Bæn og hugleiðing að morgni dags.
Séra Ása Laufey Sæmundsdóttir flytur.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Umsjón: Brynjólfur Þór Guðmundsson
Útvarpsfréttir.
Umsjónarmenn fá gesti í hljóðver sem ræða um sjálfsmynd frá ýmsum sjónarhornum.
Umsjón Gísli Sigurðsson og Ævar Kjartansson.
um tilfinningar.
Allar manneskjur eru tilfinningaverur. Sumar ræða um tilfinningar sínar, aðrar síður. Tilfinningaleysi þykir löstur en öðrum leiðist tilfinningasemi. Stundum er sagt að munur sé á kynjunum hvað varðar aðgengi þeirra að eigin tilfinningum og hvað þau eiga létt með að tala um þær.
Hvað eru tilfinningar? Hvaða hlutverki gegna þær í lífi okkar? Eiga þær sér sögu? Eru til heilbrigðar tilfinningar og óheilbrigðar?
Hvað með tilfinningar úti í samfélaginu? Stýra samfélagslegar kvaðir tilfinningum okkar? Er verið að spila með þær í stjórnmálaumræðu? Á markaðnum? Hvernig birtast þær í bókmenntum, kvikmyndum, fjölmiðlum?
Leitast verður við að svara þessum spurningum í samtali Ævars og Torfa við fræðimenn úr ólíkum greinum: sagnfræði, stjórnmálafræði, sálfræði, félagsfræði og bókmenntafræði.
Umsjón: Ævar Kjartansson og Torfi Tulinius.
Útvarpsfréttir.
Rætt við gesti þáttarins um bók vikunnar.
Umsjónarmenn eru Auður Aðalsteinsdóttir, Jórunn Sigurðardóttir, Jóhannes Ólafsson og Halla Harðardóttir.
Bók vikunnar er Ína, söguleg skáldsaga eftir Skúla Thoroddsen sem kom út hjá Smundi 2019. Í þættinum heyrist í Skúla en viðmælendur umsjónarmanns um bókina eru Árni Hjartarson jarðfræðingur og Svanhildur Óskarsdóttir rannsóknarprófessor hjá Stofnun Árna Magnússonar. Umsjón hefur Jórunn Sigurðardóttir.
Guðsþjónusta.
Séra Sveinn Valgeirsson og séra Elínborg Sturludóttir þjóna fyrir altari.
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, predikar.
Organisti: Kári Þormar.
Einnig sýnt í sjónvarpinu.
Hádegisútvarp í umsjón þular.
Útvarpsfréttir.
Óttast er að Kórónuveirufaraldurinn sé að eflast að nýju á Spáni en þar hafa hátt í sautján þúsund látist vegna COVID-19. Greindum smitum hefur farið fækkandi undanfarið en tilkynnt var um 619 smit í dag, talsvert fleiri en hafa greinst síðustu daga.
Þeir sem ekki hafa fast ráðningarsamband við vinnuveitanda þurfa að sækja um hefðbundnar atvinnuleysisbætur en geta ekki nýtt sér hlutabótaleið stjórnvalda, segir forstjóri Vinnumálastofnunar um gagnrýni leiðsögumanna á leiðina.
Miklu skiptir að fólk ræði við sína nánustu áður en það verður mjög veikt um hvernig aðstæður það geti ekki lifað við og hvernig það myndi vilja deyja. Þetta segir hjúkrunarfræðingur á Landspítala sem hvetur fjölskyldur um að tala saman um hvað mestu máli skiptir í lífinu.
Milljónum margnota andlitsgríma úr kalda stríðinu var fargað í Svíþjóð fyrir nokkrum árum. Svíar sakna þeirra í dag, þegar hlífðarbúnað skortir vegna kórónuveirunnar.
Mikil óvissa ríkir hvort hægt verði að leika fótbolta hér á landi í sumar. Framtíð Íslandsmótanna skýrist á fundi KSÍ og Almannavarna í vikunni.
Veðurhorfur: Suðlæg átt, fimm til þrettán metrar og lítilsháttar rigning eða súld víða um land, en birtir til á norður- og austurlandi. Hvessir í nótt, sunnan tíu til átján í fyrramálið, en staðbundið átján til tuttugu og fimm á norðanverðu landinu. Rignir vestantil í nótt og á suðurlandi undir hádegi. Úrkomulítið í öðrum landshlutum. Hægari vindur og smá skúrir seinni partinn á morgun. Hægt hlýnandi veður og hiti víða fimm til tíu stig á morgun.
Guðni Tómasson sækir Víking Heiðar Ólafsson heim og ræðir við hann um nýjustu hljómplötu hans, með verkum frönsku tónskáldanna Debussy og Rameau, sem nýverið kom út á vegum Deutsche Grammophon.
Neðanmáls eru heimilda- og skemmtiþættir um áhugavert lífshlaup fólks og dýra sem fáir hafa heyrt um; einstaklinga sem ættu að hafa fengið athygli en hafa gleymst á spássíum sögunnar. Umsjón: Elísabet Rún Þorsteinsdóttir og Marta Eir Sigurðardóttir.
Neðanmáls eru heimilda- og skemmtiþættir um áhugavert lífshlaup fólks og dýra sem fáir hafa heyrt um; einstaklinga sem ættu að hafa fengið athygli en hafa gleymst á spássíum sögunnar.
Umsjón: Elísabet Rún Þorsteinsdóttir og Marta Eir Sigurðardóttir.
Íslensku tónlistarverðlaunanna í mars síðastliðnum. Diddú skaut upp á stjörnuhimininn sem söngkona í Spilverki þjóðanna fyrir rúmum fjörutíu árum og hefur æ síðan verið ein ástsælasta tónlistarkona þjóðarinnar. Ferill hennar hefur verið með eindæmum litríkur og farsæll og hún tekist á við ótrúlega fjölbreytt hlutverk sem dægurlagasöngkona, óperudíva á fjölum Íslensku óperunnar, einsöngvari með Sinfóníuhljómsveit Íslands, ljóðasöngkona og áfram mætti telja. Hér verður numið staðar við nokkrar vörður á ferli Diddúar, rætt við hana um uppvöxt og alls konar áhrifavalda. Umsjón: Elísabet Indra Ragnarsdóttir.
Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú, hlaut heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna í mars síðastliðnum. Diddú skaut upp á stjörnuhimininn sem söngkona í Spilverki þjóðanna fyrir rúmum fjörutíu árum og hefur æ síðan verið ein ástsælasta tónlistarkona þjóðarinnar. Ferill hennar hefur verið með eindæmum litríkur og farsæll og hún tekist á við ótrúlega fjölbreytt hlutverk sem dægurlagasöngkona, óperudíva á fjölum Íslensku óperunnar, einsöngvari með Sinfóníuhljómsveit Íslands, ljóðasöngkona og áfram mætti telja. Hér verður numið staðar við nokkrar vörður á ferli Diddúar, rætt við hana um uppvöxt og alls konar áhrifavalda.
Umsjón: Elísabet Indra Ragnarsdóttir.
Þáttur um íslensku og önnur mál. Umsjón: Guðrún Línberg Guðjónsdóttir og Kristján Friðbjörn Sigurðsson.
Í þættinum er fjallað um gælunöfn og viðurnefni í íslensku, og þróun talmáls í tölvuleikjum og bullmáls sem er oft í stað þess.
Kvöldfréttir útvarps
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Lydia Grétarsdóttir
Sektarheimild verður beitt í að minnsta kosti einu tilviki vegna brota á samkomubanni. Kórónuveirufaraldurinn er á hægri niðurleið hér á landi, segir landlæknir. Aðeins 12 smit greindust síðasta sólarhring.
Óskum um aðstoð frá AA samtökunum hefur fjölgað frá því samkomubann tók gildi. 550 manns bíða eftir því að komast í meðferð hjá SÁÁ á Vogi.
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi og er kominn heim. Þar hvílist hann og mætir ekki strax til starfa.
Tíu ár eru í dag frá því að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um ástæður efnahagshrunsins og fall íslensku bankanna 2008 leit dagsins ljós.
Spáð er sunnan og suðvestan stormi eða hvassviðri á norðanverðu landinu í nótt og vel fram á morgundaginn.

Hvað skilgreinir borg og hvernig er saga hennar rituð? Borgarmyndir vefa saman fortíð, samtíð og framtíð borga og gerist þarmeð þáttakandi í að skrásetja söguna. Með frásögnum íbúa, gesta og sagnfræðinnar fær hlustandinn að kynnast borgum víðs vegar um heim frá ólíkum sjónarhornum. Umsjón hefur Svavar Jónatansson.
Í þessum þætti af Borgarmyndum fáum við innsýn í listaheim Zürich borgar í samtölum við áhrifafólk úr uppboðsbransanum og hóp ungra kvenna í gallerísbransanum.
Sömuleiðis verður rætt við nokkra nemendur úr tveimur helstu háskólum borgarinnar, varpað ljósi á íhaldsamari fortíð siðaskiptanna sem og vandamál Zürich tengt almenningsgarði á 9 og 10 áratug síðustu aldar.
Þátturinn er frumfluttur, en var tekinn upp í desember árið 2018.
Umsjón: Svavar Jónatansson.
Dánarfregnir.
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Illugi Jökulsson les valda kafla úr fjörlegum æskuminningum Flosa Ólafssonar leikara. Meðal annars segir frá því þegar Flosi gekk ungur að árum til liðs við ungliðafylkingu íslenskra nasista.
Næturútvarp Rásar 1.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Umsjón: Brynjólfur Þór Guðmundsson
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Óttast er að Kórónuveirufaraldurinn sé að eflast að nýju á Spáni en þar hafa hátt í sautján þúsund látist vegna COVID-19. Greindum smitum hefur farið fækkandi undanfarið en tilkynnt var um 619 smit í dag, talsvert fleiri en hafa greinst síðustu daga.
Þeir sem ekki hafa fast ráðningarsamband við vinnuveitanda þurfa að sækja um hefðbundnar atvinnuleysisbætur en geta ekki nýtt sér hlutabótaleið stjórnvalda, segir forstjóri Vinnumálastofnunar um gagnrýni leiðsögumanna á leiðina.
Miklu skiptir að fólk ræði við sína nánustu áður en það verður mjög veikt um hvernig aðstæður það geti ekki lifað við og hvernig það myndi vilja deyja. Þetta segir hjúkrunarfræðingur á Landspítala sem hvetur fjölskyldur um að tala saman um hvað mestu máli skiptir í lífinu.
Milljónum margnota andlitsgríma úr kalda stríðinu var fargað í Svíþjóð fyrir nokkrum árum. Svíar sakna þeirra í dag, þegar hlífðarbúnað skortir vegna kórónuveirunnar.
Mikil óvissa ríkir hvort hægt verði að leika fótbolta hér á landi í sumar. Framtíð Íslandsmótanna skýrist á fundi KSÍ og Almannavarna í vikunni.
Veðurhorfur: Suðlæg átt, fimm til þrettán metrar og lítilsháttar rigning eða súld víða um land, en birtir til á norður- og austurlandi. Hvessir í nótt, sunnan tíu til átján í fyrramálið, en staðbundið átján til tuttugu og fimm á norðanverðu landinu. Rignir vestantil í nótt og á suðurlandi undir hádegi. Úrkomulítið í öðrum landshlutum. Hægari vindur og smá skúrir seinni partinn á morgun. Hægt hlýnandi veður og hiti víða fimm til tíu stig á morgun.
Heilahristingur er léttur og skemmtilegur spurningaþáttur þar sem tvö lið svara spurningum um allt milli himins og jarðar. Þetta misserið mun nýr gestaspyrill vikunnar sitja með Jóhanni Alfreð um hverja helgi og ákveða þemu þáttarins.
Í þætti dagsins mætir lið grúskara, þau Vera Illugadóttir og Ingileif Friðriksdóttir liði ungra rithöfunda sem í eru Halldór Armand Ásgeirsdóttir og Bergþóra Snæbjörnsdóttir.
Umsjón: Jóhann Alfreð Kristinsson.
Atli Már Steinarsson rabbar við hlustendur og leikur létta tónlist.
Við erum róleg og notaleg á þessum páskadegi með íslenskum tónum einungis, í bland við nokkur lög af Jesus Christ Superstar uppsetninguna frá árinu 1995.
Lagalisti:
GDRN - Vikivaki
Eyjólfur Kristjánsson - Gott
Stefán Hilmarsson - Paradís
Pálmi Gunnarson - VEgurinn heim
Emelíana Torrini - Perlur og Svín
Björgvin Halldórsson - Sendu nú gullvagninn
KK - Lucky One
Upplyfting - Traustur Vinur
Góss - Gilligill
GCD - Mýrdalssandur
Páll Óskar - Söngur Heródesar
Sprengjuhöllin - Verum í sambandi
Spilverk þjóðanna - Græna byltingin
Salka, Arnar, Eyþór Gunnars og Ellen Kristjáns - Ég veit það
Birnir - Út í geim
Bríet - Esjan
Júníus Meyvant - Næturrölt
Pétur Örn - Grasagarðurinn
Bubbi - Með þér
Guðrún Gunnars & Matti Matt - Lifum allt að nýju
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og í haust er 21 ár liðið síðan hann fór fyrst í loftið.
Í Rokklandi í dag förum við á frábæra tónleika með dönsku tónlistarkonunni Tinu Dickow og hennar fólki sem fram fóru í Þjóðleikhúsinu, á stóra sviðinu, 5. nóvember sl. fyrir troðfullu húsi.
Tina súperstjarna í heimalandinu - hún hefur komið næstum öllum plötunum sínum í fyrsta sæti danska vinsældalistans og þær eru orðnar 11. Hún sendi síðast frá sér plötu 2018. Hún heitir Fastland.
Tina hefur búið á Íslandi í rúm átta ár en hefur lítið látið fyrir sér fara hér, hefur haldið fáa tónleika t.d. Í Danmörku og Þýskalandi fyllir hún stærstu tónleikahallir og tónleikar Tinu í Þjóðleikhúsinu í nóvember voru því kærkomið tækifæri á að upplifa hana í mikilli nánd. Hún er frábær listamaður, söngkona og lagasmiður, og það eru þau bæði hjónin -hún og Helgi Hrafn Jónsson. Hann var með Tinu í Þjóðleikhúsinu, og líka þau Dennis Ahlgren og Marianne Lewandowski sem bæði koma frá heimabæ hennar, Árósum. Tina og Helgi tóku tónleikana upp sjálf og mixuðu þá fyrir hlustendur Rásar 2.
Kvöldfréttir útvarps
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Lydia Grétarsdóttir
Sektarheimild verður beitt í að minnsta kosti einu tilviki vegna brota á samkomubanni. Kórónuveirufaraldurinn er á hægri niðurleið hér á landi, segir landlæknir. Aðeins 12 smit greindust síðasta sólarhring.
Óskum um aðstoð frá AA samtökunum hefur fjölgað frá því samkomubann tók gildi. 550 manns bíða eftir því að komast í meðferð hjá SÁÁ á Vogi.
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi og er kominn heim. Þar hvílist hann og mætir ekki strax til starfa.
Tíu ár eru í dag frá því að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um ástæður efnahagshrunsins og fall íslensku bankanna 2008 leit dagsins ljós.
Spáð er sunnan og suðvestan stormi eða hvassviðri á norðanverðu landinu í nótt og vel fram á morgundaginn.
Kvöldfréttir útvarps
Umsjón: Kristján Sigurjónsson
Tæknimaður: Lydia Grétarsdóttir
Sektarheimild verður beitt í að minnsta kosti einu tilviki vegna brota á samkomubanni. Kórónuveirufaraldurinn er á hægri niðurleið hér á landi, segir landlæknir. Aðeins 12 smit greindust síðasta sólarhring.
Óskum um aðstoð frá AA samtökunum hefur fjölgað frá því samkomubann tók gildi. 550 manns bíða eftir því að komast í meðferð hjá SÁÁ á Vogi.
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi og er kominn heim. Þar hvílist hann og mætir ekki strax til starfa.
Tíu ár eru í dag frá því að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um ástæður efnahagshrunsins og fall íslensku bankanna 2008 leit dagsins ljós.
Spáð er sunnan og suðvestan stormi eða hvassviðri á norðanverðu landinu í nótt og vel fram á morgundaginn.
Fréttastofa RÚV.
Brot af því besta úr þáttum Tvíhöfða með Jóni Gnarr og Sigurjóni Kjartanssyni.
Umsjón: SIgurjón Kjartansson, Jón Gnarr og Þórður Helgi Þórðarson
Spjallað við landann og leikin tónlist úr öllum áttum á laugardagskvöldum. Ljúfir tónar, brjálað rokk og óskalög úr öllum landshornum.