Morgunútvarpið

Sparkað af hjarta,sjálfbærar veiðar,Menntastoðir og Hildur Björnsdóttir

Framtíð matvælaframleiðslu og matvælarannsókna verður rædd á málþingi Matís í Hörpu í dag. Sjávarútvegurinn kemur sjálfsögðu þar við sögu og á meðal þess sem verður rætt eru snjallar og sjálfbærar veiðar og tæknilausnir sem sem tengjast þeim. Jónas R. Viðarsson, sviðsstjóri rannsókna og nýsköpunar hjá Matís,kom og sagði okkur frá þessu.

Nemendur sem finna sig ekki í almennri skólagöngu hafa fundið sig á námsbrautinni Menntastoðir hjá Mími, símenntun. Arnar Már Hólm Bergþórsson er einn af þeim en hann var klára brautina og stefnir á háskólagrunn í HR í haust. Hann kom til okkar ásamt Sólrúnu Helgu Guðmundsdóttur, verkefnastjóra hjá Mími.

Hildur Björnsdóttir tekur við formlega við embætti borgarstjóra á borgarstjórnarfundi í dag. Hún fer fyrir nýjum meirihluta Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins sem birtir jafnframt verkefnalistann sinn á vefsíðunni verkefnalisti.is í dag. Hildur borgarstjóri kom til okkar og fór yfir verkefnalistann.

Í kvöld fer fram ansi sérstakur fótboltaleikur þar sem hópur frægra einstaklinga mætir nemendum úr Langholtsskóla. Leikurinn er hluti af verkefninu Sparkað af hjarta, sem nokkrir strákar úr 10. bekk settu á fót til safna peningum fyrir Unicef. Á meðal þeirra sem skipa lið frægra eru leikararnir Jóhannes Haukur og Villi Neto og körfuboltakappinn Kristófer Acox. Leikurinn fer fram á AVIS-vellinu og hefst klukkan 19. Steinþór Páll Atlason nemi og Villi Neto komu til okkar.

Birt

2. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,