kaupin auki ekki spennu í kjaraviðræðum.
Skýrslutöku af erlendum læknum í Reykholtsmálinu var frestað í dag þar sem túlki gekk illa að þýða það sem læknir sagði. Mögulegt er að aðalmeðferð lengist.
Þungur rekstur Sýnar undanfarið er ekki ástæða þess að viðræður slitnuðu um kaup Ása á fjölmiðlum félagsins, segir forstjóri Sýnar.
Hollenska sjónvarpsstöðin sem hefur síðustu ár sent framlag í Eurovision, ætlar að sniðganga keppnina annað árið í röð - því keppnin geti ekki lengur talist hlutlaus.
Stýrivaxtahækkun skilar sér hraðar í aukinni greiðslubyrði óverðtryggðra lána eftir að vaxtadómurinn féll í fyrra að sögn fjármálaráðgjafa. Greiðslubyrði af fjörutíu milljóna króna láni eykst að jafnaði um sjö þúsund krónur á mánuði.
Ríkið hefur samið við Heilsuvernd um að reka nýtt hjúkrunarheimili í Þursaholti á Akureyri. Forstjóri vonar aðframkvæmdir hefjist á næstu mánuðum.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja samþykkti á fundi sínum í síðustu viku umsókn Surtseyjarfélagsins um að stækka þyrlupallinn í Surtsey úr 36 fermetrum í um 100. Bærinn fer með skipulagsvald í eynni og skipulagsfulltrúa verður falið að gefa út framkvæmdaleyfi - en hvers vegna að stækka pallinn og hvernig myndu slíkar framkvæmdir vera skipulagðar með tilliti til náttúruverndar?
Rætt er við Magnús Tuma Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, Sigurð Wiium, yfirflugstjóra hjá Landhelgisgæslunni, og Hildi Sólveigu Sigurðardóttur, formann umhverfis- og skipulagsráðs Vestmannaeyjabæjar.
Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlistin í þættinum:
Liebesleid eftir Fritz Kreisler, í útsetningu fyrir víólu og píanó eftir Timothy Ridout. Timothy Ridout leikur á víólu og Frank Dupree á píanó.
Þrjú lög eftir Toru Takemitsu:
Shima e, við texta eftir Mitsuru Isawa.
Chiisana sora, við texta eftir Toru Takemitsu.
Shinda otoko no nokoshita mono ha, við texta eftir Shuntaro Tanikawa.
Flytjendur eru Dominique Visse kontratenór og François Couturier píanóleikari.
Útg. 2007
Rammislagur, eftir Atla Heimi Sveinsson við ljóð eftir Stephan G. Stephansson. Ágúst Ólafsson syngur og Anna Guðný Guðmundsdóttir leikur á píanó. Hljóðritað í salnum í Kópavogi í júní 2018.
Noktrúrna nr. 4 í A-dúr, H. 36 eftir John Field. Alice Sara Ott leikur á píanó. Hljóðritað 2024, útgefið 2025.
A pile of dust eftir eftir Jóhann Jóhannsson. Air Lyndhurst-strengjasveitin leikur. Stjórnandi er Athony Weeden.
Þrjú sönglög eftir Gabriel Fauré:
Pavane op. 50
En sourdine op. 58 no. 2
Le voyageur op. 18 no. 2
Flytjendur eru Brian Asawa kontratenór og hljómsveitin Academy of St. Martini n the Fields. Stjórnandi er Neville Marriner.
Útgefið 1998.
M'appari tutt'amor, aría úr óperunni Martha eftir Friedrich von Flotow. Textann samdi Friedrich Wilhelm Riese. Þýðandi er Achille de Lauzières. Jussi Björling tenór syngur, og Nils Grevillius stjórnar ónafngreindri hljómsveit sem leikur með. Hljóðritað 1939.
Flower, úr Two poems of Balmont K013 eftir Ígor Stravínskíj. Ljóðið orti Alexandra Heath. Barbara Hannigan sópran stjórnar og syngur með Skólahljómsveitum Juilliard-tónlistarháskólans og Konunglega tónlistarháskólans í Lundúnum.
Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Það er nánast alveg sama hvar leitað er í vestrænni bókmenntasögu, alltaf er von á því að mæta Ódysseifi í einhverri mynd, gríska kappanum, konungi Íþöku, sem hraktist um miðjarðarhafið í 10 ár á leið sinni heim eftir jafnlangt stríð við Trójumenn. Persónur, guðir og goðsagnir úr þessum elstu bókmenntatextum vesturlanda hafa vakið undrun og innblástur um aldir en líklega enginn eins og Ódysseifur, sem er ekki aðeins að finna í Ódysseifskviðu þar sem hann er söguhetjan og Illíonskviðu þar sem hann leikur líka stórt hlutverk heldur er hann goðsögn sem dúkkar upp reglulega í bókmenntasögunni, stundum í yfirfærðri merkingu og sagan um heimferð hans hefur orðið einskonar skapalón fyrir hetju- og heimferðasögur. Ódysseifur hefur orðið tákn flökkuhetjunnar sem leitar heimilis síns og hann hefur verið túlkaður á ótal vegu í takt við tíðarandann hverju sinni. Ódysseifur er menningartákn nánast eins og það sem í dag kallast jarm eða meme, hugmynd eða tákn sem berst milli manna og þvert á menningarheima. Alltaf á leiðinni heim. En virðist aldrei takast það. Hver er þessi flókni maður, bragðarefurinn, hinn ráðagóði Ódysseifur. Af hverju er hann í sífelldri aðlögun og endurnýjun?
Viðmælendur: Hjalti Snær Ægisson og Gottskálk Jensson.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Nú fyrir helgi kom út fyrsta ljóðabók Védísar Evu Guðmundsdóttur, Brotnar línur. Ljóðsagan segir frá ungri konu sem heldur úr borginni út á land til að vinna í sláturhúsi. Þar kynnist hún köldum veruleika blóðugrar matvælaframreiðslu í neonlýstum slátursalnum, en jafnframt fólkinu í þorpinu og samfélaginu að baki. Védís Eva heimsækir hljóðstofu og segir frá bókinni.
Sjöfn Hauksdóttir, bókmenntafræðingur, flytur sinn fyrsta pistil sem sviðslistarýnir. Hún fjallar um danssýninguna Heyrðu mig, eftir Sveinbjörgu Þórhallsdóttur, sem sýnt er í Ásmundarsal um þessar mundir. Verkið i er innblásið af lífi dansarans Diljár Sveinsdóttur, sem fæddist heyrnarlaus en hefur á sinn einstaka hátt skapað sér leið sem atvinnudansari og listakona.
Nú á miðvikudag stendur til að sýna í Sambíóunum hina klassísku kvikmynd The Last Waltz í leikstjórn Martin Scorsese frá árinu 1978. Við munum því að gefnu tilefni rifja upp eitt afar furðulegt atvik úr sögu þessarar sveitar.
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Í Lestinni í dag ætlum við að leita að sumasmellinum 2026. Var eitthvað eitt lag sem fangaði sumarið í ár eða er hinn brotakenndi samtími búinn að gera út af við stóra sameiginlega sumarsmellinn? Við fáum hóp tónlistargrúskara til að segja hvaða lag einkenndi sumarið hjá þeim og hvað gerir lag að góðu sumarlagi.
Bellamix69, Óli Dóri, Margrét Erla Maack, Dóra Júlía, Una Schram og Einar Karl í Ólátagarði eru ráðgjafar Lestarinnar í dag.
Við sökkvum okkur svo ofan í aðra seríu af rifrildisþáttunum Beef á Netflix. Nú fylgjumst við með erjum tveggja para sem starfa á ríkmannlegum golfvelli. Brynja Hjálmsdóttir segir frá.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Mál ungrar móður í Bandaríkjunum hefur vakið athygli um allan heim en hún er ákærð fyrir að hafa orðið þremur börnum sínum að bana. En málið hefur ekki bara vakið upp spurningar um sekt eða sakleysi hennar heldur hefur það einnig hrundið af stað umræðum um andlega heilsu mæðra og geðheilbrigðiskerfið í Bandaríkjunum.
En við byrjum á þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildaviðræðna við Evrópusambandið. Umræðan í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu á laugardaginn hefur að sumu leyti einkennst af ofgnótt á skoðunum en skorti á dýpri lýðræðislegri greiningu að dómi lektors við HÍ.

frá Veðurstofu Íslands
Hljóðritun frá tónleikum Danska strengjakvartettsins sem fram fóru í Rudolfinum tónleikahúsinu í Prag, 10. júní sl.
Á efnisskrá:
- Le Bois eftir Bryce Dessner.
-Strengjakvartett í F-dúr eftir Maurice Ravel.
-Norræn þjóðlagasyrpa í útsetningum kvartettsins.
Umsjón: Arndís Björk Ásgeirsdóttir.


Að loknum 4. lestri Völsunga sögu ræðir Ragnheiður Gyða Jónsdóttir við Kristján Bersa Ólafsson um norræna trú og hugsanlegan uppruna hennar og inn í þáttinn er brugðið sjónvarpsupptöku þar sem Jón Helgason segir sögu af sér og Óðni (13,30 mín.)
Frumflutt 25.03.1993


frá Veðurstofu Íslands
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Reynir Grétarsson geystist óvænt fram á ritvöllinn í fyrra þegar hann sendi frá sér tvær bækur, ævisöguna Fjórar árstíðir og glæpasöguna Líf sem tilnefnd var til Blóðdropans, íslensku glæpasagnaverðlaunanna. Á dögunum kom út eftir hann bókin Bókasafn gagnslausra hugsana auk þess sem Kortabók Íslands sem hann sendi frá sér fyrir tíu árum var endurútgefin. Og mögulega eru fleiri bækur væntanlegar í ár. Reynir var gestur Sumarmála í dag.
Safn vikunnar er Listasafn Reykjanesbæjar. Um þessar mundir stendur yfir uppsetning sýningarinnar Nína, okkar kærasta Nína / Nína, our dear Nína, þar sem verk Nínu Sæmundssonar eru í samtal við verk nokkra samtímalistamanna. Sýningin er sýningarstýrð af Yndu Eldborg og Viktoríu Guðnadóttur og skoðar lífsverk Nínu út frá hinsegin linsu. Helena Solveigar Aðalsteinsbur sérfræðingur sagði okkur frá.
Og fugl dagsins var fyrstur á dagskrá
Tónlist frá útsendingarlogg 2026-08-24
Páll Óskar Hjálmtýsson, Benni Hemm Hemm - Eitt af blómunum.
Carpenters - (They long to be) Close to you.
Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir - Ég vissi svo vel.
Litefun - SOFIA.
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Í Lestinni í dag ætlum við að leita að sumasmellinum 2026. Var eitthvað eitt lag sem fangaði sumarið í ár eða er hinn brotakenndi samtími búinn að gera út af við stóra sameiginlega sumarsmellinn? Við fáum hóp tónlistargrúskara til að segja hvaða lag einkenndi sumarið hjá þeim og hvað gerir lag að góðu sumarlagi.
Bellamix69, Óli Dóri, Margrét Erla Maack, Dóra Júlía, Una Schram og Einar Karl í Ólátagarði eru ráðgjafar Lestarinnar í dag.
Við sökkvum okkur svo ofan í aðra seríu af rifrildisþáttunum Beef á Netflix. Nú fylgjumst við með erjum tveggja para sem starfa á ríkmannlegum golfvelli. Brynja Hjálmsdóttir segir frá.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Samtökin Heimili og skóli og Reykjavíkurborg taka höndum saman og ætla að bjóða upp á aðstoð við heimanám fyrir grunnskólabörn og foreldra þeirra á Borgarbókasafninu í Kringlunni og Borgarbókasafninu í Gerðubergi. Markmiðið er fyrst og fremst að stuðla að jöfnum tækifærum barna til náms í Reykjavík og veita þeim aðstoð við heimanám sem á þurfa að halda. Sigurður Sigurðsson, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla sagði okkur frá þessu.
Lína Langsokkur birtist landi og þjóð fyrst sem framhaldssaga í Morgunblaðinu vorið 1946 þá undir nafninu Lóa langsokkur, ekki er vitað hvaða ágæti blaðamaður fékk það verkefni að þýða söguna. Sigríður Jónsdóttir starfar á Leikminjasafninu, sérsafni um sviðslistir á Landsbókasafni, og rannsakar um þessar mundir viðtökur, þýðingar og þróun Línu Langsokks á Íslandi. Lína steig fyrst á svið árið 1960 og Sigríður leitar að fólki sem sá sýninguna eða kom að uppsetningunni. Hún kom til okkar.
FIFA Knattspyrnusamböndin á Norðurlöndum hafa gefið út sameiginlega yfirlýsingu um stöðu mála hjá FIFA og segjast ekki lengur treysta forseta þess, Gianni Infantino. Þetta gerist í kjölfarið á því að Infantino lagði til stofnun á FIFA Forward Enterpries tillöguna, þar sem stóð til að selja hluta af mótahaldi og markaðssetningu FIFA, sem og stjórnarháttum og skipulagi FIFA. Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ, var á línunni.
Þjóðin gengur til kosninga um aðildarviðræður við ESB á laugardag og við höldum áfram að ræða málið. Frænkurnar Snærós Sindradóttir, framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar og Erna Bjarnadóttir, stjórnarmaður í Heimssýnar tókust á.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Það var haldið þétt um hönd hlustenda þennan moruninn í formi lagavals.
KK BAND – Á 4. H. Í 5 Hæða Blokk
REGGAE ON ICE – Kyrrlátt Kvöld
THE KOOKS – She Moves In Her Own Way
KAKTUS EINARSSON – Glycerine
ADELE – Hello
LIONEL RICHIE – Hello
FAITH NO MORE – Easy
THE REVIVALISTS – Heart Stop
ROXY MUSIC – Let's stick together
BJARTMAR GUÐLAUGSSON – Dæmi um góðan dag
FONTAINES D.C. – Marianne
THE CURE – Cut Here
MARON BIRNIR REYNISSON, LUIGI, TÓMAS GAUTI ÓTTARSSON – Berdreymi
U2 – Lemon
ELECTRIC LIGHT ORCHESTRA – All over the world
PRINCE & THE NEW POWER GENERATION – The most beautiful girl in the world
MICHAEL KIWANUKA – The Rest Of Me
DOMINIC FIKE – Babydoll
THE VERVE – Sonnet
BUBBI MORTHENS – Sonnetta
ARNMUNDUR ERNST B. BJÖRNSSON, BUBBI MORTHENS – Ég vil deyja ungur (eins seint og auðið er)
KACEY MUSGRAVES – I Believe In Ghosts
BJÖRK – Hidden Place
BJÖRN JÖRUNDUR FRIÐBJÖRNSSON, MEMFISMAFÍAN – Ég kenni þér um
THE BEATLES – Norwegian Wood (This Bird Has Flown)


Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Nákvæm framkvæmd á nýju námsmati í grunnskólum liggur ekki fyrir fyrr en líður á veturinn segir skólastjóri í Garðaskóla. Skólastarfið er að hefjast.
Leiðtogar helstu vinaþjóða Úkraínu funda í Kyiv í dag. Sendiherra Íslands, sem tekur þátt í fundinum, segir mikilvægt að halda áfram stuðningi við Úkraínu. Markmið Rússa sé að valda sem mestum hryllingi.
Icelandair ætlar ekki að flytja störf úr landi vegna kaupa á Fly Play Europe, segir forstjóri Icelandair. Hann vonar að óánægja Félags íslenskra atvinnuflugmanna með kaupin auki ekki spennu í kjaraviðræðum.
Skýrslutöku af erlendum læknum í Reykholtsmálinu var frestað í dag þar sem túlki gekk illa að þýða það sem læknir sagði. Mögulegt er að aðalmeðferð lengist.
Þungur rekstur Sýnar undanfarið er ekki ástæða þess að viðræður slitnuðu um kaup Ása á fjölmiðlum félagsins, segir forstjóri Sýnar.
Hollenska sjónvarpsstöðin sem hefur síðustu ár sent framlag í Eurovision, ætlar að sniðganga keppnina annað árið í röð - því keppnin geti ekki lengur talist hlutlaus.
Stýrivaxtahækkun skilar sér hraðar í aukinni greiðslubyrði óverðtryggðra lána eftir að vaxtadómurinn féll í fyrra að sögn fjármálaráðgjafa. Greiðslubyrði af fjörutíu milljóna króna láni eykst að jafnaði um sjö þúsund krónur á mánuði.
Ríkið hefur samið við Heilsuvernd um að reka nýtt hjúkrunarheimili í Þursaholti á Akureyri. Forstjóri vonar aðframkvæmdir hefjist á næstu mánuðum.
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Doddi stóð vaktina í Popplandi dagsins, ný plata vikunnar Los Bomboneros y sus bombásticos spila Tómas R. Einarsson.
Skemmtilegar sögur á bak við lögin og eðal tónlist í Popplandi dagsins.
Lagalisti dagsins.
SYKURMOLARNIR - Regina.
Atli Dagur Stefánsson - So Long.
BEATS INTERNATIONAL - Dub Be Good To Me.
Justin Timberlake - Rock Your Body.
RIHANNA - Umbrella.
Laufey - Madwoman.
Byrne, David, Ghost Train Orchestra - Everybody Laughs.
BIG COUNTRY - Where The Rose Is Sown.
YUNGAMLI - Pungur á klúbbnum.
John Grant, Kaktus Einarsson - Follow.
STEREO MC's - Connected.
hOFFMAN - Fallbeygðu mig.
ROBERT MILES - Children.
Los Bomboneros y sus bombasticos - Kúbanskur dans.
Revivalists, The - Heart Stop.
James - Sit Down.
VALDIMAR - Sýn.
THE BAMBOOS - Ex-Files.
NEIL DIAMOND - Sweet Caroline.
Haukur Ægir Hauksson - Með allt á hreinu.
Rúnar Eff - Moving In.
Quarashi - Do it again.
DEPECHE MODE - Free Love.
ELTON JOHN - Goodbye Yellow Brick Road.
Dean, Olivia, Fender, Sam - Rein Me In.
Bogomil Font, Los Bomboneros y sus bombasticos - Man ekki neitt.
Ásgeir Trausti Einarsson - Heartbeat.
Aldous Harding, Hawkline, H. - Venus in the Zinnia.
Possibillies - Móðurást.
SUNDAY GIRL - Where is my mind.
SÓLDÖGG - Breyti Um Lit.
LENNY KRAVITZ - The Chamber.
Musgraves, Kacey - I Believe In Ghosts.
Fontaines D.C. - Marianne.
GEORGE MICHAEL - Flawless - Go to the city.
Jarre, Jean Michel - Oxygene - part IV.
Greiningardeildin, Bogomil Font, Emilíana Torrini - Þú stendur alltaf með mér.
David Gray - Don´t forget me
10CC - Dreadlock Holiday
Daði Freyr - I´m out and I wanna go home
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga telur ríkið ganga í bága við samkomulag sem ríki og sveitarfélög gerðu sín á milli í mars á síðasta ári um framkvæmd og fjármögnun þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Í drögum að nýrri reglugerð hefur ríkið endurskilgreint einhliða þá hópa sem falla undir samkomulagið. Jón Björn Hákonarson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, var á línunni.
Matsferill, notkun spjaldtölva og snjalltækja í skólum, símabann og einkunnir í tölustöfum. Allt eru þetta viðfangsefni sem menntaráð Kópavogsbæjar hefur verið að skoða síðustu vikur og mánuði. Karen Rúnarsdóttir, formaður menntaráðs Kópavogsbæjar, kom til okkar og fór yfir stefnur og áherslur bæjarfélagsins í menntamálum þetta skólaárið.
Undanfarnar vikur hafa margir farþegar lýst yfir óánægju með langar biðraðir í Leifsstöð sérstaklega snemma morguns þegar mikið álag er á brottförum. Sumir segja erfitt að átta sig á hvenær sé raunverulega best að mæta í flug, þar sem annars vegar er mælt með að koma með góðum fyrirvara en hins vegar hafa skapast biðraðir þegar flugstöðin opnar og þjónustan fer af stað. Við fórum yfir stöðuna, álagið og hvað farþegar geta gert til að skipuleggja ferðalag sitt sem best með Guðjóni Helgasyni, upplýsingafulltrúa Isavia.
Í síðustu viku héldu VR, LÍV og Fagfélögin opinn fund um áhrif stýrivaxta á fólk og fyrirtæki. Í tæp fjögur ár hafa stýrivextir verið mjög háir á Íslandi og var rætt á fundinum hvort tímabært að staldra við og velta því upp hvort hávaxtastefnan þjóni tilgangi sínum. Jakob Tryggvasvon formaður Rafiðnaðarsambandsins var á línunni hjá okkur.
Nú er minna en vika í að þjóðin ákveði hvort hún vilji hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þessi spurning vefst fyrir mörgum og það er ekki síður erfitt að ákveða sig ef maður skilur ekki lykilhugtök í umræðunni. Hvað er til að mynda verðtrygging? Gylfi Zoëga hagfræðingur var hér á línunni og svaraði þeirri spurningu.
Við rákumst í dag á áhrifamikið viðtal við Thelmu Lind Karlsdóttur í Morgunblaðinu Thelma hefur glímt við mígreni frá barnæsku og lýsir því hvernig sjúkdómurinn hefur haft djúpstæð áhrif á nám, vinnu og daglegt líf. Á unglingsárum urðu köstin svo alvarleg að hún leitaði reglulega á bráðamóttöku og síðar fékk hún örorkumat vegna afleiðinga veikindanna. Thelma er meðal stofnfélaga nýstofnaðra Mígrenissamtaka Íslands, sem ætlað er að vera rödd fólks með mígreni og stuðla að aukinni fræðslu, skilningi og betri þjónustu. Thelma kom í Síðdegisútvarpið.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Mál ungrar móður í Bandaríkjunum hefur vakið athygli um allan heim en hún er ákærð fyrir að hafa orðið þremur börnum sínum að bana. En málið hefur ekki bara vakið upp spurningar um sekt eða sakleysi hennar heldur hefur það einnig hrundið af stað umræðum um andlega heilsu mæðra og geðheilbrigðiskerfið í Bandaríkjunum.
En við byrjum á þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildaviðræðna við Evrópusambandið. Umræðan í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu á laugardaginn hefur að sumu leyti einkennst af ofgnótt á skoðunum en skorti á dýpri lýðræðislegri greiningu að dómi lektors við HÍ.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.
Lagalistinn


Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.
Los Bomboneros y sus bombasticos eru mætt með stórsveitarplötu þar sem 20 hljóðfæraleikarar endurgera tónsmíðar Tómasar R. Einarssonar, eins reyndasta latín-djasstónlistarmanns Íslands. Tómas gaf hljómsveitinni frjálsar hendur til að velja og útsetja úr fjörutíu ára safni sínu, kynslóð sem er 30–40 árum yngri fékk að gera lögin "á sínum forsendum." Sigrún Kristbjörg, Daníel Helgason og Tómas sjálfur ræða hvernig verkefnið varð til, hvað skilur að tónskáld og útsetjara, og hvernig gömul hugarfóstur Tómasar sprungu út á nýjan hátt fyrir framan fullt hús í Salnum.

Tónlist að hætti hússins.