17:31
Tinna táknmálsálfur
Álfadrottningin

Tinna táknmálsálfur er sniðugur álfur sem býr í Blómabæ í Bláskógarbyggð. Hún lendir í ýmsum ævintýrum með vinum sínum Kötu kónguló og Tedda tannálfi og ef til vill lærum við líka svolítið táknmál.

Höfundur:

Laila Margrét Arnþórsdóttir

Leikur:

Tinna: Kolbrún Völkudóttir

Kata kónguló: Jan Fiurasek

Talsetning:

Tinna: Álfrún Helga Örnólfsdóttir

Kata kónguló: Erla Ruth Harðardóttir

Teddi tannálfur: Björgvin Franz Gíslason og Friðrik Friðriksson

Búningar: Helga Rún Pálsdóttir

Það er óveður. Tinna lítur út um gluggann og sér að það er einhver úti. Hún bendir þeim að koma inn.  Þetta er álfadrottning með lítið barn og álfkona. Tinna gefur þeim te og teppi. Álfadrottingin og Tinna syngja saman lagið: Elisabet og Elinborg eftir Eivør Pálsdóttir.

Er aðgengilegt til 23. apríl 2027.
Lengd: 5 mín.
e
Endursýnt.
,