
Sumarmál
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Undanfarin þrjátíu ár hefur lundastofninum á Íslandi hnignað. Umhverfisstofnun metur það svo að veiðar séu ekki sjálfbærar en getur vegna skorts á lagalegum úrræðum ekki gert annað en að biðla til veiði- og veitingamanna sem matreiða lundann ofan í ferðamenn og heimamenn – höfða til samvisku þeirra. Í gær smökkuðum við Lunda með sinnepssósu á Þremur frökkum og ræddum sýn eigandans Stefáns Úlfarssonar á lundaveiðar og lundaát, í dag ræðum við bága stöðu lundastofnsins við Bjarna Jónasson, teymisstjóra í teymi lífríkis og veiðistjórnunar hjá Umhverfisstofnun.
Við fáum póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni. Í póstkorti dagsins segir Magnús frá því að þrátt fyrir að hafa búið í Eyjum á fjórða ár þá sé hann ekki enn búinn að finna í sér Eyjamanninn, nema bara í músíkinni. Hann segir líka frá tónlistinni sem er iðkuð á eyjum vítt og breitt um veröldina, frá því hvernig fjölmiðlar, samgöngur og tækni hafa útrýmt tungu íbúanna á Hawaii. Hann segir líka frá Goslokahátíðinni sem hefst á morgun í Vestmannaeyjum .
Fugl dagsins verður svo auðvitað á sínum stað.
Tónlist í þættinum:
Grýla / Hrekkjusvín (Leifur Hauksson og Pétur Gunnarsson)
Sunny Road / Emilíana Torrini (Emilíana Torrini og Dan Carey)
Egils appelsín / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna)
Töfrar / Silfurtónar (Júlíus H. Ólafsson)
Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Gunnar Hansson.

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.