19:00
Sinfóníukvöld - Á leið í tónleikasal

Umfjöllun um tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem í kjölfar þáttarins hljóma í beinni útsendingu Rásar 1 úr Eldborg Hörpu.

Ása Briem ræðir við Mirian Khukhunaishvili hljómsveitarstjóra tónleikanna. Í þættinum hljómar eftirtalin tónlist:

Du bist wie eine Blume – úr söngljóðaflokki Schumanns op. 25 – í útsetningu fyrir selló og píanó, í flutningi sellóleikarans Kians Soltani og píanóleikarans Aarons Pilsen.

Persian Folk Songs set no.16 C : 7. Folk Song from Khorasan. Kian Soltani leikur á selló og Aaron Pilsen á píanó.

Carl Maria von Weber Der Freischütz Overture (brot). The Philharmonia, undir stjórn Neeme Järvi.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 27 mín.
,