Matargat

Jólalegur eftirréttur

Ylfa og Máni útbúa jólalegan eftirrétt: Marengs og ís.

Hér er uppskriftin:

Marengstoppar

5 eggjahvítur

300 gr sykur

1/2 L rjómi

Ber eigin vali

Leiðbeiningar:

Þeytið eggjahvíturnar þangað til þær fara freyða vel.

Setjið smám saman sykurinn út í og þeytið á fullum hraða þangað til blandan er orðin alveg stíf.

Þið eigið geta snúið skálinni við og ekkert dettur úr henni.

Setjið deigið í sprautupoka og sprauta litla toppa á bökunnarpappír.

Bakið við 100 gráður í 30 mín eða þangað til topparnir losna frá pappírnum.

Þeytið rjóma og setjið í sprautupoka. Sprautið smá ofan á hvern marengs og setjið svo ber eigin vali ofan á.

Ís

5 Eggjarauður

1 1/4 dl púðursykur

1/2 L þeyttur rjómi

1tsk vanilludropar

100 gr Toblerone eða annað sem krakkarnir vilja

Þeyttu eggjarauður og púðusykur vel saman.

Blandaðu þeytta rjómanum varlega saman við og vanilludropunum.

Saxaðu sælgætið smátt og blandaðu varlega saman við.

Settu í form og settu í frysti. ATH. þarf geyma í frysti yfir nótt.

Umsjón:

Ylfa Blöndal

Hilmar Máni Magnússon

Frumsýnt

13. des. 2020

Aðgengilegt til

31. des. 2025
Matargat

Matargat

Þau Ylfa og Máni standa vaktina í eldhúsinu og kenna okkur hvernig á elda og baka ýmislegt góðgæti.

Dagskrárgerð: Eva Rún Þorgeirsdóttir

Umsjón: Ylfa Blöndal og Hilmar Máni Magnússon.

Þættir

,