
Útvarpsfréttir.
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Í þættinum verða flutt verk eftir þrjú tónskáld sem líklegt er að hafi haft áhrif á Johann Sebastian Bach á yngri árum hans. Tónskáldin eru Johann Georg Ahle, sem var fyrirrennari Bachs sem organisti við Blasíusarkirkjuna í Mühlhausen, Johann Samuel Drese, sem var yfirmaður Bachs þegar hann starfaði við hertogahirðina í Weimar 1708-1717, og Adam Drese, frændi Johanns Samuels. Einnig verða flutt tónverk eftir Bach sjálfan.
Í þættinum er leikin tónlist sem Vilhjálmur Vilhjálmsson, Anna Vilhjálms og Þuríður Sigurðardóttir sungu ásamt Hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar í útvarpsþáttum 1966 og 1967. Sum þessara laga komu út á hljómplötunni Fundnar hljóðritanir.
Endurflutt er viðtal sem Heimir Hannesson tók við Margréti frá Öxnafelli, sem var miðill og milligöngukona Friðriks huldulæknis við mennska sjúklinga hans. Viðtalið var hljóðritað í ársbyrjun 1960.
Umsjón hefur Jónatan Garðarsson.
(Áður á dagskrá 1998)

frá Veðurstofu Íslands.
Í þáttunum er rætt um þær miklu breytingar sem orðið hafa á íslensku samfélagi frá miðri síðustu öld og fram á okkar daga. Reynt er að gefa hlustendum innsýn í þróun samfélags okkar á þessu tímabili, helstu orsakir og afleiðingar þeirra breytinga sem átt hafa sér stað. Rætt verður um réttarfar, skólamál, skipulagsmál, jafnréttismál og fleira. Í hverjum þætti eru tveir sérfræðingar sem þekkja vel til viðfangsefnisins hverju sinni.
Umsjón: Þorgeir Ólafsson
Samtíminn - umræður um samfélagsbreytingar á liðnum áratugum: Réttarfar.
Í þættinum verður rætt um réttarfar á Íslandi á undanförnum áratugum. Meðal annar er rætt um miklar breytingar á rannsóknum lögreglu vegna framfara í tæknimálum, breytingar á réttarkerfinu þegar lokið var við aðskilnað dómsvalds og framkvæmdavalds, þróun löggjafar um persónuvernd og fleira. Viðmælendur eru Davíð Þór Björgvinsson deildarforseti lagadeildar Háskólans á Akureyri og fyrrverandi dómari við Mannréttindadómstól Evrópu og Landsrétt og Ingibjörg Þorsteinsdóttir dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur.
Séra Jakob Rolland, kaþólskur prestur, með þátttöku fulltrúa ýmissa kirkjudeilda
Ræðumaður: Séra Hilda María Sigurðardóttir, sóknarprestur í Stykkishólmi
Organisti: Márton Wirth
Kór/Sönghópur: Kór Landakotskirkju
Stjórnandi: Márton Wirth
Þessi útvarpsguðsþjónusta er þáttur í Alþjóðlegri samkirkjulegri bænaviku fyrir einingu kristinna manna.Þema fyrsta dags er: Köllun okkar.
TÓNLIST Í MESSUNNI
Fyrir predikun
Forspil: orgelspuni
Á hendur felst þú honum. Höfundar P. Gerhard / Björn Halldórsson
Kom voldugi Andi. Höfundar: Hellen Kennedy / Arinbjörn Vilhjálmsson
Gloria in excelsis Deo. Höfundur: Jean-Paul Lécot
Eftir predikun
Kom, feta þú í fótspor mín. Höfundar A. Silesius / Torfi Ólafsson
Guðs kirkja er byggð á bjargi. Höfundar: S.J. Stone / Friðrik Friðriksson
Eftirspil: orgelspuni
Útvarpsfréttir.
Viðbrögð Evrópuleiðtoga við Grænlandstollum Bandaríkjaforseta hafa verið afar hörð. Viðskiptasamningur ESB og Bandaríkjanna frá í fyrra er í uppnámi og allt útlit er fyrir að hann verði ekki lögfestur á Evrópuþinginu.
Utanríkisráðherra telur ólíklegt að Evrópuríki dragi úr sínum stuðningi við Grænland vegna tollahótana Trumps. Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir málið undirstrika þá óvissu sem ríkir í alþjóðaviðskiptum.
Mannekla og vanfjármögnun veldur því að sumir bíða í nokkur ár eftir augasteinsaðgerð. Skurðlæknir segir þörf á samstilltu átaki og meiri fjármögnun.
Slegið hefur í storm vestast á landinu og verður allhvöss eða hvöss suðaustanátt á landinu í dag. Eitt útkall var hjá björgunarsveitum vegna foktjóns í Reykjanesbæ í nótt.
Ríflega þriðjungur íbúa á Suðurnesjum er með erlent ríkisfang eða tæplega níu þúsund manns. Hlutfallið er hvergi hærra miðað við aðra landshluta.
Ísland mætir Póllandi í dag í öðrum leik sínum á EM karla í handbolta. Með sigri er liðið komið áfram í milliriðil.
Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og skemmtilegan hátt um allt milli himins og jarðar.
Umsjón: Karitas M. Bjarkadóttir
Í þessum þætti Krakkaheimskviða kynnum við okkur Venesúela, hvað gerðist þar í byrjun árs og hvers vegna. Fréttamaðurinn Oddur Þórðarson er gestur þáttarins.
Í þessum þáttum leitast Snorri Helgason við að svipta hulunni af leyndadómsfullri ævi breska tónlistarmannsins Nicks Drake. Hann lést einungis 26 ára að aldri af völdum of stórs skammts þunglyndislyfja á heimili foreldra sinna árið 1974. Nick Drake gaf út þrjár hljómplötur á meðan hann lifði sem hlutu litla sem enga athygli á sínum tíma en eru í dag taldar meðal fremstu verka breskrar þjóðlagatónlistar á 20. öld.
Umsjón: Snorri Helgason.
Annar þáttur. Nick tekur upp sína fyrstu plötu árið 1968, nýorðinn tvítugur. Við kynnumst bresku þjóðlagatónlisarsenunni í sexunni sem Nick Drake varð fljótt hluti af og áhrifum hennar og annarra á tónlistarsköpun Nicks.
Tónhjólið snýst og snýst og upp koma sögur af tónlist, nýrri og gamalli. Ólíkar stefnur og straumar skjóta upp kolli og líka hljóðfæri, hugtök og túlkunarmöguleikar. Hugað verður að einhverju því sem hæst ber á tónlistarsviðinu í heimi sígildrar tónlistar og djasstónlistar á hverjum tíma.
Í þáttaröðinni fjallar Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamaður um fyrstu fótboltamennina frá gömlu Júgóslavíu sem komu til Íslands á árunum 1989-1992 til að spila fótbolta og settust svo hér að. Framleiðandi: Þorgerður E. Sigurðardóttir. Hljóðmynd: Jón Þór Helgason.
Umsjón: Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson
Með góðri frammistöðu Júgóslavana sem komu fyrstir til að spila fótbolta á Íslandi litu íslensk félög sífellt meira til Balkanskagans í leit að styrkingu. Árið 1992 voru minnst 20 leikmenn frá gömlu Júgóslavíu sem spiluðu í efstu fjórum deildum Íslandsmótsins. Rætt er við Milan Stefán Jankovic, Hajrudin Cardaklija, Zoran Daniel Ljubicic, Ejub Purisevic, Hjörvar Hafliðason og Luka Lúkas Kostic .

frá Veðurstofu Íslands
Gestur úr Mannlega þættinum talar um bækur.
Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Ævar Þór Benediktsson leikari og einn vinsælasti rithöfundur landsins. Hann hefur sent frá sér tæplega fjörutíu bækur og fengið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín, bæði innan lands og utan. Nýjasta bókin hans, Skólastjórinn, er tilnefnd Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur og var ein best selda bókin fyrir jólin. Hann stígur svo aftur á svið þessa dagana í einleiknum Kafteinn Frábær, bæði sunnan og norðan heiða. Hann sagði okkur aðeins frá því og svo auðvitað aðallega frá því hvað hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Ævar talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
Sólgos e. Arndís Þórarinsdóttir
Yes, Please e. Amy Poehler
Jim Henson e. Brian Jay Jones
Future Boy e. Michael J. Fox
Stephen King og Kurt Vonnegut
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Árið hófst með hvelli úti í heimi, en hvaða áhrif hafa atburðirnir á komandi kosningar? Kólumbíumenn kjósa á árinu, á meðan Trump reynir að styrkja ítök sín í Suður Ameríku og margir Evrópubúar horfa til kosninga í Ungverjalandi þar sem Viktor Orban hefur haldið um stjórnartauma í 15 ár.
2026 verður ár framhaldsmyndanna í bíó. Við rýnum í dagskrána með manni sem veit allt um Avengers heiminn og alla sem í honum búa og sjálfum Vidda úr Toy Story!
Í þáttunum er rætt um þær miklu breytingar sem orðið hafa á íslensku samfélagi frá miðri síðustu öld og fram á okkar daga. Reynt er að gefa hlustendum innsýn í þróun samfélags okkar á þessu tímabili, helstu orsakir og afleiðingar þeirra breytinga sem átt hafa sér stað. Rætt verður um réttarfar, skólamál, skipulagsmál, jafnréttismál og fleira. Í hverjum þætti eru tveir sérfræðingar sem þekkja vel til viðfangsefnisins hverju sinni.
Umsjón: Þorgeir Ólafsson
Samtíminn - umræður um samfélagsbreytingar á liðnum áratugum: Réttarfar.
Í þættinum verður rætt um réttarfar á Íslandi á undanförnum áratugum. Meðal annar er rætt um miklar breytingar á rannsóknum lögreglu vegna framfara í tæknimálum, breytingar á réttarkerfinu þegar lokið var við aðskilnað dómsvalds og framkvæmdavalds, þróun löggjafar um persónuvernd og fleira. Viðmælendur eru Davíð Þór Björgvinsson deildarforseti lagadeildar Háskólans á Akureyri og fyrrverandi dómari við Mannréttindadómstól Evrópu og Landsrétt og Ingibjörg Þorsteinsdóttir dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur.
Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga. Leiðbeinendur: Þorgerður E. Sigurðardóttir og Anna Marsibil Clausen.
Af hverju lesum við ekki um byltingar í íslenskri sögu? Þátturinn byggir að mestu leyti á viðtölum við tvo íslenska fræðimenn á skrifstofum þeirra í Árnagarði auk hugleiðinga höfundar um efnið.
Umsjón Þór Martinsson

frá Veðurstofu Íslands
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlistin í þættinum:
Holbergssvítan eftir Edvard Grieg
Þættirnir eru: Prelude ; Sarabande ; Gavotte ; Air ; Rigaudon
Þrándheimssólistarnir (Trondheimssolisterne) leika undir stjórn Øvind Gimse
Upptaka fór fram í september 2009 í Selbu Church, í Noregi.
Útgefið á plötunni In folk style árið 2010.
5 Mélodies populaires grecques, M. A 4-5, 9-11 [1904-6] eftir Maurice Ravel. Höfundur ljóðanna er Michel Dimitri Calvocoressi.
Flytjendur eru Malcolm Martineau, píanóleikari og söngvararnir Nicky Spence, tenór og Lorna Anderson sópran sem skipta með sér ljóðunum.
Söngljóðin í flokknum eru eftirfarandi:
Le réveil de la mariée (Nicky Spence syngur)
Là-bas, vers l' église (Lorna Anderson syngur)
Quel galant m'est comparable (Nicky Spence syngur)
Chanson de cueilleuses de lentisques (Lorna Anderson syngur)
Tout gai! (Nicky Spence syngur)
Útgefið á plötunni The Complete Songs of Ravel 2025.
Children's corner eftir Claude Achille Debussy.
Þættirnir eru:
1. Dr. Gradus ad Parnassum
2. Jimbo's Lullabye
3. Serenade for the doll
4. The snow is dancing
5. The little shepherd
6. Golliwogg's Cakewalk
Prófessor Haraldur Sigurðsson leikur á píanó.
Fyrst útvarpað 9. janúar 1966.
1. þáttur, Intermezzo og 3. þáttur, Alla marcia úr Karelia-svítunni op. 11 eftir Jean Sibelius. Sinfóníuhljómsveit Íslands leikur undir stjórn Petri Sakari.
Útgefið á plötunni Sibelius 1999.
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Hér lýkur að segja frá Höskuldi Jónssyni, sem Bólu-Hjálmar skrifaði um, en síðan er gluggað í frásögn Hjálmars af Eyvindi Jónssyni bónda og smið á 17. öld en hann var sérlega frægur fyrir bátasmíði sína og eru af því rómaðar sögur sem Hjálmar skráði mjög skemmtilega.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.
Það er rigning og rok. Læsið ykkur inni, hamist við að gera ekki neitt, nema hlusta á Freyvang. Látið undan letinni; hún mun leiða ykkur inn á nýjar og spennandi brautir. Letin er hreyfiafl, spennistöð, hleðsla og unaður.
Móeiður Júníusdóttir - The end of the tunnels.
Fríða Dís Guðmundsdóttir - Fall river.
Baggalútur - Má ég sjá mangóið þitt?
Jaquline Taieb - 7 heure du matin
Shirley Bassey - Jezahel
Hildur - Dúnmjúk
The Clash - Guns of brixton
A$AP Rocky - Robbery
Mata - Bede Prezydentem
Paul Weller - Gravity
Páll Óskar Hjálmtýsson, Benni Hemm Hemm - Punktarnir tveir.
Skatalites - Two for one.
Teitur Magnússon - Gullauga.
Dolly Parton - Coat of many colors.
Gorillaz - The God of Lying.
RED HOT CHILI PEPPERS - Under The Bridge.
Útvarpsfréttir.
Viðbrögð Evrópuleiðtoga við Grænlandstollum Bandaríkjaforseta hafa verið afar hörð. Viðskiptasamningur ESB og Bandaríkjanna frá í fyrra er í uppnámi og allt útlit er fyrir að hann verði ekki lögfestur á Evrópuþinginu.
Utanríkisráðherra telur ólíklegt að Evrópuríki dragi úr sínum stuðningi við Grænland vegna tollahótana Trumps. Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir málið undirstrika þá óvissu sem ríkir í alþjóðaviðskiptum.
Mannekla og vanfjármögnun veldur því að sumir bíða í nokkur ár eftir augasteinsaðgerð. Skurðlæknir segir þörf á samstilltu átaki og meiri fjármögnun.
Slegið hefur í storm vestast á landinu og verður allhvöss eða hvöss suðaustanátt á landinu í dag. Eitt útkall var hjá björgunarsveitum vegna foktjóns í Reykjanesbæ í nótt.
Ríflega þriðjungur íbúa á Suðurnesjum er með erlent ríkisfang eða tæplega níu þúsund manns. Hlutfallið er hvergi hærra miðað við aðra landshluta.
Ísland mætir Póllandi í dag í öðrum leik sínum á EM karla í handbolta. Með sigri er liðið komið áfram í milliriðil.
Á Sportrásinni fylgist Doddi með því sem er að gerast í íþróttalífinu hér heima og erlendis. Helstu íþróttafréttir vikunnar og hvað er framundan með góðri aðstoð íþróttadeildar RUV. Ásamt gæða sunnudags tónlist.
Sportrásin, ekki bara fyrir þá sem hafa gaman af sportinu!
Emvrópumótið í handbolta var áberandi í þætti dagsins.
Gunnlaugur Jónsson hélt áfram með viðtal sitt við Dag Sigurðsson þjálfara króatíska landsliðsins í handbolta.
Stefán Pálsson, sagnfræðingur talaði um mögulegt ævintýri Hearts í Skotlandi en þeir sitja í efsta sæti skosku deildarinnar. Ekkert lið utan Glaskow hefur unnið deildina í rúm 40 ár.
Helena Sverrisdóttir og Hallveig Jónsdóttir körfubolta spekingar kíktu í heimsókn og ræddu gífurlega spennu í úrvalsdeild kvenna í körfubolta.
Helga Margrét Höskuldsdóttir mætti með Kára Kristján Kristjánsson og Ólaf Stefánsson í upphitun fyrir leik Íslands og Póllands á EM í handbolta.
Lagalisti Sportrásarinnar
Una Torfadóttir - Yfir strikið.
DOUBLE - The Captain Of Her Heart.
Proclaimers - I'm on my way.
Djo - End of Beginning.
Tame Impala - Dracula.
KINGS OF LEON - Sex On Fire.
Curtis Mayfield - Move on Up.
Warmland - All for All.
Echo & The Bunnymen - The Killing Moon.
GDRN - Af og til.
Empire of the sun - Walking On A Dream.
VALDIMAR - Karlsvagninn.
SUGARCUBES, SUGARCUBES - Hit.
MANFRED MANN - Blinded by the light.
ROBYN - Dancing On My Own.
TRAVIS - Sing.
Valgeir Guðjónsson, Jagúar og félagar - Einn fyrir alla í blíðu og stríðu (Handboltalandsliðið).
HLJÓMSVEITIN ÉG - Handboltaráð (Hljómsveitarinnar Ég).
CREED - My own prison (radio edit).

Bein útsending frá leikjum Íslands á EM karla í handbolta 2026.
Bein útsending frá leik Póllands og Íslands á EM karla í handbolta.

Blönduð tónlist sem fer vel á meðan sunnudagssteikin mallar í ofninum.

Fréttastofa RÚV.
Á sunnudögum opnar Rósa Suðupottinn og býður hlustendum í fjölbreytt tónlistarferðalag þar sem jazz, trip hop, heimstónlist og fleiri stefnur mætast í nútímanum.
Of Monsters and Men - Ordinary Creature
Rachel Kitchlew feat Sholto - Mammone
Momoko Gill Heavy
Konteks - City Samba ( Orchestral Rework )
anaiis - Moonlight
K.OG & The Zongo Brigade - Suro Nipa
Ego Ella May - What you waiting for
Dolly Parton - The Bargain Store
Teitur Magnússon - Háflóð
Fea feat Thom Yorke - Traffic Lights
Ireke - Abanije
Kári Egilsson - Midnight Sky
Cosmic Collective - Yatagarasu
Ívar Klausen - All will come to pass
Kuna Maze - Maina
Cabo Verde Novo - Black People
Nina Lizell - Mare mare mare
David Axelrod - Holy Thursday
BKPM - Vafið í plasti
Dana and Alden - Obsidian
Saya Gray - AA bouquet for your 180 face
Nubiyan Twist - Red Herring
Keshavara - Aqua Rāag
Snoop Dogg - Slid Off
Automatic - Black Box
Cerrone - Freak Connection
Pálmi & Rakel - 1000 X Já
Daphni - Good night baby
Fiorious - Cherry Pop ( Dub mix)
Fadaei - Tehran Paris
Tame Impala - Borderline
Vanja Santos - Ogum
Nation of Language - Wounds of love
Gaz - Sing sing
Seph Strange - Special feelings
Knackered - 3v3n th0
Robyn - Dopamine ( Jamie XX Remix )
Donna Summer - I feel love
Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.
Hversu oft er hægt að skrifa GDRN & Tómas R í eina þáttarlýsingu? Svarið er amk þrisvar, en það er örugglega hægt að gera betur. Þau mæta með glænýja plötu sem er plata vikunnar á Rás 2 þessa vikuna, við setjumst niður og ræðum saman en hlustum svo á kynningar fyrir lög plötunnar.