Morgunútvarpið

Vantraust á Infantino,samband Íslands við Línu Langsokk,aðstoða börn við heimanám og ESB

Samtökin Heimili og skóli og Reykjavíkurborg taka höndum saman og ætla bjóða upp á aðstoð við heimanám fyrir grunnskólabörn og foreldra þeirra á Borgarbókasafninu í Kringlunni og Borgarbókasafninu í Gerðubergi. Markmiðið er fyrst og fremst stuðla jöfnum tækifærum barna til náms í Reykjavík og veita þeim aðstoð við heimanám sem á þurfa halda. Sigurður Sigurðsson, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla sagði okkur frá þessu.

Lína Langsokkur birtist landi og þjóð fyrst sem framhaldssaga í Morgunblaðinu vorið 1946 þá undir nafninu Lóa langsokkur, ekki er vitað hvaða ágæti blaðamaður fékk það verkefni þýða söguna. Sigríður Jónsdóttir starfar á Leikminjasafninu, sérsafni um sviðslistir á Landsbókasafni, og rannsakar um þessar mundir viðtökur, þýðingar og þróun Línu Langsokks á Íslandi. Lína steig fyrst á svið árið 1960 og Sigríður leitar fólki sem sýninguna eða kom uppsetningunni. Hún kom til okkar.

FIFA Knattspyrnusamböndin á Norðurlöndum hafa gefið út sameiginlega yfirlýsingu um stöðu mála hjá FIFA og segjast ekki lengur treysta forseta þess, Gianni Infantino. Þetta gerist í kjölfarið á því Infantino lagði til stofnun á FIFA Forward Enterpries tillöguna, þar sem stóð til selja hluta af mótahaldi og markaðssetningu FIFA, sem og stjórnarháttum og skipulagi FIFA. Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ, var á línunni.

Þjóðin gengur til kosninga um aðildarviðræður við ESB á laugardag og við höldum áfram ræða málið. Frænkurnar Snærós Sindradóttir, framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar og Erna Bjarnadóttir, stjórnarmaður í Heimssýnar tókust á.

Birt

24. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,