Kvöldfréttir útvarps

Leyft öllum aldurshópum

Samningar á almennum vinnumarkaði halda, 16 ára dómur staðfestur og karpað um leigubremsu á þingi

Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði halda. Frameftir degi leit út fyrir að þeim yrði sagt upp en á lokamínútunum náðu VR, Fagfélögin og Samtak atvinnulífsins saman. Ríkisstjórnin, ASÍ, SA og Samband íslenskra sveitarfélaga kynntu sameiginlega yfirlýsingu vegna kjarasamninganna á almennum markaði á blaðamannafundi rétt fyrir fréttir.

Landsréttur hefur staðfest sextán ára fangelsisdóm yfir Margréti Höllu Hansdóttur Löf fyrir að hafa ráðið föður sínum bana og stórfellda líkamsárás gagnvart móður sinni í fyrra. Kröfu hálfbróður hennar um að hún yrði gerð arflaus var vísað frá.

Bandarísk kona sem lifði af tvær aftökutilraunir á dauðadeild í Bandaríkjunum er komin á fætur og farin að ganga um. Enn er óljóst hvort yfirvöld reyni aftur að fullnusta dauðadóm hennar.

Viljayfirlýsing um stækkun verknámshúss Menntaskólans á Ísafirði var undirrituð í gær. Gert er ráð fyrir að Ísafjarðarbær leiði framkvæmdirnar.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,