Heimildarþáttaröð í fjórum þáttum um einn ástsælasta leikara og grínara þjóðarinnar, Sigurð Sigurjónsson, sem skemmt hefur landsmönnum á skjánum, á sviði sem og á hvíta tjaldinu í meira en fjörutíu ár. Siggi og samferðafólk hans er tekið tali um leið og eftirminnilegustu hlutverkin eru rifjuð upp. Umsjón: Guðmundur Pálsson. Dagskrárgerð: Björn Emilsson.

Þriðja þáttaröð þessara stórbrotnu náttúrulífsþátta með David Attenborough um Jörðina, náttúru hennar og dýralíf á öllum árstíðum. Þættirnir eru talsettir á íslensku en sýndir með ensku tali á RÚV 2.
Norsk leikin þáttaröð frá 2025. Samísk kona bindur vonir við að 3000 gesta brúðkaup sonar hennar lyfti henni ofar í metorðastiganum. Hún fær börnin sín til að skippuleggja stórveisluna en sá hængur er á að systkinunum kemur alls ekki vel saman. Undirbúningurinn einkennist af fjölskylduerjum og algjörri ringulreið þar sem gömul leyndarmál leita upp á yfirborðið. Aðalhlutverk: Sara Margrethe Oskal, Ánte Siri og Inga Márjá Utsi. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Breskir spennuþættir frá 2024. Þegar tölvuþrjótar taka yfir stjórn næturlestar frá Glasgow til London þurfa tveir ókunnugir einstaklingar – farþegi um borð og starfsmaður hjá netöryggisstofnun – að hjálpast að við að bjarga farþegum lestarinnar og afstýra stórslysi. Aðalhlutverk: Joe Cole og Alexandra Roach. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Sænskur heimildarþáttur frá 2021 um fyrirtíðaspennu. Hanna Persson þjáist af mikilli fyrirtíðaspennu og einkennin geta birst sem reiði, kvíði og jafnvel sjálfsvígshugsanir. Hún ákveður að leita sér hjálpar. Spurningin er hvort til sé einhver önnur lausn en að taka lyf.