Leðurblakan

19. Börnin sem fuðruðu upp

Á aðfaranótt jóladags 1945 brann hús fjölskyldu nokkurrar í smábæ í Vestur-Virginíu til grunna. Sodder-hjónin og þrjú börn sluppu út við illan leik, en hin börnin þeirra fimm hurfu inn í eldhafið.

Eftirlifandi fjölskyldumeðlimir urðu þó fljótt handviss um börnin hefðu ekki farist í brunanum - enda fundust líkamsleifar þeirra aldrei í brunarústunum.

Þá bentu ýmsir dularfullir atburðir sem fjölskyldan varð vitni að, fyrir og eftir brunann, til þess kveikt hefði verið í, og börnunum rænt.

Frumflutt

27. jan. 2020

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Leðurblakan

Leðurblakan

Leðurblökur eru skuggaleg og skringileg dýr sem hafast við í dimmum hellum og skúmaskotum. Þær eru sjaldséðar hér á landi en slæðast þó hingað af og til. Í Leðurblökunni er fjallað um ýmsar ráðgátur og sakamál, og önnur dularfull og sérkennileg mál úr sögunni. Þættirnir voru áður á dagskrá Rásar 1 árið 2014. Umsjónarmaður: Vera Illugadóttir

Þættir

,