Kveikur

Leyft öllum aldurshópum

Samherjaskjölin

Í þessum tvöfalda Kveiksþætti sviptir Kveikur hulunni af vafasömum starfsháttum íslenska stórfyrirtækisins Samherja í Namibíu. Útgerðarrisinn hefur síðustu ár greitt háttsettum mönnum í Namibíu og venslamönnum þeirra meira en milljarð króna til að komast yfir eftirsóttan kvóta. Þetta sýna gögn sem lekið var til Wikileaks og Kveikur hefur rannsakað undanfarið í samstarfi við Al Jazeera Investigates og Stundina. Samtök gegn spillingu segja öll merki um að þetta séu mútugreiðslur.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kveikur

Kveikur er fréttaskýringaþáttur sem sendur er út hálfsmánaðarlega. Þátturinn er í anda klassískra fréttaskýringaþátta með áherslu á rannsóknarblaðamennsku.

Ritstjóri er Þóra Arnórsdóttir en ritstjórnina skipa Ingólfur Bjarni Sigfússon, Helgi Seljan, Aðalsteinn Kjartansson og Tryggvi Aðalbjörnsson. Dagskrárgerð: Arnar Þórisson, Stefán Aðalsteinn Drengsson og Ingvar Haukur Guðmundsson.

Þættir

,