Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Rætt var um frið, friðarmenningu og friðarboðskap. Viðmælandi var Gunnar Hersveinn, heimspekingur, rithöfundur og friðarsinni.
Arthúr Björgvin Bollason sagði frá úrslitum fylkiskosninganna í Baden Würtemberg á sunnudag þar sem Græningjar héldu velli. Hann sagði líka frá komu þýskra sjónvarpsmanna til landsins og umfjöllun þeirra um íslensk stjórnmál og atvinnulíf.
Fjallað var um röddina og raddböndin í síðasta hluta þáttarins. Þóra Másdóttir, dósent í talmeinafræði við HÍ, ræddi efnið vítt og breitt.
Tónlist:
Perhaps love - John Denver og Placido Domingo,
Komdu með mér suður - Guðmundur Jónsson,
Píanósónata no.3 e. Scriabin - Yuja Wang,
Kannski er ástin - Eyjólfur Kristjánsson og Berþór Pálsson.

07:30

08:30

Veðurstofa Íslands.

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Dánarfregnir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Fólk úr ýmsum áttum flytur stuttar hugleiðingar sem tengjast sama umfjöllunarefni.
Umsjón hefur Þórdís Dröfn Andrésdóttir rithöfundur og aðjunkt við íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands.

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Kerfið er safnvarp margra ólíkra þáttaraða sem eiga það sameiginlegt að taka á mismunandi málefnum innan kerfisins hverju sinni.
Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir
Kerfið er safnvarp margra ólíkra þáttaraða sem eiga það sameiginlegt að taka á mismunandi málefnum innan kerfisins hverju sinni. Í safninu eru þegar þáttaraðirnar Læsi, Kaflaskil og Stakkaskipti sem allar fjalla um menntamál með einhverjum hætti, en menntakerfið verður áfram viðfangsefni Kerfisins næstu fimm þriðjudaga. Gestir í þessum fyrsta þætti eru Gunnar Gíslason og Rúnar Sigþórsson.


Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Hér segir frá gagnrýni sem Anna á Moldnúpi ("fjósakona sem fór út í heim") setti fram á skáldsögu Ólafs Jóhanns Sigurðssonar, Fjallið og draumurinn, árið 1944. Hún taldi bókina skelfilega lýsingu á sveitalífi og höfundi ekki til sóma. Ólafur Jóhann svaraði fyrir sig fullum hálsi og Anna svaraði þá enn. Í ritdeilunni birtist ólíka afstaða þeirra til bókmennta og samfélags og kynjaviðhorf koma og við sögu.

Útvarpsfréttir.

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.


Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Nokkur vel valin lög

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.

Tónleikur er þáttur um tónlistarstefnur og tónlistarfræði, tónlistarmenn, tónskáld og tónlistarflytjendur.
Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir
Áður á dagskrá veturinn 2008-2009
Frá því Tónleikurinn fór aftur af stað síðastliðið haust hafa strengjakvartettar verið í brennidepli. Nú er komið að þáttaskilum í sögu strengjakvartettanna og Tónleiksins um leið og hér eftir munu skiptast á strengjakvartettar 20. aldarinnar og sögur af tónlistarmönnum sem hafa farið sínar eigin leiðir í túlkun og sköpun. Í þessum þætti verður leikin tónlist með fiðluleikaranum Yehudi Menuhin og samstarfsmönnum hans af ólíkum toga t.d. franska jassfiðlaranum Stephan Graphelli og indversku tónlistarmönnunum Ravi Shankar sítarleikara og Alla Rakha tablaleikara.

Tónlistarhljóðrit frá ýmsum tímum úr safni útvarpsins

Kerfið er safnvarp margra ólíkra þáttaraða sem eiga það sameiginlegt að taka á mismunandi málefnum innan kerfisins hverju sinni.
Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir
Kerfið er safnvarp margra ólíkra þáttaraða sem eiga það sameiginlegt að taka á mismunandi málefnum innan kerfisins hverju sinni. Í safninu eru þegar þáttaraðirnar Læsi, Kaflaskil og Stakkaskipti sem allar fjalla um menntamál með einhverjum hætti, en menntakerfið verður áfram viðfangsefni Kerfisins næstu fimm þriðjudaga. Gestir í þessum fyrsta þætti eru Gunnar Gíslason og Rúnar Sigþórsson.

Skáldsaga Halldórs Laxness um hinn 18 ára gamla Stein Elliða kom út árið 1927 þegar Halldór var sjálfur 25 ára gamall.
Þessi saga um leit ungs manns að eigin lífsskoðunum þótti marka tímamót í íslenskri bókmenntasögu.
Valdimar Örn Flygenring las söguna fyrir útvarpið árið 1991.
Í 5., 6. og 34. lestri les Bára Lyngdal Magnúsdóttir ásamt Valdimar Erni og í 7. og 8. lestri les Guðrún S. Gísladóttir ásamt Valdimar.


frá Veðurstofu Íslands

Svanhildur Óskarsdóttir les sálmana í hljóðritun frá árinu 1998.
Árið 1944 var tekinn upp sá siður hjá Ríkisútvarpinu að lesa alla Passíusálma Hallgríms Péturssonar á föstunni.

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Útvarpsfréttir.

07:30

08:30

Létt spjall og lögin við vinnuna.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Útvarpsfréttir.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.



Útvarpsfréttir.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.


Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Í Undiröldinni heyrir þú nýja íslenska tónlist úr ýmsum áttum sem gæti mögulega slegið í gegn á næstu vikum. Þetta gæti verið popp, raftónlist, rapp, kántrí, þungarokk eða djass - en eina sem er 100% hægt að lofa - er að lögin sem eru spiluð eru ný og íslensk .
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson
Í Rokklandi dagsins/vikunnar kemur Daníel – Danny Pollock í heimsókn, en hann er búin að vera forstöðumaður TÞM Tónlistarþróunarmiðstöðiní meira en 20 ár á Grandanum í Reykjavík. Þar æfa um það bil 40 hljómsveitir alla daga í 15 æfingaherbergjum en nú er uppnám í tónlistarborginni Reykjavík vegna þess að TÞM missir húsnæðið í lok apríl og hvað þá? Við ætlum að spjalla um TÞM og líka gömlu hljómsveitina hans Danna, Utangarðsmenn - og útrásardrauma þeirra sem voru sannarlega til staðar fyrir 45 árum síðan. Og núna fyrir síðustu jól kom plata Utangarðsmanna – Geislvirkir út í viðhafnarútgáfu með aukaplötu sem er öll sungin á ensku.
Europe´s Biggest Gig er sameiginlega útvarpsútsending 5 Evrópskra útvarpsstöðva sem átti sér stað síðasta þriðjudag og gengur út á að kynna nýja tónlist frá þessum 5 sömu löndum fyrir útvarpshlustendum þessarara sömu landa - 5 listamenn/hljómsveitir sem spiluðu LÆV í stúdíóum þessara fimm útvarpsstöðva sem voru BBC Radio One, RTÉ 2 á Írlandi, WDR 1 í þýskalandi og Antenna 3 í Portúgal. Okkar listamaður – þeas okkar Íslendinga og Rásar 2 var Spacestation Hver stöð fékk hálftíma til umráða og við heyrum okkar hluta af þessu prógrammi í Rokklandi.