
Sumarmál
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Við fengum ferðasögu í dag, eins og alla föstudaga í sumar. Þau Björk Vilhelmsdóttir, félagsráðgjafi, og Magnús Magnússon, rafmagns- og tölvuverkfræðingur, komu í þáttinn og sögðu okkur frá sjálfboðliðastarfi sem þau hafa sinnt í Palestínu, nánar tiltekið á Vesturbakkanum. Magnús fór árið 2013 og Björk hefur farið talsvert oftar. Árið 2013 var ólífuuppskera á meðan á dvöl þeirra stóð og það reyndist þrautin þyngri að ná uppskerunni í hús. Ástandið var slæmt þá og hefur hríðversnað. Björk og Magnús sögðu frá sinni reynslu í þættinum, meðal annars að erlendir sjálfboðaliðar virki sem verndandi viðvera, því ísraelski herinn og ólöglegir landnemar beita minni hörku og ofbeldi ef sjálfboðaliðar eru til staðar.
Svo var fugl dagsins auðvitað á sínum stað.
Tónlist í þættinum:
Með þér / Ragnheiður Gröndal (Bubbi Morthens)
Hafið er svart / Jónas Sigurðsson og ritvélar framtíðarinnar (Jónas Sigurðsson, texti eftir Jónas og Ásgrím Inga Arngrímsson)
Leve Palestina / Kofia (Georg Totari, Kofia)
Dami Falasteeni / flytjandi ókunnur (höfundur ókunnur)
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG ARNHILDUR HÁLFDÁNARDÓTTIR

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.