Leðurblakan

11. Konan í Ísdalnum

Á fallegum vetrardegi 1970 rakst maður á göngu um Ísdalinn í nágrenni Bergen á illa brunnið lík konu í fjallshlíðinni.

Við eftirgrennslan lögreglu kom í ljós mánuðina fyrir andlát sitt hafði konan ferðast vítt og breitt um Noreg og Evrópu, en notast á ferðum sínum við ótal mismunandi fölsk nöfn og fölsuð skilríki.

Frumflutt

2. des. 2019

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Leðurblakan

Leðurblakan

Leðurblökur eru skuggaleg og skringileg dýr sem hafast við í dimmum hellum og skúmaskotum. Þær eru sjaldséðar hér á landi en slæðast þó hingað af og til. Í Leðurblökunni er fjallað um ýmsar ráðgátur og sakamál, og önnur dularfull og sérkennileg mál úr sögunni. Þættirnir voru áður á dagskrá Rásar 1 árið 2014. Umsjónarmaður: Vera Illugadóttir

Þættir

,