Leðurblakan

13. Eitraða konan

Kvöld eitt árið 1994 veiktust tugir starfsmanna á bráðamóttöku sjúkrahúss í Kaliforníu, fengu heiftarleg flog og misstu meðvitund í hrönnum. Veikindi þeirra virtust tengjast komu ungrar krabbameinssjúkrar konu á bráðamóttökuna fyrr um kvöldið. Grunur lék á einhverskonar dularfullar eiturgufur hafi lagt frá konunni, en enginn botn fékkst í málið fyrr en kjarnefnafræðingar voru fengnir til rannsóknar.

Frumflutt

16. des. 2019

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Leðurblakan

Leðurblakan

Leðurblökur eru skuggaleg og skringileg dýr sem hafast við í dimmum hellum og skúmaskotum. Þær eru sjaldséðar hér á landi en slæðast þó hingað af og til. Í Leðurblökunni er fjallað um ýmsar ráðgátur og sakamál, og önnur dularfull og sérkennileg mál úr sögunni. Þættirnir voru áður á dagskrá Rásar 1 árið 2014. Umsjónarmaður: Vera Illugadóttir

Þættir

,