• 00:14:08Skynjunarleikföng springa
  • 00:29:25Korter í ESB kosningar
  • 00:50:31B verður 8
  • 01:15:25Sportmolinn

Morgunútvarpið

WNBA deildin,skynjunarleikföng springa,Korter í kosningar um ESB og 8 verður B

Vinsælt skynjunarleikfang veldur foreldrum áhyggjum og sumar tegundir hafa verið innkallaðar. Í fréttum RÚV í vikunni heyrðum við í leikskólakennara sem sagðist hafa fengið nóg af slíku dóti þegar það sprakk í höndum barns hennar. Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar, sem veitir upplýsingar um hættulegar vörur, hefur varað við ákveðinni vöru og fengið ábendingar um fleiri sem eru til skoðunar. Herdís Bjök Brynjarsdóttir, sérfræðingur í markaðseftirliti HMS, var á línunni.

er rétt rúmlega korter í þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður við ESB og þá er málið félagana Magnús Sigurbjörnsson og Pétur Ólafsson úr hlaðvarpinu korter í kosningar til rýna í stöðuna með okkur.

Grunnskólarnir eru farnir af stað um allt land en það er einn hængur á: Óvissa ríkir um hvernig haga eigi námsmati á nýju skólaári en skólastjóri Garðaskóla í Garðabæ sagði fréttum RÚV í vikunni enginn vissi almennilega hvernig ætti gera þetta. Hvernig horfir staðan við kennurum? Ragnheiður Stephensen kennari kom til okkar.

Almarr Ormarsson mætir til okkar og fræddi okkur um stöðuna í WNBA deildinni í Bandaríkjunum.

Birt

27. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,