Eitt lykilatriðið í því að starfsfólk fari ekki í hrönnum út af vinnustaðnum og í kulnun er að það upplifi sanngirni á vinnustaðnum. Þetta kemur fram í nýjasta tölublaði Tímarits um viðskipti og efnahagsmál sem viðskipta- og hagfræðideildir íslensku háskólanna gefa út í sameiningu. En hvað er sanngirni á vinnustað og hvernig má tryggja hana? Arney Einarsdóttir dósent við Háskólann á Bifröst og einn höfunda greinarinnar sagði okkur frá því.
Ef einhvert hélt að við þinglok í maí tæki við rólyndistími í pólitíkinni, þá er það hið sama að vakna upp við vondan draum núna. Pallborðsumræður ríkisstjórnarleiðtoganna á Vísi í gær vöktu rækilega athygli en þar hótaði Bjarni Benediktsson stjórnarslitum undir rós, vegna hvalveiðibanns Svandísar Svavarsdóttur, og dró fram dauðarefsingar í Bandaríkjunum sem dæmi um hræsni bandaríkjamanna þegar kemur að gagnrýni á Ísland fyrir að stunda veiðarnar. Við ræddum stjórnarsamstarfið og stöðuna í íslenskri pólitík við Eirík Bergmann stjórnmálafræðiprófessor.
KIA Gullhringurinn er nú haldinn í 12. sinn en keppnin var fyrst haldin árið 2012 á Laugarvatni og hefur fyrir löngu skapað sér fastan stað í mótadagatali hjólreiðafólks. Nú er svo komið að á Selfossi er keppnin orðin tveggja daga viðurður. Einar Bárðarson fór yfir fyrirkomulagið á keppninni með okkur.
Nú þegar fréttir berast að lúsmýið sé komið á kreik vaknaði sú spurning hjá okkur hvort ekki væri hægt að halda óværunni frá okkur heimavið eða í bústaðnum með náttúrulegum hætti. Kannski ásamt því að nota flugnanet og annað slíkt. Hvaða plöntur t.d. er hægt að halda sem pottablóm eða slíkt sem flugunum líkar bara alls ekki nærveran? Bryndís Eir Þorsteinsdóttir hefur skoðað hvaða plöntur er best að nota til að fæla frá óæskileg skordýr.
Já og við gáfum skjálftunum í Mýrdalsjökli og nærri Kötlu gaum í þættinum. Er hún ekki bara eitthvað að stríða okkur og meinar ekkert með þessu? Magnús Tumi Guðmundsson prófessor í jarðeðlisfræði svaraði því.
Tónlist:
ÍRAFÁR - Fingur.
KRASSASIG - Einn Dag Í Einu.
BLONDIE - Maria.
OF MONSTERS & MEN - Wolves Without Teeth.
KALEO - Hey Gringo.
LA ZARRA - Évidemment
EGÓ - Fjöllin Hafa Vakað.
LEWIS CAPALDI - Wish You The Best.