Brot úr menningarumfjöllun liðinnar viku. Fjallað á snarpan og líflegan hátt um það sem efst er á baugi hverju sinni í menningar- og listalífinu, jafnt með innslögum, fréttaskýringum, gagnrýni, pistlum og umræðu. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson og Halla Oddný Magnúsdóttir.
Í sárabætur fyrir tónleika sem áttu að vera með rússneska píanóleikaranum Denis Kozhukhin sem ekki varð af tók Sinfóníuhljómsveit Íslands upp stutta einleikstónleika með honum sem hægt er að sjá og hlusta á á vef hljómsveitarinnar.
Fram kom: Denis Kozhukhin
Leikararnir Karl Ágúst, Pálmi, Randver, Sigurður og Örn túlka atburði líðandi stundar eins og þeim einum er lagið. Stjórn upptöku: Björn Emilsson.
Kveikur er fréttaskýringaþáttur sem sendur er út hálfsmánaðarlega. Þátturinn er í anda klassískra fréttaskýringaþátta með áherslu á rannsóknarblaðamennsku.
Ritstjóri er Þóra Arnórsdóttir en ritstjórnina skipa Ingólfur Bjarni Sigfússon, Helgi Seljan, Brynja Þorgeirsdóttir og Tryggvi Aðalbjörnsson. Dagskrárgerð: Arnar Þórisson, Ingvar Haukur Guðmundsson og Árni Þór Theodórsson.
Íslensk menningarverðmæti eru víða í hættu. Þetta sýnir rannsókn Kveiks, meðal annars á aðstæðum í nokkrum af stærstu söfnum landsins. Dæmi eru um að ómetanlegar þjóðargersemar séu geymdar þar sem ýmist er ekkert slökkvikerfi eða hætta er á vatnsflóði-nema hvort tveggja sé. Við skoðum líka íslenska vegakerfið. Það eru engin nýmæli að malbik og klæðningar á vegum skapi hættu. Vegir eru holóttir, það eru djúp hjólför í þeim og stundum verða þeir hálir á heitum sumardögum. En hvers vegna er þetta svona? Erum við svona léleg í að leggja vegi? Hvað þarf að gera til að bæta ástandið?
Sígildir breskar teiknimyndir um ævintýri hins seinheppna herra Bean.
Þættir úr safni Sjónvarpsins.
Megas ræðir við Bubba Morthens um list hans og lífsferil. Inn á milli flytur Bubbi nokkur lögin: Talað við gluggann, Saga götunnar, Strákarnir á Borginni, Söngurinn hennar Siggu, Systir minna auðmýktu bræðra (Arnþór Jónsson leikur á selló), Gatan hennar Tove og Skeggrótarblús. Stjórnandi: Elín Þóra Friðfinnsdóttir. Umsjón: Magnús Þór Jónsson. Þáttur frá 19. janúar 1986.
Spurningakeppni framhaldsskólanna sem einkennist af stemningu, spennu og virkri þátttöku allra sem að koma. Spyrill er Björn Bragi Arnarsson, spurningahöfundar og dómarar eru Margrét Erla Maack og Steinþór Helgi Arnsteinsson. Aðstoðarmaður umsjónarmanna: Björn Teitsson. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir.
Þáttur um lífið í landinu. Landinn ferðast um og hittir fólk sem fæst við margt áhugavert og skemmtilegt. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Þórgunnur Oddsdóttir, Viktoría Hermannsdóttir og Halla Ólafsdóttir. Dagskrárgerð: Karl Sigtryggsson, Magnús Atli Magnússon, Gunnlaugur Starri Gylfason og Jóhannes Jónsson.
Landinn rifjar upp merilega sögu af flygli sem týndist. Við hittum frumkvöðul sem býr til fæðubótarefni úr kísil frá Hellisheiðarvirkjun, förum í sirkusskóla Húlladúllunnar á Tröllaskaga. Svo tökum við vatnslitina með okkur út í góða veðrið og reynum að fanga liti vorsins.
Í þáttunum Húllumhæ er barnamenning í forgrunni. Við förum í leikhús, hlustum á tónlist, kíkjum í bækur, lærum töfrabrögð og gerum tilraunir. Við förum yfir hvað er framundan um helgina og hoppum svo kát saman inn í helgarfrí. Þáttastjórnandi: Iðunn Ösp Hlynsdóttir.
Í Húllumhæ í kvöld: Miðaldafréttir með Snorra og Jakobi, Stúlka uppi á stól - lag úr Sögum verðlaunahátíð barnanna, Krakkakiljan - Fjallaverksmiðja Íslands
Lalli töframaður
Þáttastjórnandi:
Iðunn Ösp Hlynsdóttir
Gestir í Krakkakiljunni:
Kristín Helga Gunnarsdóttir
Elísabet Heiða
Jóhannes Ólafsson
Handrit og framleiðsla:
Jóhannes Ólafsson og Sigyn Blöndal
Valin myndskeið úr Landanum þar sem áhugaverðir staðir eru skoðaðir og merkilegir Íslendingar heimsóttir. Dagskrárgerð: Gísli Einarsson og Karl Sigtryggsson.
Matthildur Ingimarsdóttir er níu ára söngkona frá Flugumýri í Skagafirði sem þykir mest gaman að syngja fyrir gamla fólkið. Landinn hitti Matthildi á Löngumýri, gamla húsmæðraskólanum sem nú er í eigu Þjóðkirkjunnar, en þar var hún mætt til að syngja á samkomu eldri borgara í Skagafirði.
Skemmtiþáttur um íslenska tungu í umsjón Bjargar Magnúsdóttur og Braga Valdimars Skúlasonar. Þátttakendur etja kappi í fjölbreyttum leikjum og þrautum. Framleiðsla: Skot í samstarfi við RÚV.
Keppendur kvöldsins eru þau Birna María Másdóttir, Bragi Páll Sigurðarson, Hjálmar Örn Jóhannsson og Tinna Ólafsdóttir. Framleiðsla: Skot í samstarfi við RÚV.