12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 10. maí 2026

Útvarpsfréttir.

Mikill viðbúnaður er á spænsku eyjunni Tenerife þar sem verið er að flytja farþega á skemmtiferðaskipinu Hondius frá borði.

Íbúar Flóahrepps svara könnun um afstöðu til sameiningar við önnur sveitarfélög samhliða sveitarstjórnarkosningum. Oddviti Flóahrepps sagði í haust að engin knýjandi þörf væri fyrir sameiningu.

Hart er barist í Líbanon þrátt fyrir vopnahlé. 39 voru drepnir í loftárásum Ísraelshers í gær.

Meðalbiðtími eftir innlögn á sjúkrahúsinu Vogi styttist um þriðjung milli áranna 2024 og 2025. Ragnheiður Hulda Friðriksdóttir, forstjóri SÁÁ, segir þróunina endurspegla aukna áherslu samtakanna á dag- og göngudeildarúrræði og snemmtæka íhlutun.

Vladímír Pútín forseti Rússlands segir styttast í að stríðið í Úkraínu líði undir lok.

Framtíð Keirs Starmer forsætisráðherra Bretlands hangir á bláþræði. Sífellt fleira áhrifafólk innan Verkamannaflokksins hvetur hann til afsagnar.

Pípuorgelið í Hveragerðiskirkju safnar ryki og kostar það tæplega fjórar milljónir króna að hreinsa það.

Hlynur Andrésson var grátlega nálægt því að slá eigið Íslandsmet í maraþonhlaupi í Kaupmannahöfn í morgun.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,