07:03
Morgunvaktin
Eyjagöng, Berlínarspjall og upptökur á James Bond á Íslandi

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Mun sá dagur renna upp að fólk getið ekið milli lands og Eyja; að jarðgöng verði lögð frá Heimaey að suðurströndinni? Það verður að koma í ljós en rannsóknir á berglögum eru hafnar. Að þeim stendur félagið Eyjagöng, þar stendur Haraldur Pálsson í stafni, við ræddum við hann.

Stjórnmál, fótbolti og náttúra voru svo á dagskrá í Berlínarspjalli með Arthuri Björgvini Bollasyni. Þýskaland fór eiginlega á hliðina á dögunum þegar hnúfubakur strandaði í fjöru við smábæ fyrir nokkrum vikum og samfélagið hefur reynt með ýmsum leiðum að koma honum aftur á haf út.

Svo var rifjaður upp stuttur en merkilegur kafli í kvikmyndasögunni. Sumarið 1984 var upphafsatriði James Bond myndarinnar “A View to a kill” tekið upp á Íslandi. Jón Þór Hannesson, kenndur við Saga film, kom að því ævintýri á sínum tíma og sagði okkur frá.

Tónlist:

John Mellencamp - Jack and Diane.

Nico Moreaux - What if Your Eyes Would Only Cry Laughing?

Duran Duran - A View to a Kill.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,