07:03
Morgunvaktin
Friðarmenning, þýsk stjórnmál og raddöndin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Rætt var um frið, friðarmenningu og friðarboðskap. Viðmælandi var Gunnar Hersveinn, heimspekingur, rithöfundur og friðarsinni.

Arthúr Björgvin Bollason sagði frá úrslitum fylkiskosninganna í Baden Würtemberg á sunnudag þar sem Græningjar héldu velli. Hann sagði líka frá komu þýskra sjónvarpsmanna til landsins og umfjöllun þeirra um íslensk stjórnmál og atvinnulíf.

Fjallað var um röddina og raddböndin í síðasta hluta þáttarins. Þóra Másdóttir, dósent í talmeinafræði við HÍ, ræddi efnið vítt og breitt.

Tónlist:

Perhaps love - John Denver og Placido Domingo,

Komdu með mér suður - Guðmundur Jónsson,

Píanósónata no.3 e. Scriabin - Yuja Wang,

Kannski er ástin - Eyjólfur Kristjánsson og Berþór Pálsson.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,