
Sumarmál
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Hlaðgerðarkot í Mosfellsdal er elsta starfandi meðferðarheimili landsins. Þar er unnið með einstaklinga sem eiga við fíknivanda að stríða og þar starfar þverfaglegt teymi, læknis, hjúkrunarfræðings, félagsráðgjafa og áfengis- og fíkniráðgjafa ásamt því sem umsjónarmenn eru við störf allan sólahringinn og eru til stuðnings þeim sem eru í meðferð. Núna 6.júlí er Hlaðgerðarkot 50 ára. Signý Guðbjartsdóttir forstöðukona ræðir við okkur.
Fugl dagsins lætur í sér heyra og svo er það safn vikunnar – fyrir þau sem eru söguþyrst. Að þessu sinni er það Minjasafn Austurlands en sumarsýningin í ár ber yfirskriftina Landnámskonan. Þar eru meðal annars sýndir forngripir sem fundist hafa í Firði í Seyðisfirði og gripir sem tilheyrðu Fjallkonunni svokölluðu sem fannst á Vestdalsheiði. Þessir gripir hafa aldrei áður verið sýndir á Austurlandi svo hér er um stóran viðburð að ræða. Elsa Guðný Björgvinsdóttir er safnstjóri.
Tónlist:
Ragnheiður Gröndal - Landgangur.
Elly Vilhjálms - Heilsaðu frá mér.
Hljómar - Tasko Tostada.
Bubbi Morthens - Þingmannagæla.

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.