14:30
Kúrs
Töfrar loftskeytanna

Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga. Leiðbeinendur: Þorgerður E. Sigurðardóttir og Anna Marsibil Clausen.

Hundrað ár eru liðin frá fyrstu formlegu útvarpssendingunni á Íslandi, sem fór fram í

Loftskeytastöðinni þann 18. mars 1926. Töfrar loftskeytatækjanna leiða hlustendur inn í upphafsár útvarpsmiðlunar

og að augnablikinu þegar rödd barst yfir hafið og útvarpið tók að tengja land og þjóð. Með frásögn, tónlist og

hljóðbrotum fá hlustendur að kynnast frumkvöðlastarfi Ottós B. Arnars, loftskeytafræðingsins sem stóð á bak við

draumkenndar tilraunaútvarpssendingar og fyrstu útvarpstöðina, H.F. útvarp. Í seinni hluta þáttarins stígur tæknin

sjálf fram, þegar rafeindavirkinn Sigurður Harðarson segir frá fyrstu tækjunum, danstónlistinni sem kviknaði úr suði

og þeim töfrum sem breyttu einangruðu landi í hlustandi samfélag.

Umsjón: Anna Diljá Sigurðardóttir

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 25 mín.
,