19:45
Lesandi vikunnar
Guðrún Helga Halldórsdóttir

Gestur úr Mannlega þættinum talar um bækur.

Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Guðrún Helga Halldórsdóttir búðareigandi og stundakennari við japönskudeild HÍ. Hún er stödd í Kyoto í Japan og vegna mikils tímamuns hringdum við í hana snemma í morgun og tókum spjallið upp. Við forvitnuðumst aðeins um hana og af hverju hún er stödd í Japan og svo sagði hún okkur auðvitað hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Guðrún talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:

Dagar mínir í Morisaki bókabúðinni e. Satoshi Yagisawa í þýðingu Ugga Jónssonar

Kjörbúðarkonan e. Sayaka Murata í þýðingu Elísu Bjargar Þorsteinsdóttur

Svo talaði hún um áhrif Haruki Murakami á sitt líf.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 14 mín.
,