10:15
Sprengjan sem sprakk
4. þáttur

Austurland á fimmta áratug síðustu aldar. Frásagnir tengdar hernámi Breta þar.

Atburðir sem aldrei liðu úr huga þeirra sem tókust á við lífið í kjölfar þeirra.

Umsjón og dagskrárgerð: Guðrún Hálfdánardóttir

Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.

Áföll geta mótað fólk fyrir lífstíð og því miður er það ekki fyrr en á síðustu árum sem það þykir eðlilegt að tala um hlutina. Fólkið á Ási og í Veturhúsum talaði aldrei um þá lífsreynslu sem það gekk í gegnum á fimmta áratug síðustu aldar. Viðmælendur í þættinum eru: Baldur Davíðsson, Edda Emilsdóttir, Friðþór Eydal, Sigrún Sigurðardóttir og Sturla Pálsson.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 41 mín.
,