• 00:06:49Fugl dagsins
  • 00:17:06Hryllingsritsmiðja Gunnar Theodór og krakkar
  • 00:33:13Veganestið-Páll Ásgeir Ásgeirsson

Sumarmál

Fugl dagsins, Veganesti - gönguskórnir, krakkar sem elska hrylling

Fugl dagsins verður kynntur til leiks hér rétt strax og við bryddum uppá nýjung því við ætlum að gefa vísbendingar og hljóð eins og venjulega.

Veganestið er á sínum stað með Páli Ásgeiri Ásgeirssyni. Útbúnaður af ýmsum toga fyrir byrjendur er þema pistilsins í dag en sá útbúnaður þarf alls ekki að vera dýr segir Páll: aðalatriðið eru góðir skór. Ullin stendur sannarlega fyrir sínu, lopapeysa, ullarhúfa, ullarvettlingar og ullarsokkar. Gamlir strigaskór duga langt ef fólk er að ganga eftir stígum eða götum og það er mikilvægt að horfa undir skóinn þegar maður kaupir nýja skó til göngu, sólinn er aðalatriðið.

Krakkar elska hrylling – líklega meira en margir vilja viðurkenna - þetta veit Gunnar Theodór Eggertsson, rithöfundur, og blés því á dögunum til hryllilegrar ritsmiðju fyrir 9-12 ára krakka á borgarbókasafninu í Úlfarsárdal - Sumarmál kíktu þar við.

Tónlist:

Ríó tríó - Af stað.

Fjallabræður, Hljómsveit, Sveinbjörn Hafsteinsson - Faðmlag.

Geirfuglarnir - Byrjaðu í dag að elska.

Fitzgerald, Ella, Buddy Bregman Orchestra - So in love.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Sumarmál

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Þættir

,