Hvalárvirkjun
Þrátt fyrir að íbúar Árneshrepps hafi alla tíð verið samheldnir klýfur nú Hvalárvirkjun sveitarfélagið. Í sinni einföldustu mynd mætti segja að í umræðunni um virkjunina sé fólk annað…
Jim Ratcliffe hefur stóraukið eignaumsvif sín á Norðausturlandi. En hversu mikið land á hann eiginlega og hvað finnst heimamönnum? Svo er það endur- og símenntun lækna. Ekkert kerfi heldur utan um endurmenntun lækna og því er alls óvíst að læknar uppfæri þekkingu sína sem er varla æskilegt í fagi þar sem þekking úreldist hratt.

Kveikur er fréttaskýringaþáttur sem sendur er út hálfsmánaðarlega. Þátturinn er í anda klassískra fréttaskýringaþátta með áherslu á rannsóknarblaðamennsku.
Ritstjóri er Þóra Arnórsdóttir en ritstjórnina skipa Ingólfur Bjarni Sigfússon, Helgi Seljan, Aðalsteinn Kjartansson og Tryggvi Aðalbjörnsson. Dagskrárgerð: Arnar Þórisson, Stefán Aðalsteinn Drengsson og Ingvar Haukur Guðmundsson.