08:05
Á tónsviðinu
Maria Callas

Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.

Í þættinum verður fjallað um Mariu Callas, eina frægustu óperusöngkonu allra tíma, en á þessu ári er liðin öld frá fæðingu hennar. Fluttar verða hljóðritanir frá tímabilinu 1949 - 1964 þar sem Maria Callas syngur óperuaríur eftir Giuseppe Verdi, Gaetano Donizetti, Umberto Giordano og fleiri. Einnig verða flutt atriði úr óperunni „Toscu" eftir Giacomo Puccini í hljóðritun frá 1953 sem þykir sérlega vel heppnuð, en þeim flutningi stjórnaði Victor de Sabata. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.

Var aðgengilegt til 02. mars 2024.
Lengd: 50 mín.
e
Endurflutt.
,