Páskalegar möffins
Ylfa og Máni geta ekki beðið eftir páskunum svo þau baka gómsætar og páskalegar möffins með gulum glassúr.
Í þessum þætti búa Ylfa og Máni til ljúffengan hafragraut með eplamús. Hollur og góður morgunverður.
Eplamús
3-4 epli
kanill eftir smekk
1/2 L vatn
Aðferð:
Eplin eru skræluð og kjarnhreinsuð og síðan skorin í grófa bita. Settu eplabitana í pott ásamt vatni og kanil. Eplin eru soðin í 20 mín. Sigtaðu eplin ef það er mikill vökvi. Músaðu eplin með töfrasprota.
Hafragrautur
(fyrir einn svangan eða tvo minna svanga): 2 dl hafrar, 2 dl vatn, 2 dl mjólk. Allt er sett í pott og soðið þar til hann er eins þykkur og þér finnst best.

Þau Ylfa og Máni standa vaktina í eldhúsinu og kenna okkur hvernig á að elda og baka ýmislegt góðgæti. Dagskrárgerð: Eva Rún Þorgeirsdóttir. Umsjón: Ylfa Blöndal og Hilmar Máni Magnússon.