
Bæn og hugleiðing að morgni dags.
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Ísland hafnaði í fjórða sæti á EM í handbolta sem lauk í gær og Laufey Lín hlaut í nót Grammy-verðlaun fyrir plötuna sína A Matter of Time. Spjallað var um jákvæð áhrif velgengni Íslendinga í íþróttum og listum á þjóðarsálina við Guðna Th. Jóhannesson, prófessor í sagnfræði og fyrrverandi forseta Íslands.
Björn Malmquist ræddi við Stefán Hauk Jóhannesson, sendiherra Íslands í Brussel.
Jenný Jóakimsdóttir, starfsmaður Kvenfélagasambands Íslands, sagði frá starfsemi Leiðbeiningarstöð heimilanna. Þar getur fólk fengið góð ráð vegna heimilishalds.
Tónlist:
Forget me not - Laufey,
Snow White - Laufey,
Tough Luck - Laufey,
Kúst og fæjó - Heimilistónar,
Hvert fór mamma þín? - Heimilistónar,
Í dansi með þér - Heimilistónar.

07:30

08:30

Veðurstofa Íslands.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Þriðji þátturinn þar sem allskonar söngvar við ljóð Steins Steinarrs eru dregnir fram. Þó nokkrir lagasmiðir hafa samið lög við sömu ljóðin og eru þau býsna ólík. Lögin í þættinum eru Eins og gengur sem Jóhann Sigurðarson og Íris Guðmundsdóttir syngja, Ræfilskvæði með Grasösnum, Í tvílyftu timburhúsi með Þorsteini Einarssyni, Sýnir með Regínu Ósk Óskardsdóttur, Í draumi sérhvers manns með Jóni Tryggva Unnarssyni, Eldur með Mannakornum, Grautur og brauð með Ellert Borgari Þorvaldssyni, Gömul vísa um vorið með Bjartmari Guðlaugssyni, Brúðkaupsvísa í gömlum stíl með Álftagerðisbræðrum, Gömul skriftarmál með Tovoton Keis og Húsið sefur með Ingrid Örk Kjartansdóttur. Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Grásleppan hefur verið veidd og nýtt gegnum tíðina einkum og sér í lagi vegna gómsætra hrognanna sem eru eftirsótt víða um heim. Áður fyrr var aflanum að stærstum hluta hent eftir að hrognin höfðu verið hirt. Í seinni tíð hefur grásleppan til dæmis verið seld heilfryst til Kína þar sem hún þykir mikið lostæti. Spegill fortíðar - Silfur framtíðar er heiti á viðburði sem verður í Breiðfirðingarbúð á fimmtudaginn. Katrín Rut Bessadóttir, verkefnastjóri í HR er kynningastýra Grásleppunnar, og Eva María Hilmarsdóttir framkvæmdastýra Grásleppunnar komu í þáttinn í dag, en þær fara fyrir hópi kvenna sem hefur það að markmiði að sýna fram á vannýtta möguleika á grásleppu.
Stofnfundur félags um Gefum íslensku séns var haldinn á Ísafirði í síðustu viku. Samnefndu verkefni, Gefum íslensku séns, var hleypt af stokkunum árið 2023 og hefur það markmið að auka vitund fólks í nærumhverfinu um hvað máltileinkun innflytjenda á íslensku felur í sér. Leitast er við að virkja fólk til að sinna hlutverki almannakennara, sem sagt snýr það ekki aðallega að þeims sem eru að læra íslensku, heldur frekar þeim sem kunna íslensku. Ólafur Guðsteinn Kristjánsson, aðjúnkt við HÍ og nýkjörinn stjórnarmaður í félaginu, var á línunni og sagði okkur frekar frá stofnfundinum, félaginu og verkefninu.
Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Svanhildur Óskarsdóttir rannsóknarprófessor á menningarsviði hjá Árnastofnun. Hún sagði okkur frá því hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Svanhildur talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
Night Train to Lisbon e. Pascal Mercier
Blái pardusinn – hljóðbók e. Sigrún Pálsdóttir
Barnæska e. Jona Oberski (þýð. Gyrðir Elíasson)
Hjálparsagnir hjartans e. Péter Esterházy (þýð. Jóna Dóra Óskarsdóttir)
Nafn rósarinnar e. (þýð. Thor Vilhjálmsson)
Ástin fiskanna, Tímaþjófurinn og fyrstu ljóðabækur Steinunnar Sigurðardóttur
Tónlist í þættinum:
Á sjó / Hljómsveit Ingimars Eydal (Don Wayne, texti Ólafur Ragnarsson)
Mamma gefðu mér grásleppu / Jóhann Helgason (Jóhann Helgason)
Farmaður hugsar heim / Elly Vilhjálms og Raggi Bjarna (Þórunn Franz, texti Árelíus Níelsson)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Efla á landamæragæslu, beita endurkomubanni oftar og senda skýr skilaboð um að Ísland sé ekki vænlegur áfangastaður fyrir glæpahópa. Þetta kemur fram í fyrstu stefnu sem gefin hefur verið út um aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi. Dómsmálaráðherra boðar öruggara Ísland.
Forsætisráðherra Noregs segir að krónprinsessa landsins hafi sýnt dómgreindarbrest með samskiptum við Jeffrey Epstein. Þau voru meiri en áður var talið og áttu sér stað eftir að hann hafði játað kynferðisbrot.
Allir flokkar á þingi styðja ályktun um nýja öryggis- og varnarstefnu eftir að varnarsamstarf við Evrópusambandið var tekið út.
Hornfirðingar vilja varanlegar lausnir, sandfangara og varnargarða, til að koma í veg fyrir að sandur hlaðist fyrir innsiglinguna. Breskt dæluskip heldur leiðinni opinni næstu þrjú sumur.
Bankarnir gera ekki ráð fyrir lækkun stýrivaxta á miðvikudag. Greinendur Landsbankans telja vexti eiga eftir að hækka.
Heilsu- og hvatningarverkefnið Lífshlaupið var ræst í nítjánda sinn í morgun. Forseti ÍSÍ segir mikilvægt að viðhalda heilbrigðum lífsstíl.
Tónlistarkonan Laufey hlaut sín önnur Grammy-verðlaun í gærkvöld fyrir plötuna A Matter of Time. Bad Bunny skráði sig í sögubækur verðlaunahátíðarinnar þegar hann hlaut verðlaun fyrir plötu ársins. Margir verðlaunahafar gagnrýndu ICE, innflytjendastofnun Bandaríkjanna.
Janúar var fyrsti heili mánuðurinn í nær átta ár þar sem enginn var skotinn til bana í Svíþjóð.
Frjálsíþróttakonan Eir Chang Hlésdóttir bætti í gær eigið Íslandsmet í 200 metra hlaupi innanhúss - á Norðurlandamótinu í Karlstad í Svíþjóð.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Hvað felst í frumvarpi atvinnuvegaráðherra þegar kemur að framtíð sjókvíaeldis á Íslandi?
Ráðuneytið er að segja að því sem tækni í fiskeldi fleytir fram sé líklegt að aðrar sjálfbærari og umhverfisvænni leiðir muni leysa sjókvíaeldi af hólmi. Þess vegna eru fjárhagslegir hvatar í frumvarpinu sem eiga að ýta undir tækninýjungar í fiskeldi.
Þessi tækni er hins vegar ekki tiltæk í dag og þess vegna er ekki hægt að banna sjókvíaeldi eins og hörðustu gagnrýnendur þess krefjast. Sjókvíaeldi skapar störf og tekjur sem ráðuneytið gerir ráð fyrir að þau geti notað til að þróa umhverfisvænni aðferðir við fiskeldi.
Rætt er um lagafrumvarpið við Daníel Jakobsson, forstjóra laxeldisfyrirtækisins Arctic Fish á Ísafirði, og Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Anna Gyða Sigurgísladóttir ræðir við fólk um einstakar hugmyndir sem mótað hafa skilning okkar á heiminum. Trú, heimspeki og vísindi eru efst á baugi, og kann fortíð og samtíð að vera skeytt saman með hjálp hnýsilegs arkífs ríkisútvarpsins.
Í fyrstu þáttum Meiningar eru hinar ýmsu hliðar Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi skoðaðar. Við byrjum á trúarsöfnuði kaþólskra á Selfossi þar sem nú er verið að byggja nýja kirkju.
„Núna er komið að því að þetta er ekki lengur mögulegt vegna þess að það eru svo margir. Á Selfossi og í kringum Selfoss eru fleiri en þúsund kaþólskir,“ segir David B. Tencer, biskup Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi. Við heimsækjum hann í þættinum og fræðumst fræðast nánar um málið.
Nýja guðshúsið ber heitið Kirkja hins heilaga kross og er tileinkað kirkjunni í Kaldaðarnesi sem á sínum tíma var einnig helguð heilögum krossi Jesú Krists. Við kirkjuna í Kaldaðarnesi stóð kross einn sem mikill átrúnaður hvíldi á. Að gefnu tilefni kynnum við okkur krossinn í Kaldaðarnesi með Dr. Margaret Cormack, miðaldafræðingi sem stúderað hefur íslenska dýrlinga og helgisögur. Sömuleiðis skoðum við aldagamla sögu krossmarksins með hjálp þáttar úr safni RÚV frá 1969 í umsjón Séra Lárusar Halldórssonar og Sigurðar Helga Guðmundssonar.
Við byrjuðum á því að skoða aukna trúrækni ungs fólks á síðasta ári og höldum þeirri rannsókn áfram við og við í þessari þáttaröð.
„Það eru alltaf ný andlit í hverri einustu sunnudagsmessu,“’ segir Rúnar Gerard Ragnarsson, ungur sjúkraliði og félagi í nýstofnuðu Bræðralagi kaþólsku kirkjunnar. Hann segir okkur m.a. frá uppvaxtarárum sínum á Selfossi, söfnuðinum þar og trú sinni almennt.
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlist í þættinum:
Martineau, Malcolm, Keenlyside, Simon - Histoires naturelles, M.50 [1906] : Le paon.
Martineau, Malcolm, Keenlyside, Simon - Histoires naturelles, M.50 [1906] : Le grillon.
Martineau, Malcolm, Keenlyside, Simon - Histoires naturelles, M.50 [1906] : Le cygne.
Martineau, Malcolm, Keenlyside, Simon - Histoires naturelles, M.50 [1906] : Le martin-pêcheur.
Martineau, Malcolm, Keenlyside, Simon - Histoires naturelles, M.50 [1906] : La pintade.
Manuela Wiesler - Ascèses (1967) : Pour que demeure le secret nous tairons jusqu'au silence.
Manuela Wiesler - Ascèses (1967) : Tu surgis de l'absence....
Manuela Wiesler - Ascèses (1967) : Matière, triple abîme des étoiles, des atomes et des génération.
Manuela Wiesler - Ascèses (1967) : Le dieu a créé les rêves pour indiquer la route au dormeur dont.
Manuela Wiesler - Ascèses (1967) : O femme qui ne sais que tu portais en toi le monde.
Faust, Isabelle, Melnikov, Alexander - Sonata nr. 2 in A major op. 12 no. 2 : I. Allegro vivace.
Faust, Isabelle, Melnikov, Alexander - Sonata nr. 2 in A major op. 12 no. 2 : II. Andante, piu tosto allegretto.
Faust, Isabelle, Melnikov, Alexander - Sonata nr. 2 in A major op. 12 no. 2 : III. Allegro piacevole.
Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Pistill um skáldsöguna Flesh eftir David Szalay sem hlaut Booker-verðlaunin 2025 og samtal við Grétu Sigríði Einarsdóttur fréttamann og bókmenntarýni um bókina.
Umfjöllun um Birtíng eftir Voltaire. Bókin sem kom út 1759 er ein frægasta háðsádeila sögunnar um stríð, ofbeldi, misskiptingu og óréttlæti heimsins og á hún stöðugt í samtali við samtímann. Og okkar samtími virðist oft vera fullur af tortímandi öflum, uppgangi fasisma, loftsalgskrísu og stríðsátökum. Er það fréttum að kenna? Eigum við að vera bjartsýn, svartsýn og kannski bara rækta garðinn okkar? Við skoðum hvernig Birtíngur og ferðalag hans um heiminn talar við tímana sem við lifum nú með Ásdísi Rósu Magnúsdóttur prófessor í frönskum bókmenntum við Háskóla Íslands.
Viðmælendur: Gréta Sigríður Einarsdóttir og Ásdís Rósa Magnúsdóttir.
Lesari: Halldór Laxness
Hljóðbrot úr Fréttaannál sjónvarps 2025 og Kastljósi.
Tónlist: For the damaged Coda - Blonde Redhead, It's a Mad Mad Mad Mad World - The Schirelles, Pista (Fresh Start) - Los Bitchos.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Síðastliðnar vikur hefur Víðsjá ferðast um borgarlandslagið með Henný Hafsteinsdóttur minjaverði Reykjavíkur og byggingar sem gætu verið á leið í niðurrif. Í dag hittum við Henny á miklum uppbyggingarreit, Borgartúni 5, sem í daglegu tali er kallaður Vegagerðarreiturinn. Þarna er að finna lágreistar iðnaðarbyggingar frá miðri síðustu öld sem eru meðal fárra minja um liðna tíma innan um háreistar nýbyggingarnar í Borgartúninu.
Rubin Pollock sem getið hefur sér gott orð sem gítarleikari rokkhljómsveitarinnar Kaleo sendi frá sér plötuna Tongue Tied. Á plötunni er þó ekki finna rokktónlist heldur safn ósunginna laga, sem blanda saman tónlistarstefnum á afar lífrænan hátt. Við heyrum í Rubin Pollock í þættinum.
Katla Ársælsdóttir rýnir í Ormstungu, sem frumsýnd var í síðustu viku.
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Íslendingar komust ekki á verðlaunapalla á Evrópumeistaramótina í handbolta sem lauk í gær en Grammy-verðlaunin voru haldin í gærkvöldi, og þar var Íslendingur sem sigraði. Laufey Lín og platan hennar Matter of Time var valin besta platan í flokki hefðbundinnar dægurtónlistar. Laufey vakti athygli fyrir þakkarræðu um tónlistarkennslu.
Á fimmtu öld fyrir krist var uppi í Grikklandi maður sem er í hugum flestra hálfgerð frummynd heimspekingsins. Sókrates var tötrum klæddur meinlætamaður sem hélt til á torgum Aþenu og tók þar fólk tali. Hann spurði það spurninga um hluti sem það átti að vita, en sneri því í hring, og sannfærði það fljótt um að í raun vissi það lítið sem ekkert. Hann var kaldhæðinn og ögrandi talaði um frummyndir og hellakenningar, og var að lokum dæmdur til dauða af samborgurum sínum. Þessa persónu þekkjum við Íslendingar fyrst og fremst í lýsingu nemanda hans Platóns, En Platón er ekki sá eini sem skrifaði um Sókrates. Nú í haust kom út í fyrsta skipti á íslensku, bók sem nefnist Minningar um Sókrates eftir forngríska sagnaritarann Xenófón. Við ræðum við Hjalta Snæ Ægisson, sem þýðir og gefur út bókina.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Ragna Árnadóttir, forstjóri Landsnets, segir að mörgu að hyggja eigi að breyta vinnubrögðum við undirbúning nýrra hápsennulína og samningum við landeigendur. Samningaleiðin sé í flestöllum tilfellum betri en eignarnám. Landsnet stendur víða frammi fyrir andstöðu við lagningu á nýjum háspennulínum, nú síðast í Borgarfirði og Húnavatnssýslum.
Í nýjum tölum frá lögreglunni kemur fram að í fyrra var tilkynnt um 133 kynferðisbrot gegn börnum og að þeim hafi fjölgað töluvert milli ára. Tilkynningar um barnaníð voru rúmlega helmingi fleiri en síðustu ár þar á undan. Barnahús sinnir börnum sem grunur leikur á að hafi sætt ofbeldi eða kynferðislegri áreitni og Paola Cardenas, sálfræðingur og teymisstjóri í Barnahúsi, segir að þar verði fjölgunar mála vart.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, kynnti í morgun fjölmargar aðgerðir til að sporna gegn skipulagðri brotastarfsemi. Meðal annars á að uppfæra á hegningarlögin og færa lögreglu rýmri heimildir. Þá á að auka eftirlit með höfnum sem hafa verið notaðar í fíkniefnasmygl, en ekki er bolmagn til að fylgjast jafn vel með því sem flutt er til landsins í gámum og yfirvöld vildu.
Nokkur vel valin lög
Nokkur vel valin lög
Lagalistinn:
Laufey - Sabotage.
Hildur Guðnadóttir - Líður (Chernobyl version).
Staatskapelle Berlin, Berlin State Opera Chorus, Gunnar Guðbjörnsson - Den Bronnen, den uns Wolfram nannte (Walther, Ritter, Edelfrauen).
Jones, Norah - Seven years.
Pacifica Quartet - String quartet no. 5 : 9. Interlude IV -.
Bridges, J'Nai, James, Zachary, Costanzo, Anthony Roth, Metropolitan Opera Orchestra, Dísella Lárusdóttir, Metropolitan Opera Chorus - Act I: Year 1 of Akhnaten's reign. Thebes : Scene 3: The window of apperances.
Víkingur Heiðar Ólafsson - Variatio 18 Canone alla Sesta. A 1 Clav..

frá Veðurstofu Íslands
Tónhjólið snýst og snýst og upp koma sögur af tónlist, nýrri og gamalli. Ólíkar stefnur og straumar skjóta upp kolli og líka hljóðfæri, hugtök og túlkunarmöguleikar. Hugað verður að einhverju því sem hæst ber á tónlistarsviðinu í heimi sígildrar tónlistar og djasstónlistar á hverjum tíma.
Í Tónhjólinu hljómar hljóðritun frá tónleikum Caput á Myrkum músíkdögum sl. föstudag, þann 30. janúar í Norðurljósum, Hörpu. Um upptökur sá Georg Magnússon.
Gísli Magnússon: Sól ek á (2024-25) – Frumflutningur
Gunnar Andreas Kristinsson: Klarinettkvintett (2026) – Frumflutningur
Veronique Vaka: Eyland fyrir harmoniku og kammersveit (2025)
Einleikari: Jónas Ásgeir Ásgeirsson
Hugi Guðmundsson: Absentia fyrir fiðlu og kammersveit (2015)
Einleikari: Gerður Gunnarsdóttir
Masaya Ozaki og「ronja」: spidernetwork: boku wa… desutoroiya (2026) – Frumflutningur
Anna Gyða Sigurgísladóttir ræðir við fólk um einstakar hugmyndir sem mótað hafa skilning okkar á heiminum. Trú, heimspeki og vísindi eru efst á baugi, og kann fortíð og samtíð að vera skeytt saman með hjálp hnýsilegs arkífs ríkisútvarpsins.
Í fyrstu þáttum Meiningar eru hinar ýmsu hliðar Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi skoðaðar. Við byrjum á trúarsöfnuði kaþólskra á Selfossi þar sem nú er verið að byggja nýja kirkju.
„Núna er komið að því að þetta er ekki lengur mögulegt vegna þess að það eru svo margir. Á Selfossi og í kringum Selfoss eru fleiri en þúsund kaþólskir,“ segir David B. Tencer, biskup Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi. Við heimsækjum hann í þættinum og fræðumst fræðast nánar um málið.
Nýja guðshúsið ber heitið Kirkja hins heilaga kross og er tileinkað kirkjunni í Kaldaðarnesi sem á sínum tíma var einnig helguð heilögum krossi Jesú Krists. Við kirkjuna í Kaldaðarnesi stóð kross einn sem mikill átrúnaður hvíldi á. Að gefnu tilefni kynnum við okkur krossinn í Kaldaðarnesi með Dr. Margaret Cormack, miðaldafræðingi sem stúderað hefur íslenska dýrlinga og helgisögur. Sömuleiðis skoðum við aldagamla sögu krossmarksins með hjálp þáttar úr safni RÚV frá 1969 í umsjón Séra Lárusar Halldórssonar og Sigurðar Helga Guðmundssonar.
Við byrjuðum á því að skoða aukna trúrækni ungs fólks á síðasta ári og höldum þeirri rannsókn áfram við og við í þessari þáttaröð.
„Það eru alltaf ný andlit í hverri einustu sunnudagsmessu,“’ segir Rúnar Gerard Ragnarsson, ungur sjúkraliði og félagi í nýstofnuðu Bræðralagi kaþólsku kirkjunnar. Hann segir okkur m.a. frá uppvaxtarárum sínum á Selfossi, söfnuðinum þar og trú sinni almennt.

frá Veðurstofu Íslands
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Grásleppan hefur verið veidd og nýtt gegnum tíðina einkum og sér í lagi vegna gómsætra hrognanna sem eru eftirsótt víða um heim. Áður fyrr var aflanum að stærstum hluta hent eftir að hrognin höfðu verið hirt. Í seinni tíð hefur grásleppan til dæmis verið seld heilfryst til Kína þar sem hún þykir mikið lostæti. Spegill fortíðar - Silfur framtíðar er heiti á viðburði sem verður í Breiðfirðingarbúð á fimmtudaginn. Katrín Rut Bessadóttir, verkefnastjóri í HR er kynningastýra Grásleppunnar, og Eva María Hilmarsdóttir framkvæmdastýra Grásleppunnar komu í þáttinn í dag, en þær fara fyrir hópi kvenna sem hefur það að markmiði að sýna fram á vannýtta möguleika á grásleppu.
Stofnfundur félags um Gefum íslensku séns var haldinn á Ísafirði í síðustu viku. Samnefndu verkefni, Gefum íslensku séns, var hleypt af stokkunum árið 2023 og hefur það markmið að auka vitund fólks í nærumhverfinu um hvað máltileinkun innflytjenda á íslensku felur í sér. Leitast er við að virkja fólk til að sinna hlutverki almannakennara, sem sagt snýr það ekki aðallega að þeims sem eru að læra íslensku, heldur frekar þeim sem kunna íslensku. Ólafur Guðsteinn Kristjánsson, aðjúnkt við HÍ og nýkjörinn stjórnarmaður í félaginu, var á línunni og sagði okkur frekar frá stofnfundinum, félaginu og verkefninu.
Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Svanhildur Óskarsdóttir rannsóknarprófessor á menningarsviði hjá Árnastofnun. Hún sagði okkur frá því hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Svanhildur talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
Night Train to Lisbon e. Pascal Mercier
Blái pardusinn – hljóðbók e. Sigrún Pálsdóttir
Barnæska e. Jona Oberski (þýð. Gyrðir Elíasson)
Hjálparsagnir hjartans e. Péter Esterházy (þýð. Jóna Dóra Óskarsdóttir)
Nafn rósarinnar e. (þýð. Thor Vilhjálmsson)
Ástin fiskanna, Tímaþjófurinn og fyrstu ljóðabækur Steinunnar Sigurðardóttur
Tónlist í þættinum:
Á sjó / Hljómsveit Ingimars Eydal (Don Wayne, texti Ólafur Ragnarsson)
Mamma gefðu mér grásleppu / Jóhann Helgason (Jóhann Helgason)
Farmaður hugsar heim / Elly Vilhjálms og Raggi Bjarna (Þórunn Franz, texti Árelíus Níelsson)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Íslendingar komust ekki á verðlaunapalla á Evrópumeistaramótina í handbolta sem lauk í gær en Grammy-verðlaunin voru haldin í gærkvöldi, og þar var Íslendingur sem sigraði. Laufey Lín og platan hennar Matter of Time var valin besta platan í flokki hefðbundinnar dægurtónlistar. Laufey vakti athygli fyrir þakkarræðu um tónlistarkennslu.
Á fimmtu öld fyrir krist var uppi í Grikklandi maður sem er í hugum flestra hálfgerð frummynd heimspekingsins. Sókrates var tötrum klæddur meinlætamaður sem hélt til á torgum Aþenu og tók þar fólk tali. Hann spurði það spurninga um hluti sem það átti að vita, en sneri því í hring, og sannfærði það fljótt um að í raun vissi það lítið sem ekkert. Hann var kaldhæðinn og ögrandi talaði um frummyndir og hellakenningar, og var að lokum dæmdur til dauða af samborgurum sínum. Þessa persónu þekkjum við Íslendingar fyrst og fremst í lýsingu nemanda hans Platóns, En Platón er ekki sá eini sem skrifaði um Sókrates. Nú í haust kom út í fyrsta skipti á íslensku, bók sem nefnist Minningar um Sókrates eftir forngríska sagnaritarann Xenófón. Við ræðum við Hjalta Snæ Ægisson, sem þýðir og gefur út bókina.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Réttarhöld yfir Marius Borg Hoiby syni Mette Marit eiginkonu Hákons krónprins í Noregi hefjast á morgun 3.febrúar. Réttað verður yfir honum vegna ákæru fyrir ofbeldis- og kynferðisbrot. Fyrir nokkrum dögum kom út bókin Kókaín í konungsríki hjá Storytel á Íslandi í þýðingu Atla Steins Guðmundssonar blaðamanns. Í bjókinni afhjúpa tveir af reyndustu rannsóknarblaðamönnum Noregs hvernig sonur norsku krónprinsessunnar flæktist inn í heim eiturlyfja og ofbeldis. Við settum okkur í samband við Atla Stein og ræddum hinn umdeilda Marius Borg.
Okkar maður Guðmundur Jóhannsson mætti með allt það nýjasta úr heimi tækninnar á mánudegi.
Melania kvikmynd þar sem fylgst er með Melaniu Trump forsetafrú Bandaríkjanna síðustu dagana fyrir embættistöku forsetans þann 20.janúar í fyrra var frumsýnd í kvikmyndahúsum nú um helgina. Myndin þykir umdeild og í síðustu viku sögðum við frá því að aðeins væri búið að kaupa einn miða í forsölu í Bretlandi. En hvernig mynd er þetta og hvernig rúllaði fyrsta sýningarhelgin af stað. Við ræddum málið við Ásgrím Sverrisson.
Verð á gulli hefur hækkað um 150% undanfarin tvö ár og er nú í fyrsta sinn komið yfir 5.000 dollara fyrir únsuna. Sagan segir að ríki heim, fjárfestinga og lífeyrissjóðir séu að selja bandaríska ríkisskuldabréf og kaupa gull í staðinn. Það er mikil spenna í viðskiptum heims sem er upprunnin í Bandaríkjunum og hefur vakið óróa með fjárfestum. Fall Bandaríkjadollars spilar líka inn í. Hann hefur fengið annað högg þar sem áhyggjur fara vaxandi af áhrifum tolla, háum ríkisútgjöldum og verðbólgu á bandarískan efnahag. Það kallar á að fjárfestar endurskoði stöðu sína í Bandaríkjunum. Guðlaugur Steinarr Gíslason fjárfestingastjóri og meðstofnandi hjá Visku sjóðum kom til okkar og við spurðum hann hvort skollið væri á efnahagsstríð.
EIns og venja er á mánudögum þá förum við yfir allt það helsta sem gerðist í sportinu um helgina og það er eitthvað sem segir okkur að eitt aðal umfjöllunarefnið verði EM í handbolta en því lauk í gær, fyrir okkur með svekkjandi tapi fyrir Króötum sem nældu sér í bronsverðlaun og niðurstaðan því fjórða sætið á mótinu. Almarr Ormarsson kom til okkar.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Farið var yfir ný liðna Grammy-verðlaunahátíð, eitt afmælisbarn var nefnt og John Grant kom í heimsókn!
Lagalisti þáttarins:
OF MONSTERS & MEN – Crystals
DOOBIE BROTHERS – Listen To The Music
STONE TEMPLE PILOTS – Interstate Love Song
LAUFEY – Mr. Eclectic
BILLIE EILISH – WILDFLOWER
OLIVIA DEAN – Man I Need
TURNSTILE – NEVER ENOUGH
THE CURE – Alone
HELGI BJÖRNSSON – Ég Skrifa Þér Ljóð Á Kampavínstappa
PORTUGAL THE MAN – Tanana
BRUNO MARS – I Just Might
VALDIMAR – Karlsvagninn
SNORRI HELGASON & BRÍET – Mexico
MOTT THE HOOPLE – All The Young Dudes
INCUBUS – Are You In
ROBYN – Dopamine
HARRY STYLES – Aperture
TAKE THAT – How Deep Is Your Love
STEVE MILLER BAND – The Joker
ÁSGEIR TRAUSTI EINARSSON – Ferris Wheel
SALKA SÓL EYFELD – Úr gulli gerð
KINGFISHR – Killeagh
HÁKON – Barcelona
TRINE DYRHOLM & MATTI LAURI KALLIO – Smuk som et stjerneskud
GRAFÍK – Presley
RETRO STEFSON – Minning
JOHN GRANT – Ástarsorg (Live RÚV)
JOHN GRANT – All That School For Nothing
T REX – Get It On
WARMLAND – All for All
BUBBI MORTHENS & FRIÐRIK DÓR JÓNSSON – Til hvers þá að segja satt?
PÉTUR BEN – Pink Cream
CAMERON WINTER – Love Takes Miles
SUEDE – The Wild Ones
BAGGALÚTUR – Bíldudals grænar baunir
THE CRANBERRIES – Ode to My Family
FELDBERG – Dreamin'
ROLE MODEL – Sally, When The Wine Runs Out
THE STRANGLERS – Always the Sun
SKID ROW – I Remember You

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Efla á landamæragæslu, beita endurkomubanni oftar og senda skýr skilaboð um að Ísland sé ekki vænlegur áfangastaður fyrir glæpahópa. Þetta kemur fram í fyrstu stefnu sem gefin hefur verið út um aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi. Dómsmálaráðherra boðar öruggara Ísland.
Forsætisráðherra Noregs segir að krónprinsessa landsins hafi sýnt dómgreindarbrest með samskiptum við Jeffrey Epstein. Þau voru meiri en áður var talið og áttu sér stað eftir að hann hafði játað kynferðisbrot.
Allir flokkar á þingi styðja ályktun um nýja öryggis- og varnarstefnu eftir að varnarsamstarf við Evrópusambandið var tekið út.
Hornfirðingar vilja varanlegar lausnir, sandfangara og varnargarða, til að koma í veg fyrir að sandur hlaðist fyrir innsiglinguna. Breskt dæluskip heldur leiðinni opinni næstu þrjú sumur.
Bankarnir gera ekki ráð fyrir lækkun stýrivaxta á miðvikudag. Greinendur Landsbankans telja vexti eiga eftir að hækka.
Heilsu- og hvatningarverkefnið Lífshlaupið var ræst í nítjánda sinn í morgun. Forseti ÍSÍ segir mikilvægt að viðhalda heilbrigðum lífsstíl.
Tónlistarkonan Laufey hlaut sín önnur Grammy-verðlaun í gærkvöld fyrir plötuna A Matter of Time. Bad Bunny skráði sig í sögubækur verðlaunahátíðarinnar þegar hann hlaut verðlaun fyrir plötu ársins. Margir verðlaunahafar gagnrýndu ICE, innflytjendastofnun Bandaríkjanna.
Janúar var fyrsti heili mánuðurinn í nær átta ár þar sem enginn var skotinn til bana í Svíþjóð.
Frjálsíþróttakonan Eir Chang Hlésdóttir bætti í gær eigið Íslandsmet í 200 metra hlaupi innanhúss - á Norðurlandamótinu í Karlstad í Svíþjóð.
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Lovísa Rut stóð vaktina í Popplandi þennan mánudaginn. Grammy-verðlaunin tekin fyrir, allskonar nýtt og gamalt í bland og plata vikunnar kynnt til leiks: ný plata frá Ólöfu Arnalds sem heitir Spíra.
HJALTALÍN - Þú Komst Við Hjartað í Mér.
Rosalia - La Perla (Explicit).
PAOLO NUTINI - Candy.
Isoebel, Prins Thomas - Linger.
Tame Impala - Dracula.
Bryan, Zach - Plastic Cigarette.
Ólöf Arnalds - Spíra.
U2 - Angel Of Harlem.
Ólöf Arnalds - Spíra.
Addison Rae - Headphones On.
Ragnheiður Gröndal - Má ég?.
Laufey - Silver Lining.
Bad Bunny - BAILE INoLVIDABLE (Radio Edit).
Dean, Olivia - So Easy (To Fall In Love).
Lamar, Kendrick - Not Like Us.
THE CURE - Friday I'm In Love.
Hjálmar - Upp í sveit.
sombr - Undressed.
Bubbi Morthens - Bláu ljósin.
THE DOORS - People are strange.
Bríet - Bang Bang.
KHRUANGBIN - Texas Sun.
Portugal. The man - Tanana.
TV Girl - Birds Dont Sing.
SPIN DOCTORS - Two Princes.
INXS - New sensation.
AMY WINEHOUSE - Our Day Will Come.
Scott, Jill - Pressha.
Tómas R. Einarsson, GDRN - Pínu sein.
SVALA - The Real Me.
Larsson, Zara, Long, Muni - Midnight Sun.
GUS GUS - Eða?.
PRINCE - Sign 'O' the times (80).
Emmsjé Gauti - Taka mig í gegn.
HJÁLMAR - Manstu.
Helgar - Absurd.
Arctic Monkeys - Opening Night.
Bee Gees - Jive Talkin'.
Gorillaz - Orange County.
CMAT - Ready.
Ólöf Arnalds - Stein fyrir stein.
FLEETWOOD MAC - Little Lies.
Ólöf Arnalds - Stein fyrir stein.
THE STONE ROSES - Waterfall.
JOHN MAYER - New Light.
Teitur Magnússon Tónlistarmaður - Gullauga.
Hozier, Mumford and Sons - Rubber Band Man.
Kiriyama Family - About you.
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Friðjón R. Friðjónsson, sérfræðingur í bandarískum stjórnmálum ætlar að ræða við okkur um stöðuna í bandarískum stjórnmálum eftir nýjustu losun stjórnvalda á Eptstein skjölum. Farið er að bera á afsögnum vegna þeirra, en þó ekki í Bandaríkjunum sjálfum. En er pendúlinn farinn að sveiflast gegn Trump stjórninni?
Niðurstöður úr nýrri könnun meðal talmeinafræðinga sýna að 82% sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga hafa litla trú á stjórnvöldum, 70% sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga eru ósáttir með kjör sín og um 40% vinna að meðaltali launalaust einn dag í viku. Og á sama tíma og biðlistar lengjast íhuga 40% sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga að hætta störfum. Þau Vilhjálmur Hilmarsson, hagfræðingur Visku stéttarfélags og Ragnheiður Bjarnadóttir, formaður samninganefndar sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga, koma til okkar.
Nýlega bárust fréttir af því að opinberri vinnumarkaðurinn væri með tvöfalt hærra veikindahlutfall en hin almenni og haft er eftir Daða Má Kristóferssyni fjármálaráðherra að brýnt sé að lækka þetta hlutfall í ljósi þess að slíkt kostar mikla fjármuni. En þetta snýst ekki bara um fjármuni , heldur líðan fólks og í dag spyrjum við hvernig er best að bregðast við þegar í óefni er komið og hvernig er hægt að koma í veg fyrir að endurtekin veikindi herji á fólk ? Þórkatla Aðalsteinsdóttir sálfræðingur hjá Líf og sál kemur til okkar og fræðir okkur um það
Frá og með 1. mars nk. mun SORPA taka í notkun bílnúmeralesara á endurvinnslustöðvum. Markmiðið er að greina hvort viðskiptavinir komi á bíl skráðum á heimili á höfuðborgarsvæðinu, eða á bíl sem tengist fyrirtæki eða íbúum utan höfuðborgarsvæðisins. Gunnar Dofri Ólafsson er samskiptastjóri Sorpu hann verður á línunni.
Krýsuvíkursamtökin standa að fjáröflun dagana 5.–12. febrúar.
Fjáröflunin ber heitið Edrú vikan undir slagorðinu „Drekkum minna – gefum meira“. Elías Guðmundsson er framkvæmdastjóri Krýsuvíkur verður á línunni.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Ragna Árnadóttir, forstjóri Landsnets, segir að mörgu að hyggja eigi að breyta vinnubrögðum við undirbúning nýrra hápsennulína og samningum við landeigendur. Samningaleiðin sé í flestöllum tilfellum betri en eignarnám. Landsnet stendur víða frammi fyrir andstöðu við lagningu á nýjum háspennulínum, nú síðast í Borgarfirði og Húnavatnssýslum.
Í nýjum tölum frá lögreglunni kemur fram að í fyrra var tilkynnt um 133 kynferðisbrot gegn börnum og að þeim hafi fjölgað töluvert milli ára. Tilkynningar um barnaníð voru rúmlega helmingi fleiri en síðustu ár þar á undan. Barnahús sinnir börnum sem grunur leikur á að hafi sætt ofbeldi eða kynferðislegri áreitni og Paola Cardenas, sálfræðingur og teymisstjóri í Barnahúsi, segir að þar verði fjölgunar mála vart.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, kynnti í morgun fjölmargar aðgerðir til að sporna gegn skipulagðri brotastarfsemi. Meðal annars á að uppfæra á hegningarlögin og færa lögreglu rýmri heimildir. Þá á að auka eftirlit með höfnum sem hafa verið notaðar í fíkniefnasmygl, en ekki er bolmagn til að fylgjast jafn vel með því sem flutt er til landsins í gámum og yfirvöld vildu.
Ólafur Páll Gunnarsson spilar tónlist að sínum hætti - hitt og þetta og þetta og allt í bland.
Í hit(t) & Þetta heyrist hitt og þetta milli frétta og í þætti kvöldsins er Það Laufey og Grammy verðlaunin
Laufey / Snow white
Laila Biali / Rocky MountainLullaby
Lady Gaga / Close to you
Elton John & Brandi Carlile / Who believes in angels
Jennifer Hudson / Hallelujah

Fréttastofa RÚV.
Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.
Lagalistinn
Hjálmar - Upp í sveit.
Frank Ocean, - Pink + White.
ASAP Rocky - Punk Rocky.
Yin Yin - Lecker Song.
sombr - Back to friends.
TV Girl - Birds Dont Sing.
Harry Styles - Aperture.
PRINS PÓLÓ - Málning þornar.
Fcukers - L.U.C.K.Y.
Jazzy, Spriitzz - Can't Deny It.
Bon Iver - Day One.
Zach Bryan- Plastic Cigarette.
Kingfishr - Killeagh.
Bob Dylan - Blowin' in the wind.
Buffalo Traffic Jam - Fools Gold.
Mumford and Sons - The Banjo Song.
Woody Guthrie - This land is your land.
Bruce Springsteen - Streets of Minneapolis.
Doechii, SZA - Girl, Get Up.
Amber Mark, Anderson .Paak - Don't Remind Me.
Arlo Parks - 2SIDED.
Tribe Called Quest, A - Scenario.
NAS, DJ Premier - GiT Ready.
Glass Beams - Taurus.
Almost Monday - Lost.
Bruno Mars - I Just Might.
Jungle - Back On 74 (bonus track wav).
Stephen Sanchez - SWEET LOVE.
Arctic Monkeys - Opening Night.
Black Keys, The - Man On A Mission.
Beths - Straight Line Was A Lie.
Wet Leg - pokemon.
Kim Gordon - NOT TODAY.
Stranglers - Always the sun.
Turnstile - LOOK OUT FOR ME
Brigitte Calls Me Baby - Slumber Party.
BLOC PARTY - Banquet.
Silversun Pickups - The Wreckage
Foo Fighters - Asking For A Friend
Gorillaz - Orange County
James Blake - Death of Love
Izleifur & Elín Hall - Hugsa alltof mikið um þig
Gusgus x Birnir - Eða?
Oskar med k - On the Ground
PinkPantheress + Zara Larson - Stateside
Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.
Í Plötu vikunnar að þessu sinni fjöllum við um Spíru, nýjustu plötu Ólöf Arnalds sem kom út 5. desember. Platan markar endurkomu hennar að einföldum lagasmíðum þar sem rödd, gítar og nánd fá að njóta sín. Við settumst niður og ræddum aðeins um ferilinn, pásuna sem telur næstum 10 ár og framtíðina. Svo hlustum við á kynningar fyrir lögin af plötunni, ásamt því að heyra lögin sjálf.
Gjallarhorn fyrir nýjar raddir, nýstárlegar hugmyndir, óhljóð og tónlist sem þú hefur aldrei heyrt. Í Ólátagarði á íslensk grasrótartónlist griðarstað.
Umsjón: Einar Karl Pétursson og Björk Magnúsdóttir.
Teiknimynda hljómsveitin ÞESAL kom og spjallaði við ólátabelgina um hvernig maður heldur uppi stemningu á tónleikum, geimveruna Marens og margt fleira skemmtilegt.
Lagalisti:
davidfr, Countess Malaise - Drop It Low
ex.girls, Bngrboy - Allt
Lára - þekki ekki (remix)
LiteFun - SOFIA
tomi g - SLAY
Fógeti, Crescented - Staying Lazy
Oddweird - Death & Disco
ÞESAL - BLANKUR UM JÓLIN (brot)
ÞESAL - DJAMMA OG DJÚSA
ÞESAL - BÓKLEGA
Flyguy - Manneskja