
Sumarmál
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Fugl dagsins.
Safn vikunnar í þetta sinn er Borgarsögusafn Reykjavíkur. Á safninu er öflugt viðburðarstarf yfir sumartímann hvort sem er á Árbæjarsafni, Viðey, Sjóminjasafninu, Aðalstræti eða Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Við förum yfir þá spennandi dagskrá með Helgu Maureen Gylfadóttir deildarstjóra miðlunar, safnfræðslu og viðburða á safninu. Með henni kemur Sigurlaugur Ingólfsson, verkefnisstjóri á Árbæjarsafninu.
Við förum í heimsókn til Guðrúnar Bjarnadóttur í Hespuhúsinu, rétt utan við Selfoss, en þar koma hópar erlendra ferðamanna að fylgjast með Guðrúnu lita lopa úr jurtum og ýmsu sem hún er með á prjónunum. Erlendir prjónahópar eru einnig reglulegir gestir. Hespuhúsið er yfir 400 fermetrar með öllu og það var langþráður draumur hjá Guðrúnu að opna það og tókst svo loksins í febrúar árið 2020 um leið og Kórónufaraldurinn skall á og öllu var skellt í lás.
Tónlist:
Ásgeir Trausti Einarsson - Sumargestur (Einar Georg Einarsson samdi textann).
Elly Vilhjálms - Ég veit þú kemur (Oddgeir Kristjánsson og Ási í Bæ.
Unnur Sara Eldjárn - Pourquoi vous? (Francoise Hardy & Joseph Calogero).
Let’s Misbehave – Elvis Costello (Cole Porter)
Umsjón: Gunnar Hansson og Arnhildur Hálfdánardóttir

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.