19:00
Tónhjólið
Áströlsk samtímatónlist

Tónhjólið snýst og snýst og upp koma sögur af tónlist, nýrri og gamalli. Ólíkar stefnur og straumar skjóta upp kolli og líka hljóðfæri, hugtök og túlkunarmöguleikar. Hugað verður að einhverju því sem hæst ber á tónlistarsviðinu í heimi sígildrar tónlistar og djasstónlistar á hverjum tíma.

Í Tónhjóli dagsins beinum við hlustum okkar að ástralskri samtímatónlist. Tónlistarmenn sem leggja til efni í þáttinn eru meðal annarra Judith Hamman, Sam Dunscombe, Ben Frost, Anthony Burr og Anthony Pateras.

Tónlist í þættinum:

Af The Long Exhale með Anthony Burr og Anthony Pateras:

doesn’t show og faded into the light mist

Af The traces of a mistake, the most simple one possible the reactions of even younger children með Anthony Pateras og Rohan Drape:

Distance bestows then takes right back

Af Music for Cello and Humming með Judith Hamman:

Down to Dust eftir Anthony Pateras

Af Chroma með Lawrence English og Loscil:

Sienna

Meradalir II með Ben Frost og Francesco Fabris

Two Forests með Sam Dunscombe

Who knows where the time goes með Nina Simone

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 21 mín.
e
Endurflutt.
,