Ný plata frá Alaska1867 og Smáborg, Háborg á Kjarvalsstöðum
Í menningarpúlsi vikunnar er rætt um 1867 nýja breiðskífu frá tónlistarkonunni Alaska1867, og sýninguna Smáborg, Háborg á Kjarvalsstöðum.
Í þessum fyrsta þætti var fjallað um heimildarmyndina Í skóm drekans. Haldið var upp á 240 ára afmæli Reykjavíkur og 200 ára kaupstaðarafmælið árið 1986 var rifjað upp, þegar Reykjavíkurborg bauð upp á 200 metra köku í miðbæ Reykjavíkur. Gestir Júlíu Margrétar Einarsdóttur voru þau Þórdís Gísladóttir rithöfundur, Úlfur Eldjárn tónlistarmaður og Stefán Ingvar Vigfússon uppistandari. Rætt var um myndlist, uppistand og hámhorf í flugvélum.

Púlsinn tekinn á menningarlífi landsins í lok viku. Rætt um menningu í vikunni sem er að líða, það sem er efst á baugi þessa stundina og framundan um helgina.
Umsjón: Júlía Margrét Einarsdóttir