Ný plata frá Alaska1867 og Smáborg, Háborg á Kjarvalsstöðum
Í menningarpúlsi vikunnar er rætt um 1867 nýja breiðskífu frá tónlistarkonunni Alaska1867, og sýninguna Smáborg, Háborg á Kjarvalsstöðum.
Gestir Júlíu Margrétar að þessu sinni voru Sólveig Arnarsdóttir leikkonar, Vignir Rafn Valþórsson leikstjóri og Sverrir Norland rithöfundur. Rætt var um Gunnellu í Tjarnarbíói, Öld ímyndunaraflsins eftir Berg Ebba, hljómsveitina U2 og 79 af stöðinni. Menningarstofnanirnar Tjarnarbíó og Bíó Paradís voru mærðar og nútímalist sett í samhengi við gervigreind og einmanaleikann sem ákveðinn faraldur.

Púlsinn tekinn á menningarlífi landsins í lok viku. Rætt um menningu í vikunni sem er að líða, það sem er efst á baugi þessa stundina og framundan um helgina.
Umsjón: Júlía Margrét Einarsdóttir