Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Rætt var um frið, friðarmenningu og friðarboðskap. Viðmælandi var Gunnar Hersveinn, heimspekingur, rithöfundur og friðarsinni.
Arthúr Björgvin Bollason sagði frá úrslitum fylkiskosninganna í Baden Würtemberg á sunnudag þar sem Græningjar héldu velli. Hann sagði líka frá komu þýskra sjónvarpsmanna til landsins og umfjöllun þeirra um íslensk stjórnmál og atvinnulíf.
Fjallað var um röddina og raddböndin í síðasta hluta þáttarins. Þóra Másdóttir, dósent í talmeinafræði við HÍ, ræddi efnið vítt og breitt.
Tónlist:
Perhaps love - John Denver og Placido Domingo,
Komdu með mér suður - Guðmundur Jónsson,
Píanósónata no.3 e. Scriabin - Yuja Wang,
Kannski er ástin - Eyjólfur Kristjánsson og Berþór Pálsson.

07:30

08:30

Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Við fræddumst í dag um það sem kallast ACT-nálgunin, en samkvæmt Rúnari Helga Andrasyni, er það sálfræðileg nálgun sem snýst í grunninn um það að hætta tilgangslausri baráttu við erfiðar hugsanir og tilfinningar. En Rúnar, sem er sérfræðingur í klínískri sálfræði og er yfirsálfræðingur á Reykjalundi hefur nýtt sér þessa aðferð í starfi sínu bæði á Reykjalundi og hjá VIRK. Rúnar kom í þáttinn og sagði okkur betur frá ACT í dag.
Hvernig er hægt að skapa heilbrigða vinnustaðamenningu? Við heyrðum í þættinum af málþingi sem fer fram á fimmtudaginn þar sem fjallað verður einmitt um vinnustaðamenningu í leik- og grunnskólum í framhaldi af samstarfsverkefni Vinnueftirlitsins, Kennarasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Dr. Sigrún Gunnarsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, sem hefur leitt verkefnið og stýrt framkvæmd þess var hjá okkur í Efstaleitinu og fyrir norðan í stúdíó RÚVAK var Hafdís Ólafsdóttir, leikskólastýra á Klöppum, Akureyri. En Klappir eru einn af fimm þátttökuskólum verkefnisins og hún mun lýsti reynslu sinni af verkefninu.
Og svo var það Heilsuvakt dagsins með Helgu Arnardóttur. Það er sjaldan rætt við fólk sem glímir við langvinnt krabbamein og lifir þokkalegu lífi með sjúkdómnum. Thelma Björk Jónsdóttir fatahönnuður, listgreina- og jógakennari greindist með brjóstakrabbamein fyrir tveimur árum og í ljós kom að meinið var einnig komið í beinin að litlum hluta. Thelma fór ekki í hefðbundna lyfjameðferð eins og flestir gera heldur tekur hún líftæknilyf í hverjum mánuði sem halda sjúkdómnum niðri. Hún var andlit bleiku slaufunnar í fyrra með sína mögnuðu sögu og þar fyrir utan hannaði hún slaufuna sjálfa. Herferðin hét Listin að lifa með krabbameini og hlaut tilnefningu til lúðursins í flokknum almannaheillauglýsingar. Helga hitti hana á dögunum og ræddi við Thelmu um hvað hún gerir til að vera jákvæð og láta ekki óttann stjórna sér.
Tónlist í þættinum:
Ó, ljúfa líf / Flosi Ólafsson (Pops & Doddoge, texti Flosi Ólafsson)
Tasko tostada / Hljómar (Rúnar Júlíusson)
Hoppsa bomm (Á skíðum skemmti ég mér ) / Helena Eyjólfsdóttir og Hljómsveit Ingimars Eydal (H. Meyer, texti Ásta Sigurðardóttir og Birgir Marinósson)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Útvarpsfréttir.

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Kerfið er safnvarp margra ólíkra þáttaraða sem eiga það sameiginlegt að taka á mismunandi málefnum innan kerfisins hverju sinni.
Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir
Kerfið er safnvarp margra ólíkra þáttaraða sem eiga það sameiginlegt að taka á mismunandi málefnum innan kerfisins hverju sinni. Í safninu eru þegar þáttaraðirnar Læsi, Kaflaskil og Stakkaskipti sem allar fjalla um menntamál með einhverjum hætti, en menntakerfið verður áfram viðfangsefni Kerfisins næstu fimm þriðjudaga. Gestir í þessum fyrsta þætti eru Gunnar Gíslason og Rúnar Sigþórsson.


Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Hér segir frá gagnrýni sem Anna á Moldnúpi ("fjósakona sem fór út í heim") setti fram á skáldsögu Ólafs Jóhanns Sigurðssonar, Fjallið og draumurinn, árið 1944. Hún taldi bókina skelfilega lýsingu á sveitalífi og höfundi ekki til sóma. Ólafur Jóhann svaraði fyrir sig fullum hálsi og Anna svaraði þá enn. Í ritdeilunni birtist ólíka afstaða þeirra til bókmennta og samfélags og kynjaviðhorf koma og við sögu.

Útvarpsfréttir.

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.


Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Nokkur vel valin lög

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.

Tónleikur er þáttur um tónlistarstefnur og tónlistarfræði, tónlistarmenn, tónskáld og tónlistarflytjendur.
Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir
Áður á dagskrá veturinn 2008-2009
Frá því Tónleikurinn fór aftur af stað síðastliðið haust hafa strengjakvartettar verið í brennidepli. Nú er komið að þáttaskilum í sögu strengjakvartettanna og Tónleiksins um leið og hér eftir munu skiptast á strengjakvartettar 20. aldarinnar og sögur af tónlistarmönnum sem hafa farið sínar eigin leiðir í túlkun og sköpun. Í þessum þætti verður leikin tónlist með fiðluleikaranum Yehudi Menuhin og samstarfsmönnum hans af ólíkum toga t.d. franska jassfiðlaranum Stephan Graphelli og indversku tónlistarmönnunum Ravi Shankar sítarleikara og Alla Rakha tablaleikara.

Tónlistarhljóðrit frá ýmsum tímum úr safni útvarpsins

Kerfið er safnvarp margra ólíkra þáttaraða sem eiga það sameiginlegt að taka á mismunandi málefnum innan kerfisins hverju sinni.
Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir
Kerfið er safnvarp margra ólíkra þáttaraða sem eiga það sameiginlegt að taka á mismunandi málefnum innan kerfisins hverju sinni. Í safninu eru þegar þáttaraðirnar Læsi, Kaflaskil og Stakkaskipti sem allar fjalla um menntamál með einhverjum hætti, en menntakerfið verður áfram viðfangsefni Kerfisins næstu fimm þriðjudaga. Gestir í þessum fyrsta þætti eru Gunnar Gíslason og Rúnar Sigþórsson.

Skáldsaga Halldórs Laxness um hinn 18 ára gamla Stein Elliða kom út árið 1927 þegar Halldór var sjálfur 25 ára gamall.
Þessi saga um leit ungs manns að eigin lífsskoðunum þótti marka tímamót í íslenskri bókmenntasögu.
Valdimar Örn Flygenring las söguna fyrir útvarpið árið 1991.
Í 5., 6. og 34. lestri les Bára Lyngdal Magnúsdóttir ásamt Valdimar Erni og í 7. og 8. lestri les Guðrún S. Gísladóttir ásamt Valdimar.


frá Veðurstofu Íslands

Svanhildur Óskarsdóttir les sálmana í hljóðritun frá árinu 1998.
Árið 1944 var tekinn upp sá siður hjá Ríkisútvarpinu að lesa alla Passíusálma Hallgríms Péturssonar á föstunni.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Við fræddumst í dag um það sem kallast ACT-nálgunin, en samkvæmt Rúnari Helga Andrasyni, er það sálfræðileg nálgun sem snýst í grunninn um það að hætta tilgangslausri baráttu við erfiðar hugsanir og tilfinningar. En Rúnar, sem er sérfræðingur í klínískri sálfræði og er yfirsálfræðingur á Reykjalundi hefur nýtt sér þessa aðferð í starfi sínu bæði á Reykjalundi og hjá VIRK. Rúnar kom í þáttinn og sagði okkur betur frá ACT í dag.
Hvernig er hægt að skapa heilbrigða vinnustaðamenningu? Við heyrðum í þættinum af málþingi sem fer fram á fimmtudaginn þar sem fjallað verður einmitt um vinnustaðamenningu í leik- og grunnskólum í framhaldi af samstarfsverkefni Vinnueftirlitsins, Kennarasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Dr. Sigrún Gunnarsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, sem hefur leitt verkefnið og stýrt framkvæmd þess var hjá okkur í Efstaleitinu og fyrir norðan í stúdíó RÚVAK var Hafdís Ólafsdóttir, leikskólastýra á Klöppum, Akureyri. En Klappir eru einn af fimm þátttökuskólum verkefnisins og hún mun lýsti reynslu sinni af verkefninu.
Og svo var það Heilsuvakt dagsins með Helgu Arnardóttur. Það er sjaldan rætt við fólk sem glímir við langvinnt krabbamein og lifir þokkalegu lífi með sjúkdómnum. Thelma Björk Jónsdóttir fatahönnuður, listgreina- og jógakennari greindist með brjóstakrabbamein fyrir tveimur árum og í ljós kom að meinið var einnig komið í beinin að litlum hluta. Thelma fór ekki í hefðbundna lyfjameðferð eins og flestir gera heldur tekur hún líftæknilyf í hverjum mánuði sem halda sjúkdómnum niðri. Hún var andlit bleiku slaufunnar í fyrra með sína mögnuðu sögu og þar fyrir utan hannaði hún slaufuna sjálfa. Herferðin hét Listin að lifa með krabbameini og hlaut tilnefningu til lúðursins í flokknum almannaheillauglýsingar. Helga hitti hana á dögunum og ræddi við Thelmu um hvað hún gerir til að vera jákvæð og láta ekki óttann stjórna sér.
Tónlist í þættinum:
Ó, ljúfa líf / Flosi Ólafsson (Pops & Doddoge, texti Flosi Ólafsson)
Tasko tostada / Hljómar (Rúnar Júlíusson)
Hoppsa bomm (Á skíðum skemmti ég mér ) / Helena Eyjólfsdóttir og Hljómsveit Ingimars Eydal (H. Meyer, texti Ásta Sigurðardóttir og Birgir Marinósson)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON

Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Rósa Björk Brynjólfsdóttir var kjörin formaður Vinstri grænna á landsfundi flokksins um helgina. Rósa sneri aftur til liðs við VG árið 2024 en hún var kjörin á þing fyrir flokkinn árið 2016, sagði sig úr honum árið 2020 og gekk til liðs við Samfylkinguna. VG á ekki fulltrúa á þingi og mældist með fjögurra prósenta fylgi í síðasta þjóðarpúlsi Gallup. Flokkurinn stendur því á tímamótum og við fengum nýjan formann í heimsókn til að segja okkur hvernig hún ætlar að koma VG á kortið á ný.
Kvikmyndin Undir Ísnum verður frumsýnd í vikunni en hún fjallar um vinahóp sem svindlar sér inn í dularfullt verkefni þar sem þeir þurfa að ná í demant á Suðurskautið í gamla sovéska námu. Í fyrstu virðist verkefnið vera einfalt en fljótlega kemur í ljós að það er meira sem býr undir ísnum en einungis demanturinn. Leikstjórinn Kristján Sturla Bjarnason og leikararnir Theodór Gísli og Kristján Saenz kíktu til okkar.
Guðlaug Ólöf Sigfúsdóttir reynir nú með aðstoð Frakka að komast frá Barein, þar sem hún hefur búið ásamt fjölskyldu sinni síðastliðin 14 ár. Við heyrðum í henni í Morgunútvarpinu fyrir skömmu en þá kepptist loftvarnakerfið í Barein við að skjóta niður eldflaugar Írana, sem þeir skutu að landinu eftir að Bandaríkin og Ísrael gerðu árásir á Íran. Síðastu nætur hafa að sögn Guðlaugar verið hræðilegar í Barein og við könnuðum hvernig ferðalagið gengi.
Það er óhætt að segja að Róbert Már Runólfsson sé mikill áhugamaður um bíla. Hann tók þátt í að smíða rafmagnskappakstursbíl í náminu í vélarverkfræði í Háskóla Íslands og var á sínum tíma yngsti bílablaðamaður landsins. Róbert starfar í dag hjá sænska bílarisanum Volvo, sérfræðingur í þróunardeild fyrirtækisins, og renndi við í Morgunútvarpinu og sagði okkur hvernig maður fer úr því að skrifa um bíl í að búa þá til.
Gæðablóð er ný sýning þar sem rappari úr Vesturbænum, fyrrum knattspyrnumaður úr Garðabænum og tónlistarmaður úr miðbænum sameina krafta sína. Davíð Þór Katrínarson, Jónmundur Grétarsson og Unnsteinn Manuel Stefánsson eiga það sameiginlegt að vera rammíslenskir en geta hver um sig rakið uppruna sinn til tveggja heimsálfa. Þeir deila reynslu sinni í sýningunni og sviðsetja atvik úr eigin lífi sem afhjúpa samfélagið á óvæntan hátt. Þeir skrifa allir handritið ásamt leikstjóranum Þóru Karítas Árnadóttur sem kíkti til okkar ásamt Unnsteini.

07:30

08:30

Létt spjall og lögin við vinnuna.
Sú sem á stærsta Barbie safn heims, Ásgeir Trausti kom í heimsókn og það með gítarinn og Þirðjudagsþemað var Hafnafjörður!
Lagalisti þáttarins:
LAY LOW – Horfið
CYNDI LAUPER – Girls Just Want To Have Fun
Í SVÖRTUM FÖTUM – Meðan Ég Sef
EDIE BRICKELL & THE NEW BOHEMIANS – What I Am
TEITUR MAGNÚSSON – Gullauga
WARMLAND – All for All
JONI MITCHELL – Big Yellow Taxi
ELÍN HALL & IZLEIFUR – Hugsa alltof mikið um þig
INSPECTOR SPACETIME – People in the Video
BOBBY CALDWELL – What You Won't Do For Love
ALORIAN – Týnda kynslóðin
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON – Þó Líði Ár Og Öld
KRUMMI – Smile till it ends
JET BLACK JOE – Falling
SÓLEY STEFÁNSDÓTTIR – Smashed Birds
VÖK – Ég bíð þín
BOTNLEÐJA – Farðu Í Röð
FRIÐRIK DÓR JÓNSSON – Þessi kjóll
JÓN JÓNSSON & UNA TORFADÓTTIR – Vertu hjá mér
SCOBE feat. SVALA BJÖRGVINS – Was It All It Was
BUBBLEFLIES – If its kinky?
SÚREFNI – Unfold
WOOFER – Táfýla
ÚLPA – Dinzl
ÁSGEIR TRAUSTI – Afterglow
ÁRNÝ MARGRÉT – Hakk og spaghettí
RADIOHEAD – Fake Plastic Trees
BRIMBROT – Kling Klang
THIN LIZZY – The Boys Are Back In Town
VALDIMAR – Tenerife
FUTURE ISLANDS – King of Sweden
OLIVIA DEAN – Nice To Each Other
HJÁLMAR – Manstu
QUARASHI – Tarfur
RAGNHEIÐUR GRÖNDAL – Má ég?
CAMERON WINTER – Love Takes Miles
JJEROME87 & ALT‑J – Brush Me Like A Horse
THE BYRDS – All I Really Want To Do

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Útvarpsfréttir.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.



Útvarpsfréttir.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.


Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Í Undiröldinni heyrir þú nýja íslenska tónlist úr ýmsum áttum sem gæti mögulega slegið í gegn á næstu vikum. Þetta gæti verið popp, raftónlist, rapp, kántrí, þungarokk eða djass - en eina sem er 100% hægt að lofa - er að lögin sem eru spiluð eru ný og íslensk .
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson
Í Rokklandi dagsins/vikunnar kemur Daníel – Danny Pollock í heimsókn, en hann er búin að vera forstöðumaður TÞM Tónlistarþróunarmiðstöðiní meira en 20 ár á Grandanum í Reykjavík. Þar æfa um það bil 40 hljómsveitir alla daga í 15 æfingaherbergjum en nú er uppnám í tónlistarborginni Reykjavík vegna þess að TÞM missir húsnæðið í lok apríl og hvað þá? Við ætlum að spjalla um TÞM og líka gömlu hljómsveitina hans Danna, Utangarðsmenn - og útrásardrauma þeirra sem voru sannarlega til staðar fyrir 45 árum síðan. Og núna fyrir síðustu jól kom plata Utangarðsmanna – Geislvirkir út í viðhafnarútgáfu með aukaplötu sem er öll sungin á ensku.
Europe´s Biggest Gig er sameiginlega útvarpsútsending 5 Evrópskra útvarpsstöðva sem átti sér stað síðasta þriðjudag og gengur út á að kynna nýja tónlist frá þessum 5 sömu löndum fyrir útvarpshlustendum þessarara sömu landa - 5 listamenn/hljómsveitir sem spiluðu LÆV í stúdíóum þessara fimm útvarpsstöðva sem voru BBC Radio One, RTÉ 2 á Írlandi, WDR 1 í þýskalandi og Antenna 3 í Portúgal. Okkar listamaður – þeas okkar Íslendinga og Rásar 2 var Spacestation Hver stöð fékk hálftíma til umráða og við heyrum okkar hluta af þessu prógrammi í Rokklandi.