Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk jafnt í borg sem sveit og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Sigrún Þuríður Runólfsdóttir og Þórdís Claessen. Dagskrárgerð: Magnús Atli Magnússon, Jóhannes Jónsson, Björgvin Kolbeinsson og Elfar Örn Egilsson.
Landinn hittir nemendur í Landslagsarkitektúr við Landbúnaðarháskóla Íslands, á Hvanneyri, sem fengu það verkefni að hanna Grundarfjörð upp á nýtt. Við heimsækjum danskan glerblástursmann á Kjalarnesi, kíkjum inn í hænsnakofa á Akranesi og förum á æfingu hjá Halaleikhópnum. Svo fylgjumst við með öllu því sem þarf að gera á Egilsstaðaflugvelli þegar flugvélar koma og fara.
