Public Enemy - Þjóðarógnin

1. þáttur

Public Enemy er 40 ára. Hún var stofnuð árið 1985 af þeim Charlton Ridenhour, betur þekktur sem Chuck D og William Drayton, betur þekktur sem Flavor Flav. Þeir voru báðir nemar í Adelphi háskólanum á Long Island. Hipp hoppið varð til Bronx hverfinu í byrjun áttunnar, í einu harðasta gettói New York. Þar byrjuðu plötusnúðar leika sér því blanda saman töktum og bútum, leika sér með tvö plötuspilara og hljóðblandara, trommuheila og fóru framkalla nýja tónlist úr gamalli. Fljótlega fór fólk rappa yfir þessa taktöstu tónlist. Chuck D og Flav voru snemma komnir á bragðið og stofnuðu hljómsveitina Spectrum City - sem síðan varð Public Enemy.

Umsjón: Erpur Eyvindarson, Freyr Eyjólfsson og Markús Hjaltason.

Frumflutt

16. apríl 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Public Enemy - Þjóðarógnin

Ein áhrifamesta og vinsælasta rappsveit verladar, Public Enemy fagnar 40 ára afmæli um þessar mundir. Af því tilefni verður rifjuð upp saga sveitarinnar og áhrif hennar.

Public Enemy hafa alla tíð verið rammpólitískir aktívistar og fjallað um kynþáttamisrétti, óréttlæti, lögregluofbeldi, ofsóknir og fleira í textum sínum. Því er gagnlegt rýna í ástand og þróun mála í Bandaríkjunum með því skoða sögu Public Enemy. Kjaftfor andspyrnuhreyfing sem þorir segja sannleikann. Rætt verður við fólk sem tengist sveitinni og spilað viðtal sem Erpur tók við forsprakka sveitarinnar, Chuck D.

Umsjón: Erpur Eyvindarson, Freyr Eyjólfsson og Markús Hjaltason.

Þættir

,