Ný plata frá Alaska1867 og Smáborg, Háborg á Kjarvalsstöðum
Í menningarpúlsi vikunnar er rætt um 1867 nýja breiðskífu frá tónlistarkonunni Alaska1867, og sýninguna Smáborg, Háborg á Kjarvalsstöðum.
Viðmælendur Júlíu Margrétar voru þau Steinunn Sigurðardóttir skáld, Arndís Þórarinsdóttir rithöfundur og Agnar Jón Egilsson leikari. Rætt var meðal annars um slaufunarmenningu, ritskoðun á list, ólíkindatólið Tyrfing Tyrfingsson, Heimsljós, nýja bók Steinunnar Sigurðardóttur og PISA könnunina.

Púlsinn tekinn á menningarlífi landsins í lok viku. Rætt um menningu í vikunni sem er að líða, það sem er efst á baugi þessa stundina og framundan um helgina.
Umsjón: Júlía Margrét Einarsdóttir