Kveikur

Leyft öllum aldurshópum

Lyfjaskil og offita

Kveikur fjallar um misnotkun - og sóun, á lyfseðilsskyldum lyfjum. Við tölum við lyfsala sem telur að eftirlit með lyfjaskilum sé ekki nægilega mikið. Lyfjastofnun hefur beitt sér fyrir því að draga úr magni lyfseðilsskyldra lyfja í umferð í samfélaginu.

Offita. Íslendingar eru feitastir Norðurlandaþjóða og eru vel yfir meðaltali OECD-ríkjanna. Kveikur fjallaði um magaermaraðgerðir í fyrra, sem gerðar eru í þúsundavís utan við heilbrigðiskerfið. Hópferðir til útlanda, þar sem undirbúningur er lítill og eftirfylgni engin, opið um það bil öllum sem vilja borga.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kveikur

Kveikur er fréttaskýringaþáttur sem sendur er út hálfsmánaðarlega. Þátturinn er í anda klassískra fréttaskýringaþátta með áherslu á rannsóknarblaðamennsku.

Ritstjóri er Þóra Arnórsdóttir en ritstjórnina skipa Ingólfur Bjarni Sigfússon, Helgi Seljan, Aðalsteinn Kjartansson og Tryggvi Aðalbjörnsson. Dagskrárgerð: Arnar Þórisson, Stefán Aðalsteinn Drengsson og Ingvar Haukur Guðmundsson.

Þættir

,