Public Enemy - Þjóðarógnin

2. þáttur

Saga Public Enemy hófst með látum. Fyrsta platan Yo! Bum Rush the Snow kom út 1987 og kjölfarið kom út meistarastykkið It takes a Nation of Million to Hold Us Back. Hornsteinar í hipp hopp sögunni. Síðan fylgdi hvert meistarverkið í kjölfarið. Fimm neglur í röð sem gerðu Public Enemy einni mikilævægustu og stærstu hipp hopp sveit sögunnar. En Public Enemy gerði annað og meira. Public Enemy var rödd. Mikilvæg rödd svartra, fátækra. Eitt risastórt andóf. Aggressív, hávær og sprúðlandi andstaða gegn kúgun og óréttæti.

Umsjón: Erpur Eyvindarson, Freyr Eyjólfsson og Markús Hjaltason.

Frumflutt

16. apríl 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Public Enemy - Þjóðarógnin

Ein áhrifamesta og vinsælasta rappsveit verladar, Public Enemy fagnar 40 ára afmæli um þessar mundir. Af því tilefni verður rifjuð upp saga sveitarinnar og áhrif hennar.

Public Enemy hafa alla tíð verið rammpólitískir aktívistar og fjallað um kynþáttamisrétti, óréttlæti, lögregluofbeldi, ofsóknir og fleira í textum sínum. Því er gagnlegt rýna í ástand og þróun mála í Bandaríkjunum með því skoða sögu Public Enemy. Kjaftfor andspyrnuhreyfing sem þorir segja sannleikann. Rætt verður við fólk sem tengist sveitinni og spilað viðtal sem Erpur tók við forsprakka sveitarinnar, Chuck D.

Umsjón: Erpur Eyvindarson, Freyr Eyjólfsson og Markús Hjaltason.

Þættir

,