Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Þátturinn var fyrst á dagskrá 26. apríl 2014.
Umsjón: Einar Már Guðmundsson
Einar Már Guðmundsson leikur tónlist að eigin vali.

frá Veðurstofu Íslands.
Einu sinni þótti fallegt að vera feit. Síðastliðna áratugi hefur feitt fólk mætt fordómum, sýnileg líkamsfita þótt útlitsgalli og mælikvarði á skapgerð, sjálfsaga, æskileika og færni. Persónulegt vandamál einstaklinga sem þeir hafi valið með því að velja óheilsusamlegt líferni og ættu að vilja leysa. Milljónaiðnaður hefur haldið fólki í baráttu við líkamann sinn með ýmsum lausnum sem oftar en ekki skilja fólk eftir enn feitara en fyrr. Fjöldi feitra lifir þó heilbrigðu og hamingjusömu lífi, óháð holdafari sínu.
Offita er nú skilgreind sem alvarlegur og víðfemur sjúkdómur. Við þeim sjúkdómi hafa nýlega komið fram læknisfræðilegar lausnir svo sem þyngdarstjórnunarlyf og efnaskiptaaðgerðir.
Ber þá feitu fólki þá skylda til að fara á lyf eða í aðgerð fyrst það er hægt? Hvaða áhrif hafa þessar lausnir á fitufordóma og átröskunarsjúkdóma? Eru þær líklegar til að draga úr offituvandanum eða auka hann? Og hvaða afleiðingar hafa þessar lausnir til langframa? Er alltaf betra að vera mjó?
Brynhildur Björnsdóttir er 56 ára kona sem hefur verið feit alla ævi. Hún veltir þessum spurningum fyrir sér í þremur útvarpsþáttum ásamt ýmsum sérfræðingum og fólki með reynslu af því að grennast með hjálp lyfja og aðgerða.
Sápan FatOff og megrunarkaramellurnar AYDS eru meðal umfjöllunarefna í öðrum þætti af Holdi. Brynhildur ræðir líka við þær Lindu Guðmundsdóttur og Ósk Gunnlaugsdóttur um reynslu þeirra af þyngdartapslyfjum og - aðgerðum. Ennfremur er fjallað um fitufordóma.
ATH að í þættinum er komið inn á ýmislegt sem gæti reynst flókið fyrir þau sem hafa glímt við átröskun.
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Heimir Hannesson, Ólafur Stephensen og Rósa Björk Brynjólfsdóttir voru gestir Vikulokanna að þessu sinni. Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið og myndun nýs meirihluta í Reykjavík voru til umræðu.
Umsjón: Magnús Geir Eyjólfsson

Tónlist héðan og þaðan
Útvarpsfréttir.
Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna segir ríkið auðveldlega geta hafið stríðið við Íran að nýju. Forseti Bandaríkjanna tók enga ákvörðun um fyrirliggjandi samningsdrög í gær, þrátt fyrir að hafa áður boðað ákvörðun.
Forseti Úkraínu segir að Rússar undirbúi mjög stóra árás á landið og hvetur íbúa til að grípa til ráðstafana til að tryggja öryggi sitt. Rússar hafa beðið sendifulltrúa sína í Úkraínu að yfirgefa landið.
Ótímabundnu verkfalli háseta og bátsmanna er lokið eftir að samkomulag náðist við Eimskip um mönnun þriggja skipa.
Líffræðingur hjá Náttúruminjasafni Íslands segir slappt regluverk um framandi ágengar tegundir þýða að íslensk náttúra sé varnarlaus. Ný aðgerðaáætlun stjórnvalda þurfi að tryggja skýrt regluverk og öflugt eftirlit.
Sauðfjárbóndi á Austurlandi segir vetrarfærð og snjókomu í gær hafa gengið yfir áfallalaust. Vel tókst að koma öllu fé í skjól.
Kvikmyndin "Ástin sem eftir var" var sigursæl á Edduverðlaunahátíðinni í gærkvöld og fékk sjö verðlaun. Sjónvarpsþættir um Vigdísi Finnbogadóttur hlutu sex verðlaun.
Enska knattspyrnufélagið Liverpool hefur rekið hollenska knattspyrnustjórann Arne Slot. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag. Veðbankar telja Andoni Iraola líklegastan til að taka við starfinu.
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Þetta er síðasti þátturinn fyrir sumarfrí og hann verður af því tilefni með óhefðbundnu sniði. Við ætlum að kynnast fjölda einstaklinga sem eru eða hafa verið áberandi í heimsmálunum og kynnast þeim betur. Þarna eru meðal annars stjórnmálamenn, sjónvarpslæknar, áhrifavaldar, tónlistarmenn og ferfætlingar svo eitthvað sé nefnt.
Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson
Haukur Gröndal er með þekktustu jazztónlistarmönnum okkar tíma, bæði sem klarínettu- og saxófónleikari, en er ekki síður heima í klezmer og búlgarskri þjóðlagatónlist. Það gleymist þó stundum að hann er líka einn af okkar afkastamestu lagasmiðum.
Lagalisti:
Beautiful Monster – The Donkey on the Mountain
Sey mir gesunt - Klezmer ballad
Narodna Muzika - Peshterska Rachenitsa
Frelsissveit Nýja Íslands, óútgefið - Andrés Engilberts
Kona lítur við - Sjö hvísl sálarinnar I-VII

Í þáttunum er ferill Michael Jackson rakin í tali og tónum. Barnastjarna, skemmtikraftur, poppstjarna af áður óþekktri stærð, frík og fyrirbæri; Bakgrunnur hans og helstu áhrifavaldar verða til umfjöllunar og leitast verður við að setja fjölbreytilegan feril hans í menningarsögulegt samhengi.
Umsjón: Berglind María Tómasdóttir
Með Thriller festi Michael Jackson sig kirfilega í sessi sem poppkóngurinn, ósigrandi og óumdeildur. Á sama tíma fór í auknum mæli að bera á óvenjulegri hegðun stjörnunnar og til varð fyrirbærið Wacko Jacko. Í þættinum hljómar b-hlið plötunnar en einnig verða ýmis hliðarverkefni Michaels á miðjum 9. áratugnum skoðuð.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 27. júní 2015.

Útvarpsfréttir.

Umsjón : Arthúr Björgvin Bollason og Þröstur Ásmundsson.
Þáttur frá 1985 um ritverk skáldsins Heinrichs Heine í óbundnu máli og viðhorf þess til ýmissa þátta í samtíð skáldsins. Í þættinum eru fluttir kaflar úr prósaverkum Henes í áður óbirtri þýðingu umsjónarmanna.
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlist frá Þýskalandi.
Hanno Busch (1975) - Framework
Hanno Busch er verðlaunaður gítarleikari frá Wuppertal. Fyrra lag hans í þættinum er flutt með aðstoð stórsveitar v þýska útvarpsins..
Luise Volkman er saxófónleikari frá Köln sem hefur búið til djassóperun Stories we tell. Hljómsveit hennar Été Large hlaut þýsku djasstónlistarverðlaunin í lok apríl sl.
Luise Volkmann (1992) - Child of Both
Luise Volkmann (1992) - Like the Back of our Hands
Luise Volkmann (1992) - Oper Der Trampelpfade Satz 2
Nicole Johänntgen er svissnesk/þýsk listakona sem er einnig Íslandsvinur, en hún stóð fyrir djasssmiðju um konur í spunatónlistinni á Djasshátíð Reykjavíkur fyrir hálfum öðrum áratug síðan. Tónlist hennar í þættinum er flutt af kvartettinum Henry.
Nicole Johänntgen (1981) - Elephant Walk
Nicole Johänntgen (1981) - You Gotta Dance with Me
Nicole Johänntgen (1981) - Straight Blues, Baby, Straight
Hanno Busch (1975) - Calibration

Fréttir
Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Haustið 1983 skaut sovésk orrustuþota niður suðurkóreska farþegaþotu, Korean Airlines flug 007 frá New York til Seúl, með þeim afleiðingum að allir um borð fórust.

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.
Sveiflutónlist og söngdansar að hætti hússins.
Jónatan Garðarsson valdi.
Kenny Barron og hljómsveit leika lögin Here's That Rainy Day, A Flower, Darn That Dream, The Meantime, Cinco og Two Areas. Chris Cody Coalition flytur lögin African Dance, Green´s Peace, Shadow Across The Land, Flooze Blooze og Gare de l'Est. Orgelleikarinn Jimmy Smith og hljómsveit leika lögin Tenderly, Slow Freight, You Better Go Now, Lil' Darlin' og Days Of Wine And Roses.
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Eiríkur Rögnvaldsson boðaði minni einstrengingshátt og umvandanir þegar hann tók við umsjón með þættinum Daglegu máli árið 1984. Hann sagðist ekki andvígur því að fólk vandaði mál sitt heldur taldi hann að aukin fræðsla og þekking væri vænlegri leið en boð og bönn til að fá fólk til að vanda mál sitt.
Síðar sama sumar ræddi Eiríkur í Daglegu máli um orð sem venja er að séu höfð í eintölu fá fleirtölu. Um þetta hefur hann oft skrifað pistla eftir að hann gerðist uppgjafaprófessor og tók til við að fræða almenning.

Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Steinar Logi Helgason, organisti og kórstjóri í Hallgrímskirkju, segir frá sínu uppáhalds tónverki.
Sviatoslav Richter leikur Píanósónötu nr. 5 eftir Alexander Scriabin.

Í Sagnaslóð er leitað fanga úr fortíðinni. Frásagnir úr sögu þjóðarinnar.
Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson.
Umsjón: Jón Ormar Ormsson
Í þættinum er frásögn af heimsókn í arnarhreiður á Snæfellsnesi á sjötta tug síðustu aldar. Frásögnin er eftir Birgir Kjaran og birtist í bók hans Haförninn. Horft í augu hafarnar heitir sá þáttur sem lesin er og kynnast hlustendur lifanðarháttum össu og fleiri fugla. Og síðsst en ekki síst, nokkur kynni af ófleygum en stálpuðum unga sem í þessu hreiðri var að búa sig undir fyrstu flug sín.
Birgir Kjaran ( 1916- 1976) Haförninn/Bókfellsútgáfan 1967 32,00
Lesari með umsjónarmanni Sigríður Kristín Jónsdóttir 130563 5039 19,00
Tónlist;
Nú tjaldar foldin fríðar/Mozart/Þorsteinn Erlingsson/
Þuriður Pálsdóttir/Jórun Viðar
Sumarkveðja/Ingi T. Lárusson/Páll Ólafsson
Kór Áskirkju.
23. október 2009


frá Veðurstofu Íslands

Leikin er gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög. Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum. Umsjónarmaður þáttarins er Lana Kolbrún Eddudóttir.
Fjallað um Sigfús Halldórsson, fyrri þáttur.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Heimir Hannesson, Ólafur Stephensen og Rósa Björk Brynjólfsdóttir voru gestir Vikulokanna að þessu sinni. Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið og myndun nýs meirihluta í Reykjavík voru til umræðu.
Umsjón: Magnús Geir Eyjólfsson

Útvarpsfréttir.
Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.
Húsvíkingurinn Lára Sóley Jóhannsdóttir er komin með mikla reynslu af stjórnun menningarviðburða þrátt fyrir ungan aldur og starfar nú sem listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík. Hennar fyrsta hátíð er einmitt að byrja í dag og Lára Sóley kom í fimmu í tilefni dagsins. Þar ræddi hún fimm listviðburði sem hafa haft áhrif á líf hennar og það fór frá Tónlistarveislu á Húsavík yfir í Víking Heiðar á Proms
Svo hringdum við í Samúel Jón Samúelsson en hann á stórt tónverk með 500 krakka lúðrasveit á opnunarhátíð Listahátíðar í dag

Gísli Marteinn Baldursson og Sandra Barilli leiða hlustendur inn í laugardaginn, taka stöðuna á fólki og fréttum, spila góða tónlist og fá til sín vel valda gesti í skemmtilegt spjall.
Gísli Marteinn og Sandra Barilli spila góða tónlist og spjalla um daginn og veginn. Fá á seinni tímanum Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra til sín og fá glóðvolgar fréttir í beina útsendingu um að Arne Slot þjálfari Liverpool hafi verið rekinn.
HJALTALÍN - The Trees Don't Like The Smoke.
Flott - 20 og eitthvað.
Snorri Helgason, Bríet - Mexico.
Chappell Roan - Pink Pony Club.
Jón Jónsson Tónlistarm., Herra Hnetusmjör - Las á milli línanna.
FRIÐRIK DÓR - Fröken Reykjavík.
BUBBI MORTHENS OG DAS KAPITAL - Blindsker.
EUROPE - The Final Countdown.
TOPLOADER - Dancing In The Moonlight.
Þormóður Eiríksson, GDRN - Manstu.
Útvarpsfréttir.
Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna segir ríkið auðveldlega geta hafið stríðið við Íran að nýju. Forseti Bandaríkjanna tók enga ákvörðun um fyrirliggjandi samningsdrög í gær, þrátt fyrir að hafa áður boðað ákvörðun.
Forseti Úkraínu segir að Rússar undirbúi mjög stóra árás á landið og hvetur íbúa til að grípa til ráðstafana til að tryggja öryggi sitt. Rússar hafa beðið sendifulltrúa sína í Úkraínu að yfirgefa landið.
Ótímabundnu verkfalli háseta og bátsmanna er lokið eftir að samkomulag náðist við Eimskip um mönnun þriggja skipa.
Líffræðingur hjá Náttúruminjasafni Íslands segir slappt regluverk um framandi ágengar tegundir þýða að íslensk náttúra sé varnarlaus. Ný aðgerðaáætlun stjórnvalda þurfi að tryggja skýrt regluverk og öflugt eftirlit.
Sauðfjárbóndi á Austurlandi segir vetrarfærð og snjókomu í gær hafa gengið yfir áfallalaust. Vel tókst að koma öllu fé í skjól.
Kvikmyndin "Ástin sem eftir var" var sigursæl á Edduverðlaunahátíðinni í gærkvöld og fékk sjö verðlaun. Sjónvarpsþættir um Vigdísi Finnbogadóttur hlutu sex verðlaun.
Enska knattspyrnufélagið Liverpool hefur rekið hollenska knattspyrnustjórann Arne Slot. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag. Veðbankar telja Andoni Iraola líklegastan til að taka við starfinu.

Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Kristján Freyr setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær að hljóma.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Tæplega fimmtíu ára tónlistarferill Bubba Morthens krufinn til mergjar í tali og tónum í tilefni af sjötugsafmælisárinu. Boðið upp á fágætar tónleikaupptökur, viðtöl og umfjallanir um tónlist og texta Bubba sem sumar hverjar hafa ekki heyrst í áraraðir á öldum ljósvakans.
Umsjón: Ásgeir Eyþórsson
Í fimmtánda þætti eru árin 2018 til 2022 til umfjöllunar þegar Bubbi sendi m.a. frá sér plöturnar Regnbogans stræti og Sjálfsmynd. Í þættinum má m.a. heyra valdar klippur úr eftirtöldum þáttum: Árið er, Lestin, Plata vikunnar, Poppland og Síðdegisútvarp Rásar 2.
Viðmælendur í fimmtánda þætti eru Andrea Jónsdóttir, Arnar Eggert Thoroddsen, Bríet Ísis Elfar, Bubbi Morthens, Guðmundur Óskar Guðmundsson, Ólafur Egill Egilsson og Pálmi Ragnar Ásgeirsson.
Viðtöl: Ásgeir Eyþórsson, Eiríkur Guðmundsson, Guðmundur Pálsson, Gunnlaugur Jónsson og Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Lagalisti:
Bubbi - Regnbogans stræti
Bubbi - Skríða
Bubbi - 21 tafla
Bubbi & Halldóra Katrín - Án þín
Bubbi - Límdu saman heiminn minn
Bubbi - Verstu dagarnir eru bestir
Bubbi - Velkomin
Snorri Helga, Bubbi & Steingrímur Teague - Á mölina
Guðmundur R. & Bubbi - Perla
Bubbi - Sól rís
Halldóra Geirharðsdóttir - Fjöllin hafa vakað (9 líf)
Aron Mola og Rakel Björk - Rómeó og Júlía (9 líf)
Björn Stefánsson - Hisoshima (9 líf)
Esther Talía Casey - Talað við gluggann (9 líf)
Elín Hall - Er nauðsynlegt að skjóta þá (9 líf)
Bubbi - Ertu góður
Bubbi - Á horni hamingjunnar
Bubbi - 12 hvítir hestar
Bubbi - Hungur
Bubbi & Bríet - Ástrós
Bubbi - Ennþá er tími
Bubbi - Hver dagur
Bubbi & Auður - Tárin falla hægt
Bubbi - Sunnudagur (með laugardagskvöld í fanginu)

Útvarpsfréttir.

Hvernig hljómaði vikan? Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunar á Rás 2, alla laugardaga frá 16-18. Þær rifja upp vikuna, líta í baksýnisspegilinn og skoða smelli fyrri tíma, spá fyrir um hvaða lög eru líkleg til vinsælda. Skemmtilegt spjall og fróðleikur í bland, en fyrst og fremst frábær tónlist.
Umsjón: Ragga Holm og Vilborg Kristín Þrastardóttir.

Útvarpsfréttir.

Fréttir

Blönduð tónlist sem fer vel á meðan sunnudagssteikin mallar í ofninum.

Fréttastofa RÚV.

Tekið er á móti gesti sem fer í gegnum lög sem svör við ákveðnum spurningum. Hvað var fyrsta lagið sem þú hlustaðir á aftur og aftur? Hvaða lag myndiru spila til að loka frábærum degi? Hvert er jarðarfaralagið þitt? Þetta eru nokkrar af þeim spurningum sem poppa upp en svo fylgir einhverskonar æviágrip með í kjölfarið.
Atli Már Steinarsson tekur á móti gesti sem fer í gegnum uppáhaldslög frá mismunandi tímum.
Gestur Matta er tónlistarmaðurinn og fyrrum knattspyrnudómarinn Garðar Örn Hinriksson

Heiða Eiríks og Ingi Þór stjórna Næturvaktinni til skiptis. Þau spjalla við landann og spilar tónlist úr öllum áttum á laugardagskvöldum. Ljúfir tónar, brjálað rokk og óskalög úr öllum landshornum.
