14:00
Víðsjá - úrval vikunnar
Ísafjörður

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Í úrvalsþætti Víðsjár rifjum við upp könnunarleiðangur okkar til Ísafjarðar þar sem við huguðum að sköpunarkrafti Vestfjarða. Við fórum á rúntinn með Vaidu Braziunaite og Björgu Sveinbjörnsdóttur hjá Hversdagssafninu, litum í heimsókn til Inga Björns Guðnasonar, safnstjóra á Menningarsetursins á Hrafnseyri, gengum um bæinn með rithöfundinum Eiríki Erni Norðdahl og hittum skáldið og útgefandan Helen Cova á bókasafninu. Tónlistin sem heyrist í þættinum er öll ættuð frá Vestfjörðum (Mugison, Grafík, Salóme Katrín og K.Óla, Villi Valli, Between Mountains, Skúli Mennski).

Umsjón: Tómas Ævar Ólafsson og Halla Harðardóttir

Var aðgengilegt til 02. mars 2024.
Lengd: 55 mín.
,