
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Íbúar í borginni Kherson í Úkraínu fara síður út þegar veðrið er gott. En þegar það er þoka, rigning og snjór má búast við að sjá fólk á gangi úti við. Og ástæðan? Skyggnið er verra og þá eru minni líkur á að fólk sé sært eða drepið af drónum Rússlandshers. Kherson er í suðurhluta Úkraínu, við ána Dnipro. Hinum megin við ána eru rússneskir hermenn sem herja á borgarbúa alla daga með drónum. Á drónunum er myndavél og sprengiefni. Sá sem stýrir dróna sér því hvert hann stefnir og viljandi er þeim beint að fólki á gangi úti, jafnvel börnum, og að bílum á ferð. Borgarbúar kalla þetta „human safari“ eða mannaveiðar. Það sé eins og Rússarnir séu á eftir almennum borgurum til að særa þá eða drepa. Dagný Hulda Erlendsdóttir fjallar um málið.
Anthony Kim vann golfmót á dögunum. Kylfinga vinna golfmót vikulega, af hverju er þetta svona merkilegt? Jú kannski vegna þess að Anthony Kim hafði ekki unnið golfmót í að verða 15 ár. Hann var með þeim bestu þegar hann var yngri, rétt rúmlega tvítugur og hann átti framtíðina fyrir sér þegar hann meiddist. Þessi meiðsli höfðu gríðarleg andleg áhrif á hann og hann leiddist svolítið inn á ranga braut í lífinu og hætti alfarið að spila golf. Eftir rúman áratug af áföllum og neyslu nær hann sér aftur á beinu brautina og byrjar aðeins að fikta við golf aftur, þá með hvatningu konu sinnar og lítillar dóttur. En hann á langt í land með að geta orðið góður á nýjan leik. En rétt eins og hann sigraði fíknina þá náði hann að yfirstíga þessa miklu hindrun, að komast aftur í fremstu röð. Þannig þetta er ekki bara saga af einhverjum golfara, heldur þroska- og batasaga einhvers sem hafði gefist upp á lífinu. Og kannski sönnun þess að það sé hægt að snúa við blaðinu, jafnvel í verstu mögulegu aðstæðum. Oddur Þórðarson segir okkur söguna alla.