Í þáttunum Steypiregn kynnir Margrét Kristín Blöndal tónlistarmenn og tónlistarkonur sem hafa átt ríkan þátt í gera heiminn enn betri og fegurri. Í hverjum þætti er einn listamaður tekinn fyrir og verk hans kynnt fyrir hlustendum.
Þættirnir voru áður á dagskrá árið 2014.
Í þessum öðrum þætti umfjöllunar um brasilísku söngkonuna Elis Regina höldum við áfram að fylgjast með ótrúlegum ferli þessarar stórstjörnu Brasilíubúa og því hvernig hún tókst á við lífið eftir að hún skaust eins og ör upp á stjörnuhimininn og lifði afar merkilega tíma í tónlistarsögu Brasilíu.
Tónlistin í þættinum er flutt af Eli Regina og félögum.
Corrida de jangada - Elis Regina.
Magdalena - Elis Regina.
Casa no campo - Elis Regina.
Canto de Ossanha - Elis Regina.
Cais - Elis Regina.
Nada sera como antes - Elis Regina.
O sonho - Elis Regina.
Corcovado - Elis Regina.
Can´t take my eyes of you - Elis Regina.
Mucuripe - Elis Regina.
O que tinha de ser - Elis Regina.
Boia note amor - Elis Regina.
Golden slumbers - Elis Regina.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 12. júlí 2014.
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Í þessum þætti er það norrænt vor sem ræður ríkjum. Flutt verða tónverk sem tengjast vorinu eftir tónskáld frá Norðurlöndum. Verkin sem flutt verða eru „Vorþytur“ eftir Christian Sinding, „Vor“ úr Sinfóníu nr.2 eftir Natanael Berg, „Vorið“ eftir Edvard Grieg, „Vor í hjarta mínu“ eftir Leif Þórarinsson og „Vordraumar“ úr hljómsveitarverkinu „Myndir frá Finnlandi“ eftir Selim Palmgren. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Gunnar Hansson.
Hvernig horfum við á nútíðina og hvernig spáum við í framtíðina? Getum við litið til baka og greint fortíðina? Getum við komist að því hver viðhorf ungs fólks voru árið 1940? En árið 2011? Hvernig hafa hugmyndir fólks breyst á 50 árum? Og hvernig sér það þróunina fyrir sér næstu 50 ár?
Í þáttunum Kynslóðir mætast verður rætt við þrettán Íslendinga sem fæðast og alast upp á ólíkum tímum. Eldri viðmælendurnir eiga það sameiginlegt að hafa fæðst áður en Ísland varð lýðveldi og yngri viðmælendurnir fæddust allir eftir að Gleðibankinn var orðinn að klassík og Perlan að kennileiti í Reykjavík. Í eldri hópnum er yngsti viðmælandinn 73 ára og sá elsti 90 og í yngri hópnum er sá elsti 18 ára gamall og þeir yngstu 14 ára gamlir. Á milli elsta og yngstu viðmælendanna eru 76 ár.
Hvaða hugmyndir hafa þessir einstaklingar um menntun, störf, byggðarþróun, náttúruna, auðlindir, alþjóðamál, íslenska tungu og íslenskan mat? Hverju myndu þeir vilja breyta í íslensku samfélagi? Endurspegla tvær kynslóðir tvö ólík viðhorf? (Áður á dagskrá 2011)
Hvað eiga kynslóðirnar sameiginlegt? Hvað greinir þær að? Hvaða breytingar hafa orðið á hugmyndum fólks á hálfri öld? Hvernig sjá þessar tvær kynslóðir framtíðina fyrir sér? Umsjón: Gerður Jónsdóttir.
Hvernig verða samgöngur í framtíðinni? Hvernig þróast byggð í landinu ? Hverjar verða helstu auðlindir okkar eftir 50 ár? Hvert verður viðhorf til náttúrunnar? Í öðrum þætti Kynslóðir mætast munu viðmælendur velta fyrir sér spurningum er varða samgöngur, byggðarþróun, náttúruna og auðlindir í fortíð, nútíð og framtíð.
Lesarar eru Árni Kristjánsson og Magnús Örn Sigurðsson.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 18. september 2011.

frá Veðurstofu Íslands.
Prestur og predíkari: Sr. Salvar Geir Guðgeirsson
Organisti og kórstjóri: Miklos Dalmay
Kirkjukór Hveragerðis- og Kotstrandarsókna
Séra Salvar Geir Guðgeirsson
Predikari/Ræðumaður: Séra Salvar Geir Guðgeirsson
Organisti: Miklós Dalmay
Kór/Sönghópur: Kirkjukór Hveragerðis- og Kotstrandarsókna
Stjórnandi: Miklós Dalmay
Anna Jórunn Stefánsdóttir les lokabæn.
TÓNLIST Í MESSUNNI:
Forspil: Praeludium í A-moll ( 2‘00 mín) Johann Krieger
Fyrir predikun
763 Ó, Guð, ég veit hvað ég vil (1‘30 mín) T Margareta Melin / Kristján Valur Ingólfsson L Torgny Erséus
272b Hallelúja, dýrð sé Drottni (1‘20 mín) T Helgi Hálfdánarson L Philipp Nicolai
---- Bæn (2‘20 mín) T Jakob Jóhannesson Smári L Þórarinn Guðmundsson
Eftir predikun
246a Nú gjaldi Guði þökk (2’30 mín) T Martin Rinckart/ Helgi Hálfdánarson L Martin Rinckart
Eftirspil: Allemande úr svítu í G-dúr, HWV 441 (2’00 mín) George Friderich Händel
Útvarpsfréttir.
Mikill viðbúnaður er á spænsku eyjunni Tenerife þar sem verið er að flytja farþega á skemmtiferðaskipinu Hondius frá borði.
Íbúar Flóahrepps svara könnun um afstöðu til sameiningar við önnur sveitarfélög samhliða sveitarstjórnarkosningum. Oddviti Flóahrepps sagði í haust að engin knýjandi þörf væri fyrir sameiningu.
Hart er barist í Líbanon þrátt fyrir vopnahlé. 39 voru drepnir í loftárásum Ísraelshers í gær.
Meðalbiðtími eftir innlögn á sjúkrahúsinu Vogi styttist um þriðjung milli áranna 2024 og 2025. Ragnheiður Hulda Friðriksdóttir, forstjóri SÁÁ, segir þróunina endurspegla aukna áherslu samtakanna á dag- og göngudeildarúrræði og snemmtæka íhlutun.
Vladímír Pútín forseti Rússlands segir styttast í að stríðið í Úkraínu líði undir lok.
Framtíð Keirs Starmer forsætisráðherra Bretlands hangir á bláþræði. Sífellt fleira áhrifafólk innan Verkamannaflokksins hvetur hann til afsagnar.
Pípuorgelið í Hveragerðiskirkju safnar ryki og kostar það tæplega fjórar milljónir króna að hreinsa það.
Hlynur Andrésson var grátlega nálægt því að slá eigið Íslandsmet í maraþonhlaupi í Kaupmannahöfn í morgun.
Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og skemmtilegan hátt um allt milli himins og jarðar.
Umsjón: Karitas M. Bjarkadóttir
Í þessum þætti Krakkaheimskviða dveljum við í heimi sjónvarpsins. Gísli Marteinn Baldursson er gestur þáttarins og ræðir við Karitas um Eurovision sem hefst á þriðjudaginn. Í seinni hluta þáttarins kynnumst við fjölmiðlamanninum David Attenborough sem varð 100 ára á föstudaginn.
Umsjón: Elísabet Jökulsdóttir.
Lesarar: Þröstur Leó Gunnarsson og Vilborg Halldórsdóttir.
(frá árinu 2000)
Þriðji þáttur: Taktu mig þá ef þú þorir.
Lesið úr bókum Halldórs Laxness.
Lesarar: Þröstur Leó Gunnarsson og Vilborg Halldórsdóttir.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 18. september 2000.
Styrkt af Menningarsjóði útvarpsstöðva.
Tónhjólið snýst og snýst og upp koma sögur af tónlist, nýrri og gamalli. Ólíkar stefnur og straumar skjóta upp kolli og líka hljóðfæri, hugtök og túlkunarmöguleikar. Hugað verður að einhverju því sem hæst ber á tónlistarsviðinu í heimi sígildrar tónlistar og djasstónlistar á hverjum tíma.
Í Tónhjóli dagsins beinum við hlustum okkar að ástralskri samtímatónlist. Tónlistarmenn sem leggja til efni í þáttinn eru meðal annarra Judith Hamman, Sam Dunscombe, Ben Frost, Anthony Burr og Anthony Pateras.
Tónlist í þættinum:
Af The Long Exhale með Anthony Burr og Anthony Pateras:
doesn’t show og faded into the light mist
Af The traces of a mistake, the most simple one possible the reactions of even younger children með Anthony Pateras og Rohan Drape:
Distance bestows then takes right back
Af Music for Cello and Humming með Judith Hamman:
Down to Dust eftir Anthony Pateras
Af Chroma með Lawrence English og Loscil:
Sienna
Meradalir II með Ben Frost og Francesco Fabris
Two Forests með Sam Dunscombe
Who knows where the time goes með Nina Simone
Aldrei hefur gustað jafn kröftuglega um Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva og nú. En þó pallíetturnar og glimmerið glitri undan ljóskösturunum sprettur sjónarspilið úr rammpólitískum jarðvegi sem, þegar grannt er á litið, hefur alltaf sett sinn brag á keppnina.
Gæti keppnin sungið sitt síðasta 2026?
Gísli Marteinn Baldursson hagar seglum eftir vindvélunum og fylgir blæstri þeirra í gegnum átakasögu Eurovision.
Múrinn fellur, frelsið er allt um kring, og Eurovision kemur út úr skápnum.

frá Veðurstofu Íslands
Gestur úr Mannlega þættinum talar um bækur.
Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Guðrún Helga Halldórsdóttir búðareigandi og stundakennari við japönskudeild HÍ. Hún er stödd í Kyoto í Japan og vegna mikils tímamuns hringdum við í hana snemma í morgun og tókum spjallið upp. Við forvitnuðumst aðeins um hana og af hverju hún er stödd í Japan og svo sagði hún okkur auðvitað hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Guðrún talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
Dagar mínir í Morisaki bókabúðinni e. Satoshi Yagisawa í þýðingu Ugga Jónssonar
Kjörbúðarkonan e. Sayaka Murata í þýðingu Elísu Bjargar Þorsteinsdóttur
Svo talaði hún um áhrif Haruki Murakami á sitt líf.
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Athygli heimsbyggðarinnar var á Venesúela í byrjun árs þegar bandarískir hermenn tóku forseta landsins, Nicolás Maduro og eiginkonu hans Ciliu Flores, höndum og fluttu í fangelsi í New York þar sem þeim er enn haldið. Trump lýsti því yfir að boðað yrði til kosninga og að Bandaríkin tækju yfir olíuframleiðslu landsins. Þrátt fyrir að vera risastórt fréttamál féll það fljótlega í skuggann af öðrum málum, eins og hótunum Trumps um að taka yfir Grænland, árásum Bandaríkjanna og Ísraels á Íran og árásum Ísraela á Líbanon, svo fátt eitt sé nefnt. Í Heimskviðum í dag ætlum við að reyna að glöggva okkur á því hvort eitthvað hafi breyst í Venesúela eftir að Maduro var steypt af stóli. Dagný Hulda Erlendsdóttir fjallar um málið.
Enska fótboltafélagið Brighton and Howe Albion tilkynnti nýlega um byggingu nýs leikvangs sem verður eingöngu fyrir kvennafótbolta. Þetta yrði fyrsti völlur sinnar tegundar í Evrópu en sá fyrsti í heiminum var tekinn í notkun í Kansas City í Bandaríkjunum fyrir tveimur árum. En hvað gerir þessa velli vænlegri fyrir kvennafótbolta og af hverju er ástæða til hafa slíka velli? Hallgrímur Indriðason, sem hefur horft á ófáa fótboltaleikina um ævina, kannar þetta.

Veraldarvefur tónlistarinnar. Lagasyrpur héðan og þaðan úr víðri veröld.
Mahi musicians of Benin - Cengunmé.
Listafólk frá Kamerún - Music for the Buma dance.
Funkees, The - Dancing time.
Aga, Alèmu - Abatatchen hoy - Pater noster.
Waaberi, Mursal, Maryam - Rog rogosho = Changing.
Marhours, Ahmad, Achkar, Ely, Masry, Hussein el, Badoui, Hatem - Saqqarah nights.
Banna, Rim - The first rain.
Xiaolian, Dai - Liushui = Flowing waters.
Charlo - El cantar de los reseros.
Cuevas, Sergio - Golpe llanero.
Baptista, Cyro, Braga, Paulo, Matta, Nilson, Castro-Neves, Oscar, Ma, Yo-Yo, Alves, Helio - Apelo.
Deyhim, Sussan - Negara = Mesmerizes mirror.

frá Veðurstofu Íslands
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlistin í þættinum:
Sónata nr. 1 í D-dúr op. 12 nr. 1 eftir Ludwig van Beethoven. Isabelle Faust leikur á fiðlu, Alexander Melnikov leikur á píanó.
Verkið er í 3 þáttum:
I. Allegro con brio ;
II. Andante con moto. Tema con variazioni ;
III. Rondo. Allegro
Malaguena, op. 165 nr. 3 eftir Fritz Kreisler. Itzhak Perlman leikur á fiðlu, Samuel Sanders leikur á píanó.
Sinfónía nr. 1 í D-dúr eftir Franz Joseph Haydn. Austurrísk-ungverska Haydn-sveitin leikur. Stjórnandi er Adam Fischer.
Þættirnir eru:
1. Presto ;
2. Andante ;
3. Presto
Hljóðritað í júní 1990 í Haydnsaal, Esterházy Palace, Eisenstadt í Austurríki.
Tvö lög efti Mischa Mullov-Abbado:
Blue Deer
Brazil
Viktoria Mullova leikur á fiðlu og Mischa Mullov-Abbado leikur á kontrabassa. Útgefið 2020. Á plötunni Music We Love.
Sfere fermate, lag og texti eftir Sigismondo d’India. Flytjendur eru kammersveitin L'Arpeggiata, þar sem Christina Pluhar stjórnar, leikur á bassalútu og útsetur. Með þeim syngur Bruno de Sá, sópran (karlsópran).
Upptaka fór fram 19.-24. mars 2021 í Grande salle, Studio de l'Orchestra natnional d’Île-de-France. Kom út á plötunni Alla Napoletana árið 2021.
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Líkt og umsjónarmaður hafði áður lesið úr fyrstu smásögum Edgars Allans Poes og Antons Tsékovs er birtust á íslensku, þá leitar hann nú hófanna í smásagnasöfnum Williams Somersets Maughams (1874-1965) en hann var einhver vinsælasti rithöfundur heims á fyrri hluta 19. aldar og sérlega rómaður fyrir smásögur. Hér eru tvær sögur sem eru dæmigerðar fyrir Maugham, ein fislétt skemmtisaga og önnur sem getur nöturlega mynd af þjónum breska heimsveldisins.

Útvarpsfréttir.
Hulda Geirsdóttir er fyrst á fætur á sunnudagsmorgnum á Rás 2. Hún heyrir í fólki víða um land, fær til sín góða gesti og leikur fjölbreytta tónlist að sínum hætti. Notaleg morgunstund með hlustendum.
Pétur Geir Magnússon listamaður var gestur þáttarins í dag og þau Hulda ræddu lífið, listina og lágmyndir sem eru sérstakt áhugamál þessa unga listamanns sem hefur komið með hvelli inn á íslenska listasenu.
Þá var Oddrún Ýr Sigurðardóttir garðyrkjubóndi í Reykási á línunni og sagði frá blómlegu mannlífi og gróðursæld í uppsveitum Suðurlands.
Ekki má gleyma ljúfum tónum snemma dags.
Lagalisti:
Sigríður Thorlacius og Heiðurspiltar - Án þín - Með þér.
Genesis - Taking it all too hard.
Chris Cornell - The keeper.
Clannad & Bono - In a lifetime.
Orri Harðar og Valgerður Jónsdóttir - Hamingjusöm á ný.
Santana - Black Magic Woman.
Peter Gabriel - Solsbury Hill.
Between Mountains - Little sunny flower.
Fleetwood Mac - As long as you follow.
Dixie Chicks - Wide open spaces.
First Aid Kit - Emmylou.
Reynir Haraldsson - Allt sem ég þarf að sjá.
Hera - Dararamm.
Freyr Eyjólfsson mætir með kaffibollann sinn og grúskar í allskonar tónlist frá ýmsum tímum.
Við heiðrum mæður og syngjum um mæður okkar. Gæðum okkur á pizzu og kryfjun hana í leiðinni.
Alfreð Clausen, Hljómsveit Jan Morávek - Mamma mín.
Laddi, Hljómsveit mannanna - Mamma.
Dr. Gunni - Gluggaveður
Melchoir - Kúadelluslamm
Lónlí blú bojs - Mamma grét.
PAUL SIMON - Mother And Child Reunion.
THE BEATLES - Mother Nature's Son.
Pink Floyd - Mother.
Bubbi Morthens - Eintal.
Bubbi Morthens - Allar systur mínar
Daft Punk - Veridis Quo
Tonica & Dominante - Gennarino
Eva, Eva, Eva - Argentina
Adriano Calentano - Prisencolinensiinainciusol
Náttsól - Flýttu þér hægt.
Howlin Wolf - Wang Dang Doodle.
ZOMBIES - Time Of The Season.
Kacey Musgraves - Dry Spell.
FUTURE ISLANDS - King of Sweden.
Adam and the Ants - Stand and Deliver.
Útvarpsfréttir.
Mikill viðbúnaður er á spænsku eyjunni Tenerife þar sem verið er að flytja farþega á skemmtiferðaskipinu Hondius frá borði.
Íbúar Flóahrepps svara könnun um afstöðu til sameiningar við önnur sveitarfélög samhliða sveitarstjórnarkosningum. Oddviti Flóahrepps sagði í haust að engin knýjandi þörf væri fyrir sameiningu.
Hart er barist í Líbanon þrátt fyrir vopnahlé. 39 voru drepnir í loftárásum Ísraelshers í gær.
Meðalbiðtími eftir innlögn á sjúkrahúsinu Vogi styttist um þriðjung milli áranna 2024 og 2025. Ragnheiður Hulda Friðriksdóttir, forstjóri SÁÁ, segir þróunina endurspegla aukna áherslu samtakanna á dag- og göngudeildarúrræði og snemmtæka íhlutun.
Vladímír Pútín forseti Rússlands segir styttast í að stríðið í Úkraínu líði undir lok.
Framtíð Keirs Starmer forsætisráðherra Bretlands hangir á bláþræði. Sífellt fleira áhrifafólk innan Verkamannaflokksins hvetur hann til afsagnar.
Pípuorgelið í Hveragerðiskirkju safnar ryki og kostar það tæplega fjórar milljónir króna að hreinsa það.
Hlynur Andrésson var grátlega nálægt því að slá eigið Íslandsmet í maraþonhlaupi í Kaupmannahöfn í morgun.
Á Sportrásinni fylgist Doddi með því sem er að gerast í íþróttalífinu hér heima og erlendis. Helstu íþróttafréttir vikunnar og hvað er framundan með góðri aðstoð íþróttadeildar RUV. Ásamt gæða sunnudags tónlist.
Sportrásin, ekki bara fyrir þá sem hafa gaman af sportinu!
Sigurður Orri Kristjánsson hlaðvarpsstjórnandi og þúsundþjalasmiður kom og ræddi við okkur úrslitakeppnir í körfubolta á Íslandi og vestanhafs.
Jóhann Skúli Jónsson lögfræðingur hjá Hugverkastofunni og hlaðvarpsstjórnandi kom og ræddi um vörumerki íþróttafólks.
Ósk Gunnarsdóttir var í beinni úr Öskjuhlíðinni þar sem að Bakgarðshlaupið var í fullum gangi.
Orri Eiríksson kom og fór yfir hvað gerir stemminguna í kringum KR svona einstaka.
Theodór Ingi Pálmason ræddi svo að lokum við okkur um úrslitakeppnina í Olís deildunum í handbolta.
Lagalisti:
Við föllum - Bubbi
Kem inn (og rata ekki út) - Úlfur Úlfur
Right Down The Line - Gerry Rafferty
Stadium - Vök
Supersonic - Oasis
Hermenn - Amabadama
Diamonds On The Soles Of Her Shoes - Paul Simon
Meira - Þormóður
Tomorrow Comes Today - Gorillaz
Kids Go Down - Chinese American Bear
Borderline - Tame Impala
Undone (The Sweater Song) - Weezer
Dry Spell - Kacey Musgraves
I'll Follow The Sun - The Beatles
Kramið hjarta - Valgeir Guðjónsson
Runaway - Linkin Park
The Spins - Mac Miller & Mgmt
So Much Trouble In The World - Bob Marley
Praying For Time - George Michael

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Blönduð tónlist sem fer vel á meðan sunnudagssteikin mallar í ofninum.

Fréttastofa RÚV.
Á sunnudögum opnar Rósa Suðupottinn og býður hlustendum í fjölbreytt tónlistarferðalag þar sem jazz, trip hop, heimstónlist og fleiri stefnur mætast í nútímanum.
Alltaf góð stemming í Suðupottinum en Emilíana Torrini var sérstaklega heiðruð í þættinum í tilefni þess að hún var valin Bæjarlistamaður Kópavogs nú á dögunum.
Nu Genea er samstarf tveggja tónlistarmanna frá Napólí og áttu þeir plötu þáttarins “People of the moon”. Hljóðheimur miðjarðarhafs og menningarleg áhrif frá þeirra heimabæ veitir þeim innblástur og setur mikinn karakter í þeirra tónlistarsköpun.
Bogomil Font & Emilíana Torrini - Þú stendur alltaf með mér
Emilíana Torrini - Sunny Road
Céline Dessberg - Selenge
Nu Genea - Acelera
Nu Genea - Onenon
Jembaa Groove – Mokole
ZHeNIIA - Jaane Maryam
The Ugly Fun - Imposter Syndrome
Rachel Kitchlew, Tremendous Aron - Adiós Hansi
Huw Marc Bennett - Pinc Sunset
Teitur Magnússon - Gullauga
Glyders - Moon Eyes
Manteau - Fora de Tom
Frankie - Wings n´ Gills
Patio - Inheritance
Nu Genea - Caré
Bacao Rhythm & Steel Band - Love for the sake of dub
Souleance - Keepin´ On
Momoko Gil, Matthew Herbert - Someone like you
Liz Cooper - Better than ever
Lana del Rey - First Light
Misha Panfilov - Mostra
Tony Allen - The Seed
Juju Rogers - Elohim
Skytturnar - Ég geri það sem ég vil
Emilíana Torrini - Gun
Noga Erez - Stuck in heaven
Maya Ongaku - Iyo No Hito
Sonny Ism - Spend the night
Eric Hilton - The Dharma Lovers
Elia y Elizabeth - Soy una nube ( Bosq remix)
Mauskovic Dance Band - Late night people
Rahill - Yaar
Boards of Canada - Prophecy at 1420 mhz
Flock - Turned Skyward
Nia Archives - Danger
Funny Weather, Little Dragon - Been Thinking
Emilíana Torrini - Gollum´s song
Spennandi tónar bergmála um göngugötuna í Mjóddinni. Indírokk, alternative, lo-fi, dreampop og margt annað áhugavert. Verið velkomin í Mjóddina, þar sem hjartað slær.
Umsjón: Björn Þór Björnsson
Alltaf hlýtt á göngugötunni!
Lagalisti
Dan Van Dango - Óþverri
Spencer Cullum - Don’t go Downtown
Kurt Vile - Chance to Bleed
GIMMY - Things Look Different Now
Courtney Barnett, Waxahatchee - Site Unseen
BRONCHO - Dreamin
Homer, Hether - Deep Sea
Tati Falco - Deber Ser
Widowspeak - If You Change
Connan Mockasin - Mexican Summer
Allah-Las - Zuma 85
Dagmar Zuniga - Even God gets Stuck in Devotion
Buck Meek - Gasoline
Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.
Daði Freyr mætir til Atla í Plötu vikunnar til að kynna nýjustu breiðskífu sína, Too Much Not Enough. Daði ræðir um ákvörðunina að flytja aftur heim til Íslands eftir rúman áratug í Berlín og nýrri nálgun hans að vinna í fyrsta sinn með fjölda annarra lagahöfunda. Í þættinum fer hann yfir sögurnar á bak við lögin, allt frá ástarljóðum til Árnýjar yfir í pælingar um föðurhlutverkið,