
Siggi Gunnars stýrir lifandi þætti um dægurmenningu með áherslu á tónlist, sjónvarp og kvikmyndir. Helstu straumar og stefnur, innlit til áhugaverðs fólks og skemmtilegir gestir í myndveri. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson. Stjórn upptöku: Ragnar Eyþórsson.
Í Miðstöðinni þessa vikuna förum við í heimsókn til Ísafjarðar og kynnumst finnsk-íslenska metsöluhöfundinum Satu Ramö sem er búsett þar. Hún hefur undanfarin ár skrifað glæpasögur um lögreglukonuna Hildi sem nú er búið að kvikmynda og gefa út sem sjónvarpsseríu í Sjónvarpi Símans.
Glæpasagnahöfundarnir Yrsa Sigurðardóttir og Ragnar Jónasson eru sérfræðingar vikunnar. Við ætlum að ræða bestu glæpaþættina og áhorfendur fá meðmæli frá þeim.
Að lokum kynnumst við tónlistarmanninum Reyni Snæ Magnússyni. Hann hefur spilað með helstu tónlistarmönnum þjóðarinnar á gítar en nú er tími til kominn að hann stígi fram með sitt eigið efni. Hann flytur nýtt lag í þættinum.