
Sumarmál
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Nauðsynlegt er að öllu starfsfólki á heilsugæslunni sé kennt meira um önnur bjargráð og úrræði við því hvernig eigi að meðhöndla sjúklinga sem þangað leita með einkenni þunglyndis. Þetta segir Svala Sigurðardóttir sérnámslæknir í heimilislækningum og doktorsnemi í lýðheilsuvísindum í Árósum. Hún segist hafa getað talið á fingrum annarrar handar þegar hún ávísaði þunglyndislyfjum í Danmörku sem heimilislæknir en hér á landi væri það nánast daglega. Þetta skýrist einnig af miklum hluta til vegna tímaskorts hjá heimilislæknum og viðvarandi manneklu á heilsugæslunni. Það séu fjöldamörg úrræði í boði við vægum og meðalvægum einkennum þunglyndis á borð við hreyfiseðla, hugrænar atferlismeðferðir, hópnámskeið í núvitund svo eitthvað sé nefnt en það þurfi að kynna úrræðin fyrir heilsugæslunni og innleiða þau með réttum hætti. Svala ræddi þetta við okkur í þættinum.
Páll Ásgeir Ásgeirsson, leiðsögu- og útivistarmaður, var svo með okkur í dag eins og aðra þriðjudaga í sumar með það sem við köllum Veganestið. Í dag og næstu þriðjudaga ætlar hann að tala um sértæka staði í hverjum landshluta fyrir sig. Páll Ásgeir byrjaði á þeirri yfirferð í dag á Vestfjörðum og fór yfir áhugaverða og nokkuð fáfarna staði í þeim landshluta sem gaman er að skoða og upplifa á leið sinni um landið.
Svo verður fugl dagsins auðvitað á sínum stað.
Tónlist í þættinum:
Traustur vinur / Upplyfting (Jóhann G. Jóhannsson)
Vor í Vaglaskógi / Vilhjálmur Vilhjálmsson og hljómsveit Ingimars Eydal (Jónas Jónasson, texti Kristján frá Djúpalæk)
Ameríka (úr Hljómskálanum) / Valdimar Guðmundsson og Þorsteinn Einarsson (Bragi Valdimar Skúlason, texti Magnús Eiríksson)
Stingum af / Mugison (Örn Elías Guðmundsson)
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG HELGA ARNARDÓTTIR

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.